Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 24.09.2016, Blaðsíða 14

Fréttatíminn - 24.09.2016, Blaðsíða 14
Jóna Fanney Friðriksdótt- ir, fyrrverandi bæjarstjóri á Blönduósi, skellti sér í Skrapatungurétt um síðustu helgi. Jóna, sem er öllum hnútum kunnug, leiddi okkur í gegnum daginn sem endaði um kvöldið á balli í Félagsheimilinu á Blöndu- ósi. Alda Lóa Leifsdóttir og Jóna Fanney Friðriksdóttir aldaloa@frettatiminn.is Skrapatungurétt er rétt fyrir utan Blönduós. 15 heimamenn smöluðu 350-400 hrossum niður í Kirkju- skarðsrétt. Þar bættist í hópinn fleira hestafólk, sveitungar, vensla- fólk og gestir en síðast rak hópinn röð af járnfákum sem silaðist eftir grýttum malarslóðanum í Laxár- dal niður í Skrapatungurétt. Kærustuparið Guðlaug og Haukur Hópreiðin hefst hjá Guðlaugu Jóns- dóttur á Strjúgsstöðum sem starfar á Landspítalanum í Reykjavík en reynir að komast norður eins oft og hún getur. „Börnum mínum og barnabörnum í bænum finnst nú stundum alveg nóg komið af þess- um ferðum mínum hingað norður,“ segir Guðlaug og hlær. Guðlaug og kærastinn, Haukur Pálsson hrossa- ræktarbóndi á Röðli, ríða síðust frá Strjúgsstöðum. Þau loka hliðinu og reka hópinn sem er farinn yfir hæðina á leið sinni í Kirkjuskarðs- rétt. Margir höfðu komið keyrandi með hrossin sín að Strjúgsstöðum deginum á undan og skilið þau eft- ir yfir nóttina í gerðinu. Fjallskilastjórinn Anna Margrét Stóðhestasmölun krefst mikillar skipulagningar. Fjöldi hrossa sem sótt eru í Laxárdalinn er í kring- um 350-400 og smöluninni sinna um 15 manns. Fjallskilastjóri er sá sem er í forsvari fyrir því að allt gangi vel fyrir sig. Anna Mar- grét Jónsdóttir, tveggja barna móðir og bóndi á Sölvabakka, er fjallskilastjóri þetta árið. „Við vor- um komin í hnakk klukkan 6 um morguninn og skiptum okkur í hópa eftir svæðum. Minn hópur smalaði svæðið frá Grjótárbotn- um í gegnum Litla Vatnsskarð út að Vesturárskarði. Þar mættum við öðrum gangnamannahópi sem smalaði sunnanmegin. Og þaðan var allt stóðið smalað nið- ur í Kirkjuskarðsrétt,“ segir Anna Magga okkur. Ljóst er að þarna er mikill kvenskörungur á ferð og í fjarska sést þessi harðduglega kona taka rösklega í nefið, eins og bænd- um sæmir. Rækja á hesti Ekki er laust við að það blási smá loft í suma sem hnarreistir sitja mestu gæðingana. Einn þeirra tekur tilhlaup við hrossið og renn- ir sér mjúklega í hnakkinn aftan frá. Sirkus Geira Smart hefði ekki haft roð við þessu. Aðrir eru minna svalir í Laxárdalnum og lítt van- ir reiðmennsku. Þétt er haldið um taumana og einbeitingin við að vera í sambandi við hrossið er algjör, þessir reiðmenn brosa vandræðalega þegar horft er í átt til þeirra. Vanari reiðmenn setja í fagurt tölt þegar þeir finna augu beinast að sér og enn aðrir gefa lausan tauminn og öskra „hííjaaa“ líkt og sigurvissir índíjánar á leið í orrustu. Góðlátlegt grín fer að heyrast æ oftar eftir því sem líður á reiðina og um leið minnkar í pyttl- unni. Pissustoppum fjölgar. „Nei, andskoti er að sjá þig maður, getur þú ekki setið hestinn þinn betur. Að horfa á þig er eins og að upp- lifa rækju sitja hest.“ Og svarið sem þessi fær: „Elsku kúturinn minn, far þú nú að hugsa betur um hross- ið þitt sem er skeifulaust á aftari hægra fæti.“ Ætt f ræðingarnir horfa á hrossin með sínum augum. „Nau, sjáiði þennan jarpa klár þarna? Undan hverjum er hann?“ „Jahá, undan Gammi frá Steinnesi og undan hvaða meri?“ Hestamenn eru með bjútí- skalann á hreinu, beinabyggingu, geðslag, fimi og allt hvað þetta heit- ir. En í augum leikmannsins eru allir hestar fallegir. Kirkjuskarðsrétt Fyrsti áningarstaðurinn er Kirkju- skarðsrétt. Þar mætast gangna- menn með hrossastóðið, hátt í 400 hross og ferðalangar sem lögðu af stað frá Gautsdal eða Strjúgsstöð- um. Þar er áð í allgóðan tíma. Bitið er í samlokur og gott að velgja sér á kakói. Margir bæta kakóið með dreitli úr pela. Enn öðrum finnst kakóið óþarfi og láta pyttluna ganga sín á milli og fjallkóngur- inn tók lagið „Ó María mig langar heim“ og hópur reiðmanna í stíg- 14 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 24. september 2016 „Nau, sjáiði þennan jarpa klár þarna“ Í Skrapatungurétt fékk sonurinn brjóst í vegkantinum á meðan pabbi Kristian hélt í tauminn á hesti Dagnýjar. Hrossið reyndi á meðan að finna sér eitthvað að naga og kippti í tauminn frekar hastarlega. Myndir | Alda Lóa Dagurinn endar á balli í félags- heimilinu og lagið „Mustang Sally“ hljómar út á götu. Hestamenn eru með bjútískalann á hreinu, beinabyggingu, geðslag, fimi og allt hvað þetta heitir. En í augum leikmannsins eru allir hestar fallegir. „Það er nauðsynlegt að mæta á ballið í kvöld, það er hluti af stóðréttarstemningunni,“ segja systurnar í kór, þær Sara og Ragnheiður Kristjánsdætur frá Blönduósi. „Nei, andskoti er að sjá þig maður, getur þú ekki setið hestinn þinn betur. Að horfa á þig er eins og að upplifa rækju sitja hest.“

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.