Fréttatíminn - 02.09.2016, Page 65
Það verður að viðurkennast að ég
er nokkuð mikil alæta á sjónvarp og
reyndar kvikmyndir líka. Ég elska að
uppgötva nýja þætti og mér hefur
verið sagt að það sé nánast ómögu-
legt að fara með mér í bíó af því
ég er að öllum líkindum búin að sjá
flestar myndir sem vert er að sjá.
Það tekur mig dágóðan tíma að
ná að slökkva á heilanum þegar
ég kem heim eftir vinnu en ég tók
Frankie og Gracie maraþon í vetur.
Ég elska þær stöllur því þær eru
eitthvað svo mannlegar. Svo hef ég
gaman af BoJack Horseman þó
ég sé ekki mikið fyrir „grown up“
teiknimyndir. Við kærastinn tókum
The Jinx og Staircase í vetur en
við erum bæði mikið fyrir heimilda-
myndir. Ég tek síðan „session“ með
Max og Nev í Catfish sem er mitt
„guilty pleasure“.
Núna er ég að setja mig inn í
þættina SKAM, en þetta eru norsk-
ir þættir sem fjalla um krakka á
menntaskólaaldri og er saga þeirra
sögð mikið í gegnum samfélags-
miðla og hvernig þau eru að upplifa
lífið með þessa samfélagsmiðla sem
til eru í dag. Það er hægt að fylgjast
með þeim á NRK TV.
Planið er samt sem áður að
minnka sjónvarpsglápið og byrja
Sófakartaflan
Ingibjörg Björnsdóttir
Elskar að uppgötva nýja þætti
Hæfileikakeppni í
Bretlandi
Stöð 2 kl. 20.40
The X-Factor
Ný þáttaröð þessa vinsæla breska
skemmtiþáttar. Simon Cowell fer
fyrir dómnefndinni en með honum
við dómaraborðið situr söngkon-
an Cheryl Cole, hinn kunni um-
boðsmaður Louis Walsh og hin
fjölhæfa Sharon Osbourne.
Rænir fyrir son sinn
og búgarðinn
Laugarásbíó, Háskólabíó og
Borgarbíó á Akureyri Hell or
High Water
Chris Pine, Ben Foster og Jeff
Bridges leika aðalhlutverkin í
þessari mynd sem hefur fengið
frábæra dóma, til að mynda 98% í
einkunn á Rotten Tomatoes. Hér
segir af fráskildum föður sem berst
við bankann um yfirráð yfir búgarði
fjölskyldunnar í Texas en helsta
markmið föðurins er að skapa
sómasamlegt líf fyrir son sinn.
Hann leiðist út í að skipuleggja rán
með bróður sínum og eftir því sem
ránunum fjölgar þá nálgast lög-
reglustjórinn Marcus þá.
Simmi og örlögin
Hringbraut kl. 20.30 Örlögin
Sjónvarpsmaðurinn Sigmundur
Ernir Rúnarsson kann þá list bet-
ur en margur að ræða erfið mál
við viðmælendur sína. Í þáttun-
um Örlögunum fjallar hann um
venjulegt fólk sem hefur upplifað
óvenjulegar aðstæður.
Alæta á sjónvarp Ingibjörg er dugleg að leita uppi nýja og áhugaverða þætti. Nú er hún að
horfa á norska þætti um líf unglinga í gegnum samfélagsmiðla.
Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is
100. listmunauppboð
Gallerís Foldar
mánudaginn 5. september, kl. 18
og þriðjudaginn 6. september, kl. 18
Léttar veitingar frá kl. 17.30
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–17,
sunnudag kl. 12–17, mánudag kl. 10–17, þriðjudag kl. 10–17
Forsýning á verkunum föstudag til þriðjudags
100 uppboð í 20 ár
Á uppboðinu verður gott úrval
verka samtímalistamanna ásamt
fjöldi frábærra verka gömlu
meistaranna.
Jóhannes S. Kjarval Ásgrímur Jónsson
Kristján Davíðsson
Þorvaldur Skúlason Jón Engilberts
Kristín Jónsdóttir
Marc Chagall
Ég fyrirverð
mig ekki
fyrir fagnaðar-
erindið. Það
er kraftur
Guðs sem
frelsar hvern
þann mann
sem trúir...
www.versdagsins.is
að prjóna í staðinn. Markmiðið er
að reyna að byrja á því í haust eða
jafnvel strengja áramótaheit um það
að byrja að prjóna vorið 2017 þegar
flestir þættir eru komnir í sumarfrí.
…sjónvarp17 | amk… FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2016