Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 24.09.2016, Blaðsíða 26

Fréttatíminn - 24.09.2016, Blaðsíða 26
Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands tekst á við vellandi tilfinningar á tónleikum á sunnudag, hárómantíska fimmtu sinfóníu rússneska tónskáldsins Tsjajkovskíj frá 1888. Frá árinu 2009 hafa tæplega hundrað ungmenni komið saman árlega til að leika áhrifamikla og krefjandi tónlist. Fréttatíminn hitti 4 unga tónlistarmenn úr Ungsveitinni og lagði fyrir þá laufléttar spurningar. Guðni Tómasson gudni@frettatiminn.isv Ingibjörg Ragnheiður Linnet Trompet Af hverju valdir þú trompet- inn? Ætlaði að læra á flautu en svo fannst mér trompetinn miklu flottari. Hvað gerir þú annað en að æfa þig? Er í kór og búin að vera í ung- mennaráði Barnaheilla í þrjú ár. Hvað er það besta og versta við trompet? Hljómar svo vel þegar það er vel spilað á hann, en getur verið erfitt að hitta á nótur og hafa úthald í spilamennskuna. Uppáhalds tónlistarmenn? Her- bert von Karajan og Sigur Rós. Ef þú hittir Tsjajkovskíj, að hverju myndir þú spyrja hann? Værir þú til í að semja trompet- konsert? Klara Rosatti Fiðla Af hverju fiðla? Fimm ára var ég á biðlista eftir sellói. Þegar ég sá fyrsta kennarann minn spila á fiðlu, sagði ég bara: „Já!“ Var rosa- lega hrifin. Hvað gerir þú annað en að æfa þig? Teikna, en hef ekki mikinn tíma til þess. Og les alls konar bækur. Það besta og versta við fiðluna? Upplifunin við að spila er mögnuð, en það versta er fiðlubletturinn á hálsinum þar sem fiðlan nuddast við. Er oft spurð hvort ég sé með sogblett. Uppáhalds tónlistarmenn? Hlusta á svo margt, en ætli ég nefni ekki bara The Smiths. Spurning fyrir Tsjajkovskíj? Gæti ég fengið eiginhandaráritun? Hjörtur Páll Eyjólfsson Selló Af hverju selló? Upptaka með Pablo Casals sem ég heyrði þriggja ára, sándið var svo frábært. Hvað gerir þú annað en að æfa þig? Hlusta á tónlist og pæli í henni, hún er aðal. Það besta og versta við sellóið? Hljómurinn er svo ótrúlega falleg- ur, en stórt og fyrirferðarmikið. Uppáhalds tónlistarmenn? Selló- leikarinn Rostropovich og hljóm- sveitarstjórinn Karajan. Spurning fyrir Tsjajkovskíj? Er ekki örugglega bara allt í lagi með þig? Breki Sigurðarson Túba Af hverju túban? Ég byrjaði á alt-horni en var beðinn um að taka túbuna upp í skólahljóm- sveit. Vissi ekkert um hljóðfærið en fílaði það strax. Hvað gerir þú ann- að en að æfa þig? Er í skólanum, kór og var að hætta í sundi. Það besta og versta við túbuna? Hljómar stórkostlega, en það er stundum dálítið mikið um að mað- ur bíði í tónlistinni. Líka of stór, enda er hún heima. Uppáhalds tónlistarmenn? Ekki endilega túbuleikarar. Ég hlusta á margt, núna er það klassískt rokk, til dæmis AC/DC. Spurning fyrir Tsjajkovskíj? Hvernig byrjaðir þú í tónlist? 26 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 24. september 2016 Eitt litið húðflúr getur haft stóra sögu að segja. Listakon- an Alma Mjöll Ólafsdóttir ögrar sjálfri sér og reglum samfélagsins með því að stimpla sig SEXY. „Einn besti vinur minn tattúeraði þetta á mig og fyrst vorum við að djóka með að ég myndi fá mér sex en svo fórum við að tala um sexí og þá fór hjartað mitt að slá hraðar,“ segir Alma Mjöll Ólafsdóttir, nemi á sviðshöfundabraut í Listaháskóla Ísland. Alma fékk sér nýlega húð- flúrið SEXY á upphandlegginn. „Ég fór að spá í það hvort ég gæti raunverulega skrifað á mig sexy því það er svo stórt. Því konur eru skammaðar fyrir allt,“ segir Alma sem er komin með alveg nóg af tvískinnungnum í samfélaginu þegar kemur að útliti kvenna. „Það er kvenlegt að mála sig og það er ákveðin pressa á konur að mála sig en svo eru konur skammaðar ef þær mála sig of mikið því þá eru þær að reyna að vera of sexí. Það er svo flókið að vera kona. Það er allt í lagi að þora að segjast vera sexí.“ Ölmu finnst áhugavert að sjá hvernig konur, sem hafa í gegnum tíðina verið drusluskammaðar eru að ná völdum yfir eigin líkama og ímynd. Konur sem hafa gert út á kynþokka sinn og fengið skömm fyrir. Alma tekur Pamelu Anderson og Ásdísi Rán sem dæmi. „Pamela er allt í einu að ná völdum yfir eig- in ímynd eftir að hafa alltaf verið drusluskömmuð. Eftir það sem sumir kalla „fjórðu bylgju femín- isma“ er verið að nálgast hana á allt öðrum forsendum, sem manneskju en ekki sem heimska druslu eða teiknimyndakarakter.“ „Ég er í raun að ögra sjálfri mér með þessu tattúi. Ég má vera sexí ef ég vil. Það gerir mig ekki að minni listamanni eða vitlausari. Það er alltaf verið að skipta okkur konum upp í hópa því ef þú ert sexí þá getur þú ekki verið klár. Maður heldur að jafnrétti sé náð en svo veit maður ekkert hvaða skref má stíga því allt er svo flókið. „Who the fuck cares“ hvort þú er máluð eða ekki!?“| hh Má vera sexí ef ég vil Konur eru skammaðar fyrir allt, segir Alma Mjöll Ólafsdóttir. Mynd | Rut Hraðaspurningar fyrir Ungsveitina Þau Breki, Hjörtur, Klara og Ingibjörg eru í stórum hópi ungra og upprennandi tónlistarmanna sem koma fram á tónleikum Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands á sunnudag. Norðmaðurinn Eivind Aadland stjórnar flutningi. Myndir | Hari Með 150 nöfn á ísskápnum Ragnheiður Harpa er með óstjórnlegan áhuga á mannanöfnum Sagan af nafninu Óvídá heill- ar Ragnheiði Hörpu. Það voru þrjár konur sem hétu allar Óvídá í Þingeyjarsýslu en fluttu svo allar til Vestur- heims og þá dó nafnið út. „Sú staðreynd að ég heiti Ragnheið- ur Harpa segir þér hvers kyns ég er og frá hvaða landi ég er. Mamma og pabbi völdu frekar sterkt ís- lensk nafn alveg út í loftið, örugg- lega vegna þess að þau voru í námi í Englandi þegar ég var nefnd. Ragnheiður þýðir björt sem goðin og Harpa er annaðhvort hljóðfærið eða mánuðurinn.“ Mannfræðingurinn Ragnheiður Harpa Haraldsdóttir heldur fyrir- lestur í dag um mannanöfn í Há- skóla Íslands en hún hefur alltaf haft óbilandi áhuga á nöfnum. „Ég stofnaði áhugamannafélag um nöfn á facebook og við erum þar um tutt- ugu manns sem deilum þar hug- myndum okkar um nöfn. Þetta er í raun mjög fyndið áhugamál því þú ert að hafa skoðun á einhverju sem er oftast mjög persónulegt fyr- ir fólk. Áhugi minn á nöfnum snýst samt fyrst og fremst um merkingu þeirra fyrir einstaklinginn. Margir draga miklar ályktanir um einstak- linginn og jafnvel foreldra hans líka út frá nafninu. Sérstaklega ef foreldrarnir hafa gefið börnunum sínum óhefðbundið nafn, eins og Bambi. Fólk á það líka til að sam- einast yfir nöfnum, t.d. er til félag kvenna sem heita Ragnheiður,“ segir Ragnheiður sem á erfitt með að nefna ákveðin nöfn aðspurð um falleg eða ljót nöfn. Hún viður- kennir þó að sumar ákvarðanir mannanafnanefndar hafi komið sér á óvart. „Ég á ekki börn sjálf en ef ég skyldi einhvern tímann eignast börn þá verður það algjör hausverk- ur og ég er með 150 nöfn á lista upp á ísskáp með öllum heimsins falleg- ustu nöfnum.“ | hh Rafhitun Ryðfríir neysluvatnshitarar, hitöld (element), hitastillar, hitastýringar, rafhitarar til húshitunar og flest annað til rafhitunar. Við hjá Rafhitun erum sérfræðingar í öllu sem við kemur rafhitun. Við bjóðum einungis úrvals tæki sem hafa sannað sig með áralangri reynslu. Rafhitarar fyrir heita potta Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði • Sími: 565 3265 • ww.rafhitun.is íslensk framleiðsla í 25 ár Hiti í bústaðinn

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.