Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 02.09.2016, Qupperneq 50

Fréttatíminn - 02.09.2016, Qupperneq 50
Prince neytti „englafæðu“ Charlene Friend er ein af fyrrum kærustum Prince heitins. Það kom henni ekki á óvart að heyra um það magn læknadóps sem fannst á heimili söngvarans eftir hans dag. Charlene segir að Prince hafi stundum ver- ið vakandi í allt að fimm daga samfleytt, án þess að borða eða drekka og var á sífelldum þönum milli heimilis síns og upptökuversins. „Ég þurfti að næla mér í kríublund við hvert tæki- færi til þess að halda mér gangandi,“ segir Charlene. Hún segist hafa spurt hann hvernig í ósköpunum hann færi að þessu og svar hans var: „Englafæði. Matur fyrir sálina, ekki úr holdi.“ Þegar Prince svaf loksins, setti hann álpappír í alla glugga, hækkaði hitann í herberginu og svaf í svarta myrkri. Ringo Starr í áfengismeðferð Bítilinn Ringo Starr er kominn í áfengismeðferð og hefur verið þar í nokkrar vikur. Hann verður þar inni þangað til hann fer í tónleikaferðalag með hljómsveit sinni. Heimildarmaður RadarOn- line sagði: „Ringo vildi sjálfur fara í meðferð. Hann hefur verið edrú í mörg ár, en hefur alltaf áhyggjur af því að falla. Það er hans stærsti ótti. Það eru miklar freistingar í kring- um hann, sérstaklega þegar hann er á tón- leikaferðalagi. Þess vegna vildi hann fara í með- ferð áður en hann færi í ferðina, sem er ábyggilega mjög skynsamleg ákvörðun hjá honum.“ Ringo fór í meðferð árið 1988 í Arizona Sierra Tucson meðferðarstöð- inni og sagði Ringo sjálfur frá því að hann hefði mætt dauðadrukkinn í meðferðina. Lisa Marie Presley að missa forræði yfir dætrum sínum? Lisa Marie Presley gæti misst forræðið yfir tvíburadætrum sínum vegna drykkju og lyfjafíknar sinnar. Fyrrum eiginmaður Lisu, Michael Lockwood, hefur farið fram á fullt forræði yfir stelpunum. Lisa bað um að barnaverndarnefnd myndi fylgjast með öllu um leið og hún og Michael skildu en gæti séð eftir því núna, því hún var send í meðferð en hún er háð áfengi, verkjatöflum og öðrum lyfjum. Michael mun nota þetta sér til framdráttar og mun meðal annars segja að hann hafi séð mikið um stúlkurnar því Lisa sé óáhugasamt og fjarlægt for- eldri. Samkvæmt heimildarmanni hefur barnfóstra séð mikið um stúlk- urnar ásamt Priscillu, ömmu þeirra. Blac Chyna, unnusta og verðandi barnsmóðir Rob Kardashian, bróð- ur Kardashian-systra, hefur verið honum stoð og stytta á erfiðum tím- um, en hann hefur glímt við þung- lyndi. Hann sagði sjálfur frá þessu í einlægu viðtali í tímaritinu People á dögunum. „Við höfðum verið vinir um tíma áður en við byrjuðum saman. Hún var manneskja sem ég gat leitað ráða hjá. Hún eldaði fyrir mig og við töluðum og allt og ekkert. Hún kom með jákvæða strauma inn í líf mitt og ég vissi það um leið og við hittumst fyrst að ég vildi meira en bara vera vinur hennar,“ sagði Rob meðal annars í viðtalinu. Honum leið mjög illa að lifa fyrir framan myndavélarnar í þáttunum Keeping up with the Kardashians, sérstaklega eftir að hann bætti á sig kílóum og greindist með sykursýki 2. „Chyna hefur hvatt mig áfram og með hjálp hennar hef ég náð að yfir- stíga óöryggi og félagsfælni.“ Þættir með þeim skötuhjúum hefjast á sjónvarpsstöðinni E! í sept- ember. Þar er þeim fylgt eftir frá trúlofun að meðgöngu, en Chyna gengur nú með þeirra fyrsta barn. Fyrir á hún einn son. Stoð og stytta á erfiðum tímum Blac Chyna er bjargvættur Rob Kardashian. Jákvæðir straumar Rob vissi strax að hann vildi eitthvað meira þegar hann kynntist Blac Chyna. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Þetta er mjög skemmti-legt, en talsvert öðru-vísi en það sem ég var að gera. Mér líður svo-lítið eins og ég vinni hálfan daginn núna. Ég vinn bara átta tíma í staðinn fyrir sextán, það er voða þægilegt,“ segir Frið- rik Valur Karlsson matreiðslumað- ur sem tók nýlega við mötuneyti og veitiningaþjónustu Þjóðleik- hússins. Þangað til í vor rak hann staðinn Friðrik V á Laugaveginum ásamt eiginkonu sinni, Arnrúnu Magnúsdóttur. En þau ákváðu að loka staðnum þrátt fyrir miklar vinsældir og velgengni vegna veik- inda Arnrúnar. Maturinn eins og leiksýningar Friðrik kann vel við sig á nýja staðnum, enda eldhús Þjóðleik- hússins vel tækjum búið, sem gefur honum kost á því að matreiða allt frá grunni. Starfsfólk hússins fær þó ekki veislumat á hverjum degi þó auðvitað sé maturinn alltaf góður og næringarríkur. „Ég get ekki verið með stórsteikur út í eitt, en það er gaman fyrir mig að fá að gera aftur fiskibollur, plokkfisk og svona hefð- bundna rétti. Þetta er eins og með leiksýningarnar. Sumar sýningar eru bara alltaf eins og þannig eru sumir þjóðlegir réttir. Gullna hliðið er eins og það er og plokkfiskurinn er eins og hann er. Maður setur ekki leikarana í spandexgalla í þegar það á ekki við. En vissulega er ég með eitthvað skemmtilegt inn á milli.“ Áhyggjur af forminu Friðrik segir Þjóðleikhúsið einstaklega líf legan vinnustað og honum hefur verið vel tekið af starfsfólkinu, sem er mun fjöl- breyttari hópur en hann gerði sér grein fyrir. „Ég hafði smá áhyggj- ur af því að koma hingað eftir að hafa verið í „fine dining“ ógeðs- lega lengi. Nú er ber ég bókstaflega ábyrgð á fólkinu. Það er sama fólk- ið í mat hjá mér á hverjum degi, þannig ég get ekki bara verið að leika mér með smjör og rjóma. Þetta verður að vera innan skynsamlegra marka. Það er ákveðin áskorun,“ segir Friðrik kíminn, og starfsfólk- ið virðist ánægt með það sem hann býður upp á. „Starfsfólkið er alla- vega að skila sér vel í mat ennþá. Ég veit reyndar að menn hafa verið Streitulosandi afslöppun í leikhúsinu Borða matinn sinn Friðrik segir starfsfólk leikhússins duglegt að klára af diskunum sínum. Mynd | Hari Friðrik Valur tók nýlega við mötuneyti Þjóð- leikhússins, en hann rak sinn eigin veitinga- stað, Friðrik V, á Laugaveginum um árabil. Hann segir það ágætis tilbreytingu að vinna í 8 tíma á dag í stað 16. að hafa áhyggjur af því að halda sér ekki í nógu góðu formi. En hvort það er mitt vandamál, veit ég ekki.“ Enginn að væla út borð „Mér finnst líka svo fallegt að hér er borin virðing fyrir mötuneytinu. Það borða allir matinn sinn. Menn eru ekkert að hamstra á diskinn og henda í ruslið. Svo er þetta lítið mötuneyti, það eru allir vinir og borða saman. Ég segi ekki að ég sé nískur en mér finnst leiðinlegt að fara illa með mat. Þannig þetta hentar vel minni hugmyndafræði.“ Og Friðrik heldur líka í sínar venj- ur, eins og fara einu sinni í viku að hitta grænmetisbændur til að sækja grænmetið sem hann eldar. „Ég kann ekkert annað og er orðinn svo gamall þannig ég fer ekki að breyta því úr þessu.“ Friðrik er hins vegar feginn að vera laus við auka vesenið sem fylgir veitingarekstri. „Nú fer ég bara í vinnuna og elda fyrir ákveðið marga. Það er enginn að hringja í mann og reyna að væla út úr manni borð, þar sem alltaf er troð- fullt. Enginn biðlisti og ekkert „no show“ sem var stundum að plaga mann. Að elda er streitulosandi, en hitt bullið í rekstrinum er streitu- valdandi, þannig nú er ég bara í afslöppun og er ógeðslega ham- ingjusamur með þetta.“ Ég get ekki verið með stórsteikur út í eitt, en það er gaman fyrir mig að fá að gera aftur fiskibollur, plokkfisk og svona hefðbundna rétti. …fjörið 2 | amk… FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2016
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.