Fréttatíminn - 02.09.2016, Page 48
Gott að ræða samfélagsmál
Um helgina fer fram
Fundur fólksins
sem er tveggja
daga hátíð um
samfélagsmál og
fer fram í Norræna hús-
inu. Boðið er til samtals milli almenn-
ings, stjórnmálamanna og frjálsra
félagasamtaka.
Gott að fara í bíó
Það er gott að fara í bíó um
helgar. Fá sér popp og kók
með. Í kvöld verður kvik-
myndin Mean Girls sýnd í
Bíó Paradís en myndin sló
rækilega í gegn árið 2004 og má telja
líklegt að troðfullt verði í sal bíóhússins í
kvöld. Gott að byrja haustið á þeim skvísum.
Gott að vera góður við aðra
Lífskúnstnerinn Stephen
Fry segir að margt skipti
vissulega máli í lífinu eins
og að vera ákveðinn, með
keppnisskap, duglegur og
svo framvegis, en á endan-
um skipti langmestu máli að
vera góður. Verum góð við hvort annað.
Það skiptir mestu máli.
GOTT
UM
HELGINA
Fólkið mælir með…
Björn Teitsson
Morgunmatur: Big
Mac! Ekki þessi
erfðabreytta kjöt-
-og majónesklessa
á McDonalds, heldur
tvöfaldur macchiato
á Te & kaffi. Þvílíkur orðaleikur.
Ég er ekki mikið fyrir fasta fæðu á
morgnana en það myndi mögu-
lega breytast ef Brauð & Co væri
á leið minni til vinnu. En ég borga
glaður fyrir gott kaffi.
Facebook grúppa: Við Þórður
Gunnarsson olíuhagfræðing-
ur stofnuðum grúppu tileinkaða
chili-ávextinum fyrir nokkru. Fólk
deilir þar brunasögum eða hendir
jafnvel saman í pöntun á sósum
sem eru bannaðar fólki með
undirliggjandi öndunarfæra- eða
hjartasjúkdóma. Svo eru bornar
saman bækur um sterkustu rétti
á veitingastöðum á Íslandi, sem
eru reyndar allir á sama veitinga-
stað. Bitte.
Þáttur til að sofna yfir: Stöffi sem
ég hef séð margoft. Seinfeld,
Freaks and Geeks eða einhverjum
matreiðsluþáttum. Svo er útvarp-
ið. Og hlaðvarpið. Ný Víðsjá er að
taka á sig mynd, Orð um bækur er
klassík og Ævar Kjartansson gerir
alltaf góða hluti. Svo má mæla
með Spinnipúkanum, Fílalag eða
Eusebio á Alvarpinu.
Inga Björk
Bjarna
dóttir
Morgunmatur: Ég
er mjög úrill á morgnana og get
ekki hafið samræður fyrr en ég er
búin með tvo bolla af kaffi. Ef ég
er of sein, gríp ég ávöxt á leiðinni
út og í raun er ekki til betri leið til
að byrja daginn en með einu greipi
enda stútfullt af vítamínum og
trefjum.
Facebook grúppa: Hópur íslenskra
Seinfeld aðdáenda, „Not that
there’s anything wrong with
that“, er í miklu uppáhaldi þó
virknin mætti vissulega vera meiri.
Fyrir þau okkar sem eiga ættingja
og vini sem skilja ekki tilvísanir í
þessa 20 ára gömlu sjónvarps-
þætti og hafa engan áhuga á
seinfeldískum sögum úr hvers-
dagslífinu er grúppan eins og vin í
eyðimörk.
Þáttur til að sofna yfir: Seinfeld er
eins og gefur að skilja eini þáttur-
inn í lífi mínu og ég vil helst ekki
horfa á neitt annað. Ég horfi yf-
irleitt alltaf á einn eða tvo þætti
fyrir svefninn enda get ég illa
sofnað ef ég fæ ekki minn daglega
skammt af Jerry, Elaine, George
og Kramer.
ÓTAKMARKAÐUR
LJÓSLEIÐARI
ÓTAKMARKAÐUR
FARSÍMI + 4GB
WWW.HRINGIDAN.IS - 525 2400
4.5X9MM.indd 1 2.6.2016 13:04:43