Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 02.09.2016, Qupperneq 62

Fréttatíminn - 02.09.2016, Qupperneq 62
…námskeið kynningar 14 | amk… FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2016 Glæsileg aðstaða Í Sparkhöllinni í Kópavogi eru fjórir glænýir, hágæða battavellir. Mynd | Rut Dans Fjölbreytt námskeið eru í boði í Plié Heilsu og Dans sem nýverið fluttist í Sparkhöllina í Kópavogi. Mynd | Rut Taekwondo Í Mudo Gym er frábær aðstaða og þjálfarar. Mynd | Rut Fjölskyldufyrirtæki Sigtryggur Snorrason er aðalþjálfarinn í Mudo Gym og Þórunn er rekstrarstjóri Sparkhallarinnar. Á milli þeirra er Rebekka, dóttir Þórunnar. Mynd | Rut Hús fullt af heilbrigðu lífi Í Sparkhöllinni í Kópavogi eru fjórir frábærir knattspyrnuvellir til leigu, hvort sem er fyrir íþróttafélög, vinahópa eða barnaafmæli. Í sama húsi er einnig Mudo Gym, þar sem meðal annars er kennt Taekwondo, sem og Plié Dans og Heilsa. Unnið í samstarfi við Sparkhöllina Við erum mjög ánægð með viðtökurnar og þetta hef-ur farið vel af stað,“ segir Þórunn Kristín Snorra- dóttir, rekstrarstjóri Sparkhallar- innar í Kópavogi. Sparkhöllin var opnuð í lok síðasta árs með veglegu knattspyrnumóti og í vor voru salir hallarinnar mikið nýttir af meistaraflokkum og bumbubolta- hópum. Þessir fyrstu mánuðir hafa verið nýttir til reynslu og til að fínpússa starfsemina þannig að nú í haust fer allt á fullt. Bæði í knattspyrnusölunum, í Mudo Gym og Plié Dans og Heilsu sem nýverið flutti starfsemi sína í húsið. Fjölbreytt fótboltastarf í Sparkhöllinni Í Sparkhöllinni eru fjórir glænýir, hágæða battavellir. Vellirnir eru misstórir og henta bæði íþrótta- félögum sem og hópum. „Það er frábært fyrir íþróttafé- lögin að koma hingað þegar illa viðrar. Ég tala nú ekki um þegar litlu krakkarnir eru látnir hita upp með því að ýta snjónum af gras- inu. Þau félög sem hafa æft hérna hafa verið mjög ánægð enda er þetta frábært gras sem hannað er sérstaklega fyrir battavelli og þolir mikið álag og snúninga. En svo fáum við mikið af fyrir- tækjum sem vilja til dæmis nýta hádegið. Þessir hörðustu mæta á morgnana og spila. Þeir geta þá farið að skokka eftir vinnu,“ segir Þórunn. Á kvöldin er algengt að vina- hópar leigi sér völl og spili fót- bolta og þá skemmir eflaust ekki fyrir að hægt er að horfa á boltann í beinni á skjávarpa þar sem hægt verður að fá sér einn kaldan yfir leik. Eins er hægt að leigja völl fyrir yngri hópa, til að mynda fyrir afmælisveislur, og þá er hægt að kaupa pítsur og af- mælisköku með. „Á morgnana er knattspyrnu- akademían okkar rekin í hús- inu en hún er ætluð stelpum og strákum á aldrinum 10-16 ára. Í Akademíunni er lögð áhersla á gæði þjálfunar, styrktarþjálfun, snerpu- og liðleikaæfingar. Þar er einblínt á hvern einstakling fyrir sig og unnið í veikleikum og með styrkleika allra á mis- munandi hátt. Hvert námskeið stendur í fjórar vikur og hefst þann 12. september. Þjálfarar okkar eru Ólafur Páll Snorrason, aðstoðarþjálfari meistaraflokks kk. Fjölnis, Eiður Ben Eiríksson, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Fylki, Stefán Logi Magnús- son, markvörður mfl. KR og Hans Sævarsson, þjálfari 2. flokks karla hjá FH.“ Þá er algengt að einkaþjálfar- ar úr öllum áttum leigi aðstöðu í Sparkhöllinni, enda hentar höllin frábærlega fyrir alls kyns þjálfun. Líf og fjör í Mudo Gym En það er fleira en fótbolti í Sparkhöllinni. Mudo Gym opnaði þar snemma árs og hefur sú stöð slegið í gegn. „Við náðum alveg ótrúlega góðu starti og erum gríðarlega ánægð með viðtökurnar sem við fengum. Við erum aðallega með Taekwondo en líka ýmsa styrkt- ar- og þolþjálfun. Þetta eru alvöru æfingar fyrir venjulegt fólk. Svo höfum við verið mikið í barna- starfinu og erum með hópa allt niður í tveggja ára. Það er líf og fjör hér,“ segir Þórunn. Mudo Gym hefur verið í sam- starfi við Styrktarfélag ein- hverfra, Bláan apríl, og hefur starfrækt sérstakan hóp fyrir einhverfa. „Við erum mjög stolt að geta boðið upp á þá tíma.“ Hún segir að Sigursteinn, bróðir sinn, beri hitann og þungann af þjálfun í Mudo Gym, enda er hann með hæsta belti í Taekwondo á Íslandi og fyrrum landsliðsþjálfari í greininni. „Við erum með keppnishóp hér og í honum eru margir Íslands- og Norðurlandameistarar sem unnið hafa ótal medalíur úti í heimi. Þetta er sterkur og flottur hópur,“ segir Þórunn. Metnaðarfullt starf í Plié Á annarri hæðinni er svo Plié Dans og Heilsa að koma sér fyrir og hefst vetrardagskráin næsta mánudag, 5. september. Plié var áður í Smáralind og hefur getið sér gott orð fyrir fjölbreytt og metnaðarfullt starf. „Við erum ótrúlega glöð að hafa fengið þær hingað. Þetta eru mjög metnaðarfullar stelpur sem bjóða upp á mikið og skemmtilegt barnastarf. Þær hafa mjög heil- brigða nálgun gagnvart kennslu hjá ungum nemendum,“ segir Þórunn. Fjölbreytt dansnámskeið, ballett, jóga og hugleiðslunám- skeið eru í boði í Plié og hægt er að kynna sér námskeiðin vel á heimasíðunum, www.plie.is og www.hugarfrelsi.is. Hraður vöxtur á fyrsta ári Augljóst er að Sparkhöllin er að vaxa hratt á sínu fyrsta starfsári og segir Þórunn að þau systkinin horfi spennt til framtíðar. „Já, hér er allt að fyllast af heilbrigðu lífi. Við erum í andlegu jafnvægi og líkamlega vel á okkur komin, sum okkar alla vega,“ segir hún glettin. Allar nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðunni, www.sparkhollin.is.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.