Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 24.09.2016, Blaðsíða 20

Fréttatíminn - 24.09.2016, Blaðsíða 20
20 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 24. september 2016 Jón Kaldal var fæddur 1896 í Stóradal í Austur-Húnavatnssýslu. Hann var mikill langhlaupari og einn vinsælasti og merkasti ljós- myndari landsins um árabil. Hér situr Kaldal fyrir hjá Sigurði Guð- mundssyni. Ljósmyndarinn Jón Kaldal kunni á manneskjur. Í gegnum linsuna í mynda- vélinni náði hann að fanga kjarna fyrirsætunnar og sýna okkur hana alveg inn að kviku. Tvær sýningar með verkum Kaldals verða opnaðar í dag í ljósmynda- sal Þjóðminjasafns Íslands. Magnaðar mannamyndir ljósmyndarans eru í for- grunni. Guðni Tómasson gudni@frettatiminn.is Hvað sérðu, ágæti lesandi, margar ljósmyndir á dag? Flestum verð- ur líklega fátt um svör, því að þær skipta jafnvel hundruðum, ef ekki þúsundum. Aftur má spyrja: Hvað sérðu margar góðar ljósmyndir í dag? Verða á vegi þínum mynd- ir sem að fá þig til að stoppa og hugleiða myndefnið? Er einhver mynd í dag fær um að kveikja tilf- inningar, spyrja þig spurninga eða stækka fyrir þér heiminn? Samtíminn er uppfullur ljós- myndum og sannarlega verða til góðar myndir á hverjum degi. Ver- öldin er full af góðu myndefni. Við tökum myndir í gríð og erg af því að okkur þykir það spennandi og til að vitna um að líf okkar sé spennandi. Stundum kann það að vera rétt og myndin af því líka góð. Hins vegar er ljósmyndasagan einnig rík af góðum myndum frá þeim tíma þegar tæknin var dýrari, undirbúningur fyrir ljósmynda- tökuna lengri og ekki endilega möguleiki á að taka margar mynd- ir til að ná einni góðri. Þegar best tókst til náðu ljósmyndarar fyrri tíma öruggum listrænum og tækni- legum tökum á ljósmyndatækninni sem oft var þá frekar tengd fagi, en síður litið á hana sem listgrein. Stundum standa samt eftir ótvíræð listaverk. Meistari íslenskra manna- mynda Ljósmyndarinn Jón Kaldal (1896- 1981) rak ljósmyndastofu í Reykja- vík í nærri hálfa öld og tók mynd- ir af alls konar fólki. Stofan var í hjarta bæjarins og Kaldal naut vin- sælda í sínu fagi. Sýning sem hann hélt í Casa Nova, byggingu Mennta- skólans í Reykjavík árið 1966, þótti nokkur nýlunda, því ekki tíðkaðist þá að ljósmyndarar héldu einka- sýningar, ólíkt því sem við þekkj- um í dag. Mannamyndirnar eru það svið ljósmyndunar sem Kaldal sérhæfði sig í og náði meistaralegum tökum á. Í grein um ljósmyndarann, í bók um hann sem kom út árið 1982, skrifaði Thor Vilhjálmsson rithöf- undur um ljósmyndarann að hann reyndi að „sjá inn í manneskjuna. Átta sig á manninum, hver hann er. Og hann hefur svo mikið að sýna í myndum sínum af því hann hafði séð svo mikið sjálfur. Og lagt sig eftir því að vita hvað byggi bak við svipinn, svipbrigðin.“ Áður en fyrsti áratugur í lífi Jóns var liðinn hafði hann misst foreldra sína báða og bróður. Sérstakur galdur Augun eru stingandi, hrukkurn- ar meitlaðar, húðin nánast þannig að maður vill rétta út höndina og strjúka vanga. Mannamynd- ir Kaldals eru meistaralega fram- kvæmdar og nákvæm, sérhæfð þjónusta. Þegar best lætur eru myndirnar, sem varðveittar eru á plötum og filmum í Ljósmyndasafni Íslands, innan Þjóðminjasafns- ins, þannig að þær grípa augað og halda athygli manns, betur en flestar myndir ljósmyndir. Ljósið sjálft, frumskilyrði ljós- Maðurinn sem safnaði sálum myndunar, var lykillinn að ár- angri Kaldals. Með lýsingunni mót- aði hann viðfangsefni sín, bjó til skugga í andlitin og ýkti aðra þætti þeirra. Ennið á Ástu Sigurðar- dóttur verður eggslétt og lokaðir munnar fagurlega mótaðir með hjálp ljóss og skugga. Oft á tíðum eru mannamyndir Kaldals nærri dramatísk mynd- verk, samt er það aldrei svo að fyr- irsæturnar séu blásnar upp í yfir- stærðir eða hafnar til skýjanna. Þetta er ekki hetjuljósmyndun. Augun eru anddyri sálarinnar og yfirleitt draga þau áhorfandann að myndum Kaldals. Sveitafólk fortíð- ar sem harðnaði í lífsins eldi, jafnt sem helstu listamenn þjóðarinnar á 20. öld, sátu fyrir hjá ljósmyndar- anum og stór hluti snilldarinnar er hvernig ljósmyndarinn ramm- aði módelin inn. Þannig kallast myrkrið í augum Finns Jónssonar listmálara á við þann þrönga dökka ramma sem ljósmyndarinn útdeil- ir honum. Alræði myndanna „Sá ólæsi í framtíðinni mun ekki vera sá sem ekki getur lesið staf- rófið, heldur hann sem ekki getur tekið ljósmynd.“ Þetta sagði þýski heimspekingurinn Walter Benjam- in eitt sinn og sá fyrir hvernig aukið aðgengi að myndefni myndi stjórna sýn okkar á heiminn og breyta tilf- inningum okkar fyrir raunveruleik- anum. Myndir eru allsstaðar fyrir fram- an nefið á okkur, en samt er eitthvað í eðli þeirra sem gerir það að verk- um að við stoppum nánast í sporun- um þegar við verðum fyrir „góðri mynd“. Þannig mynd getur nánast kýlt okkur köld og snert taugar sem ekki er endilega auðvelt að ná til. Með mannamyndum sínum, til dæmis af mörgum af merkustu listamönnum þjóðarinnar, skap- aði Kaldal tilfinningu okkar fyrir manneskjunum á bak við verkin. Þær fjölmörgu myndir sem hann tók af Jóhannesi Kjarval eru gott dæmi. Þar þroskast listamaðurinn fyrir framan augu okkar á löngu tímabili og við skynjum manninn á bak við verkin. Auðvitað var Kjar- val óvenju „fótógenískur“ en þann eiginleika þarf samt að fanga vel. Það sama á við um eldinn í augum Finns Jónssonar og dramatískan „femme fatale“ þokka Ástu Sig- urðardóttur. Það á jafnt við um listamenn- ina og hrjúfa bændahöfðingja, að Kaldal staðfestir tilvist þessa fólks í mannheimum, löngu eftir að það er farið. Og áfram getum við notið myndanna. Hann lýsti upp mann- eskjurnar og safnaði sálum þeirra. Það er galdur ljósmyndarinnar þegar best lætur. Tvær sýningar verða opnaðar í dag í myndasal Þjóðminjasafns Íslands. Annars vegar Portrett Kaldals og hins vegar minni sýning með öðrum mynd- um sem heitir Kaldal í tíma. Hér er ljósmynd Kaldals af matsal Hvítárbakkaskóla frá árinu 1930. „Þessar „týpur“ fáum við aldrei aftur, eins og þessa karla með skeggið,“ sagði Jón Kaldal í viðtali við Morgunblaðið árið 1966. Hér er Hjálmar Þorgilsson frá Kambi, einn skeggjuðu bændahöfðingjanna sem Kaldal myndaði. Myndir | Þjóðminjasafnið Í mannamyndum sínum fer Kaldal meistaralega með ljósið. Notar það til að móta og ýkja andlitin og ramma þau rækilega inn. Finnur Jónsson listmálari með eldinn í augum. Sumar mynda Kaldals af listamönnum, eins og þessi af Ástu Sigurðardóttur, gefa okkur ríka tilfinningu fyrir fólkinu á bak við listaverkin. Uppreisnarandi Ástu skín í gegn. Bólusetning gegn árlegri inflúensu Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins vill vekja athygli á því að skipulögð bólusetning gegn inflúensu hefst á heilsugæslustöðvum mánudaginn 26. september 2016. Bóluefnið myndar mótefni gegn þremur inflúensuveirustofnum þ.á m. svonefndri svínainflúensu. Hverjum er einkum ráðlagt að láta bólusetja sig?  Öllum sem orðnir eru 60 ára  Öllum, bæði börnum og fullorðnum, sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum  Heilbrigðisstarfsmönnum sem daglega annast fólk með aukna áhættu, sbr. ofantalið  Þunguðum konum Þeir sem tilheyra ofangreindum hópum fá bóluefnið sér að kostnaðarlausu en greiða komugjald samkvæmt reglugerð nr. 1144 / 2015. Fyrirkomulag bólusetningar getur verið mismunandi milli heilsugæslustöðva. Vinsamlegast leitið upplýsinga á vef Heilsugæslunnar www.heilsugaeslan.is, eða hafið samband við hlutaðeigandi heilsugæslustöð. Heilsugæslan Árbæ, Reykjavík s: 585 7800 Heilsugæslan Efra-Breiðholti , Reykjavík s: 513 1550 Heilsugæslan Efstaleiti, Reykjavík s: 585 1800 Heilsugæslan Fjörður, Hafnarfirði s: 540 9400 Heilsugæslan Garðabæ s: 520 1800 Heilsugæslan Glæsibæ, Reykjavík s: 599 1300 Heilsugæslan Grafarvogi, Reykjavík s: 585 7600 Heilsugæslan Hamraborg, Kópavogi s: 594 0500 Heilsugæslan Hlíðum, Reykjavík s: 585 2300 Heilsugæslan Hvammi, Kópavogi s: 594 0400 Heilsugæslan Miðbæ, Reykjavík s: 585 2600 Heilsugæslan Mjódd, Reykjavík s: 513 1500 Heilsugæslan Mosfellsumdæmi s: 510 0700 Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ s: 513 2100 Heilsugæslan Sólvangi, Hafnarfirði s: 550 2600 Heilsugæslan Lágmúla 4, Reykjavík s: 595 1300 Heilsugæslan Salahverfi, Kópavogi s: 590 3900 Búast má við að bólusetning geti veitt a.m.k. 70% vörn gegn sjúkdómnum auk þess sem hann verður vægari hjá þeim í hópi bólusettra sem veikjast. Þeim sem leita vilja ráðgjafar er bent á sína heilsugæslustöð. Frekari upplýsingar er að finna á vef Heilsugæslunnar, www.heilsugaeslan.is Fræðsluefni um inflúensu má finna á vef Embættis landlæknis, www.landlaeknir.is Reykjavík, 24. september 2016 Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Álfabakka 16, 109 Reykjavík sími 585 1300 www.heilsugaeslan.is

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.