Fréttatíminn - 02.09.2016, Síða 63
Fjölbreytt myndlistanám
fyrir allan aldur
Áhersla á snertingu við efni og aðferðir.
Unnið í samstarfi við
Myndlistaskólann
Nú fara haustnámskeið Myndlistaskólans í Reykjavík að hefjast. Líkt og endranær er
boðið upp á fjölbreytt nám fyr-
ir alla aldurshópa; börn allt frá
fjögurra ára aldri geta sótt nám-
skeið í skólanum. „Við leggjum
áherslu á að vera með fámenn
námskeið svo að krakkarnir fái ró
og næði og athygli frá kennaran-
um. Hjá yngstu börnunum er há-
mark 6 í hóp,“ segir Áslaug. Í vet-
ur boðið upp á nýjung; námskeið
sem kennt er á frönsku og ef það
gengur vel höfum við áhuga á að
bjóða upp á námskeið fyrir börn á
fleiri tungumálum.
Yngstu hóparnir sækja svoköll-
uð blönduð námskeið og fá þjálf-
un í ýmis konar tækni, fá að prófa
að teikna, mála og leira og eftir
því sem börnin eldast geta þau
valið sér sérsvið. „Tíu til tólf ára
hóparnir geta lagt áherslu á teikn-
ingu, vídeó eða t.d. hreyfimyndir,
svo eru myndasögur mjög vin-
sælar. Unglingar geta síðan valið
enn fleira; málningu, teikningu
eða grafík, leir eða gips. Í haust
bjóðum við nýtt námskeið fyrir
unglinga sem við köllum Youtube
hrærivélina. Þá eru þeir að sækja
sér efni á netið og klippa til og
endurvinna.
„Við leggjum mikla áherslu á
snertingu við efnið og kennslu
í tækni og aðferðum í bland við
hugmyndavinnu. Til dæmis erum
við nýbúin að endurgera hjá
okkur myrkraherbergið. Nem-
endur dagskóla taka námskeið í
filmuljósmyndun, framköllun og
stækkun og slík námskeið eru
líka í boði fyrir unglinga og full-
orðna nemendur kvöldskóla,“
segir Áslaug. Fullorðnir geta
nefnilega líka sótt fjölbreytt nám-
skeið í Myndlistaskólanum. „Yfir-
leitt eru þau kennd á kvöldin en
nokkur þó á daginn. Við bjóðum
ýmis námskeið, m.a. í teikningu,
módelteikningu, vatnslit, málun
og leir, bæði grunnnámskeið og
sérhæfðari námskeið eins og t.d.
í portretti, skopmyndagerð og
barnabókaskreytingum.“
Myndlistaskólinn er staðsettur
á Hringbrautinni; JL húsinu vest-
ur í bæ. Vert er að benda á að
barnadeild skólans starfrækir
útibú í Breiðholti, í Miðbergi, við
hliðina á Gerðubergi. Því þurfa
börn búsetti austast í bænum
ekki að ferðast alla leiðina vestur
eftir til að sækja námskeiðin.
Allar upplýsingar um
námskeiðin og starfsemina má
finna á mir.is.
Myndlistaskólinn býður upp á
fjórar námsleiðir á háskólastigi,
keramik, málaralist, teikningu
og textíl. Einnig er boðið upp á
tveggja ára nám fyrr nemendur
með þroskahömlun sem fá grunn í
myndlist. Nemendur sem ætla sér
í listaháskóla en hafa ekki nám
eða reynslu að baki geta sótt for-
nám sem gefur þeim góðan grunn
í myndlist. Einnig geta nemendur
sem hafa lokið tilteknum fjölda
eininga í framhaldsskóla tekið 2
ára nám á framhaldsskólastigi og
lokið stúdentsprófi við Myndlista-
skólann.
Myndlistaskólinn
…námskeið kynningar15 | amk… FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2016
Áslaug Thorlacius
„Við leggjum áherslu á að vera með fámenn
námskeið svo að krakkarnir fái ró og næði
og athygli frá kennaranum.“. Mynd | Rut
Erla Traustadóttir „Okkur finnst
frábært að hafa fjölbreyttan félaga-
hóp. Það auðgar starfið og gerir það
skemmtilegra.“ Mynd | Hari
POWERtalk starfrækir deildir víða um land;
Kópavogi, Mosfellsbæ, Patreksfirði, Akureyri
og Selfossi, auk Reykjavíkur. Einnig er
starfandi enskumælandi deild í Mosfellsbæ.
„Þetta snýst
líka um að
fólk geti tekið þátt í
umræðum og hlustað
á aðra.“
Erla Traustadóttir
Landsforseti POWERtalk á Íslandi.
Gerir lífið mun
skemmtilegra
POWERtalk veitir einstaklingsmiðaða þjálfun í framkomu,
tjáningu og fundasköpum.
Unnið í samstarfi við POWERtalk
POWERtalk eru alþjóðasam-tök sem leggja áherslu á að bjóða upp á einstak-lingasmiðaða þjálfun í
framkomu, ræðumennsku, tjáningu.
Erla Traustadóttir er landsforseti
POWERtalk á Íslandi. „Við erum
með félaga frá 22 ára aldri en flestir
eru frá þrítugu og upp úr og bæði
kyn. Okkur finnst frábært að hafa
fjölbreyttan félagahóp. Það auðgar
starfið og gerir það skemmtilegra,“
segir Erla.
Sumir verða að læra að hlusta
Flestir sem hefja þátttöku í
POWERtalk eru að sækjast eft-
ir þjálfun í að koma fram. „Þetta
snýst ekki bara um að halda ræður ,
þetta er almenn þjálfun í að koma
fram. Margir sem koma til okk-
ar eru í námi og eiga erfitt með að
standa upp og spyrja kennarann
spurninga. Eða geta ekki tjáð sig
á foreldrafundum. Flestir vinnu-
staðir krefjast þess að fólk vinni í
hópum og hafi skoðanir á hlutun-
um og tjái sig, mörgum finnst það
mjög erfitt. Þetta snýst um að læra
að tala fyrir sínum hugmyndum og
standa á sínu,“ segir Erla og bætir
við að sumir félagar hafi líka komið
því þeir þurftu að læra að hlusta og
þegja. „Þetta snýst líka um að fólk
geti tekið þátt í umræðum og hlust-
að á aðra.“
Hæfnismat eftir frammistöðu
Grunnþjálfun fer fram í deildum
innan POWERtalk og fer starf semin
fram frá september fram í maí/júní.
Yfirleitt eru haldnir tveir fundir í
mánuði. „Það er alltaf skipulögð
dagskrá í gangi. Yfirleitt fá félagar
verkefni sem það veit fyrirfram að
það þarf að leysa og fær ákveðinn
tímaramma. Svo erum við líka að
þjálfa fólk í að takast á við óund-
irbúnar aðstæður, það er hluti af
þjálfuninni líka,“ segir Erla. „Hvert
verkefni er með skilgreindar kröfur
þannig að maður veit þegar maður
undirbýr sig til hvers verður horft.
Hvernig byrja ég ræðuna, hvernig
held ég áfram, um hvað á ég að tala
og svo framvegis. Við gefum mjög
góðar leiðbeiningar og eftir hvert
verkefni sem flutt er fær viðkom-
andi hæfnismat. Það er mjög mikil-
vægt í þessu starfi að fólk viti hvar
það á að bæta sig.“
Þjálfun í fundarsköpum
Innan POWERtalk á Íslandi býr mikil
reynsla og þekking og hafa sumir
félaganna verið virkir í yfir 30 ár.
Þátttaka í POWERtalk er einnig leið-
togaþjálfun þar sem meðlimir geta
farið að taka að sér verkefni innan
samtakanna, stjórna fundum og fá
þjálfun í fundarsköpum. „Það eru
endalaus verk efni að vinna og fólk
fer smám saman að miðla til hinna,“
segir Erla og bendir á að þetta sé
vissulega eins og að fá verkfæri í
hendurnar.
Lífið skemmtilegra
Þó að samtökin haldi námskeið við
og við segir Erla galdurinn þó liggja
í því að stunda viðfangsefnið líkt
og íþróttir væri um að ræða. „Ef
þú heldur þér ekki við efnið fennir
fljótlega í sporin. Flestir fá fiðr-
ildi í magann áður en þeir þurfa að
standa fyrir framan fjölda og tala
en þarna ertu kominn með þjálfun
og þessi verkfæri til þess að takast
á við þessar aðstæður, fara út fyrir
þægindahringinn og gera hluti sem
þú þorðir ekki áður. Lífið verður svo
miklu skemmtilegra þannig.“ Nú í
september eru deildir POWERtalk
með kynningarfundi og allir vel-
komnir til þess að kynna sér starf-
semina án skilyrða.
Allar upplýsingar um starf
POWERtalk er að finna á
powertalk.is