Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 24.09.2016, Blaðsíða 19

Fréttatíminn - 24.09.2016, Blaðsíða 19
| 19FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 23. september 2016 dagsleikinn hefur verið okkur hug- leikinn,“ segir Ragnar Ísleifur og Bjarni Jónsson leikstjóri tekur undir og bendir á að við séum allt of gjörn á að horfa á ævisögur sem röð há- punkta sem hægt sé að raða eins og perlum á perlufesti, en lífið sé yfirleitt með nokkuð öðrum hætti og kannski fábreyttara. „Í rauninni eyðum við mestum tíma ævinnar í hversdagsleikann, sem er auðvitað partur af ævi okkar og tekur upp alveg ótrúlegan tíma. Búðarferðir og svefn, má nefna sem dæmi,“ segir Bjarni og Friðge- ir bætir við að stundum þurfi fólk líka að láta flytja þvottavél á milli húsa. Vissulega er það viðburður sem getur bæði boðið upp á drama eða kómík. Fyrir þá sem hafa áhyggjur af gráma hversdagsleikans í eigin lífi hafa þeir í Kriðpleir jákvæðar frétt- ir að færa. „Okkar kenning er sú,“ segir Árni Vilhjálmsson, „að ævi allra sé áhugaverð. Það sé hægt að gera áhugaverða ævisögu um alla.“ Það sama hlýtur þá líka að gilda um „einhvern“, nokkurs konar sam- suðuhugmynd um manneskju. Hugmyndavinna um skrítið líf Á Tjarnargötunni hanga á veggj- um alls konar línuteikningar og orðasúpur sem gefa dularfullar vís- bendingar um það hvert Kriðple- ir er að reyna að komast áfram í Ævisögu einhvers. „Ef við vissum það hvernig verkin okkar verða til, þá værum við búnir með það,“ segir Friðgeir um glímuna við að smíða nýtt verk. Hinir hlæja, þeir hlæja nokkuð mikið þessir menn. Árni segir þá félaga líka tala mik- ið saman um efniviðinn, skrifa ýmislegt niður og drekka mikið kaffi milli þess sem töflufundir eru haldnir þar sem Friðgeir heldur yfirleitt á tússpennanum. „Síðan þegar við föttum að við erum bún- ir að tala mikið og lítið er búið að gerast þá tökum við kipp þegar ein- hver segir: „Jæja, núna þurfum við að fara að búa til eitthvað atriði eða eitthvað. Við getum ekki bara setið hérna og drukkið kaffi.““ Í tengslum við nýju sýninguna hafa þeir félagar líka sett sér mark- mið um að taka viðtöl við hundrað Íslendinga um atriði úr lífi þeirra. „Ætlunin er þá að safna efni sem væri hægt að nota í ævisögu hvers og eins þeirra einstaklinga og sýn- Svona vill Friðgeir að Kriðpleir beygist: Kriðpleir Kriðpleir Kriðpleiri Kriðpleirs Svona vilja margir beygja Kriðpleir: Kriðpleir Kriðplei Kriðplei Kriðpleirs „Kannski verður fólk bara að ráða því.“ – Friðgeir Einarsson. Í rannsóknum sínum fyrir Ævisögu einhvers tekur Kriðpleir viðtöl við 100 einstaklinga, og spyr m.a. þessara spurninga: Hvert var uppáhalds leikfangið þitt í æsku? Hvað er það merkilegasta sem þú hefur gert eða upplifað á þinni ævi? Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? Hver er leiðinlegasta vinna sem þú hefur unnið? Hver er mikilvægasti hlutur sem þú átt? Hvað gerist þegar maður deyr? Hvað er það síðasta sem þú gerir á kvöldin? Ef þú vilt taka þátt í að skapa Ævisögu einhvers máttu gjarnan senda þín svör, eða hvað annað sem tengist þinni ævi, á kridpleir@gmail.com. Á undirbúningstímabilinu iðka félagarnir í Kriðpleiri bæði andlegar og líkamlegar æfingar. ingin verður því einhvers konar samanlögð niðurstaða úr því. Við erum að hitta fólk og hringja í fólk sem býr á Íslandi til að ná þessum viðtölum. Það hefur nú þegar gef- ið okkur eitt og annað áhugavert,“ segir Friðgeir. „Það er bara svo áhugavert að tala við fólk og heyra hvað það hef- ur að segja,“ segir Ragnar. „Einfald- ar spurningar geta leitt ýmislegt í ljós, eins og til dæmis „hvert færðu póstinn þinn sendan?“ Þá fer fólk bara oft á heilmikið flug og þá kem- ur bara í ljós að líf allra er frekar áhugavert og svona furðulegt ein- hvern veginn. Kannski er maður bara hættur að taka eftir því hvað líf manns er skrítið og undarlegt. Svo koma auðvitað inn í þetta gleði og sorgir, en það er ekki endilega það sem við viljum fjalla mest um.“ Snúin verkefni – sérstakt leikhús Það er ekkert hlaupið að því að lýsa sýningum hjá Kriðpleir fyrir þeim sem ekki hafa séð þær. Sýn- ingarnar eru orðnar fjórar frá því að hópurinn hóf göngu sína árið 2012. Á heimasíðu hópsins segir að hann taki „að sér að miðla yfirgripsmiklu efni á skýran og einfaldan hátt, hversu vonlaust sem verkefnið er.“ Því hefur hópurinn gripið til fyr- irlestrarformsins og með hjálp þess tæklað eitt umfjöllunarefni í hverri sýningu. Í forgrunni eru alltaf þess- ir þrír menn: Friðgeir, Ragnar og Ísleifur. „Þetta eru samt kannski ekki alveg við í þessum verkum,“ seg- ir Friðgeir þegar þeir félagar eru beðnir um að lýsa nálgun sinni. „Þetta eru ýktari útgáfur af okk- ur. Friðgeir virðist til dæmis vera leiðinlegri en hann er og ég vit- lausari en ég er í raun og veru,“ bendir Árni á og Ragnar bætir við að í verkunum sé hann þá líklega meðvirkari en raunin er. Samskipti einstaklinganna innan hópsins eru líka að einhverju leyti til umfjöllunar og einhvers konar sjálfshjálparhugsun skýtur oft upp kolli. Þeir félagar benda samt á að sjálfshjálp eða sjálfsstyrking sé ekki megin þema í vinnu þeirra. „Von- andi náum við samt stundum að hvetja áhorfandann til umhugsun- ar um eigið líf,“ segir Friðgeir. Sjónvarpssería á sviði Leikstjórinn Bjarni Jónsson segir að í grunninn snúist vinna hópsins að einhverju leyti um hugmyndir okk- ar um persónur í leikhúsi, Kriðpleir er þannig að leika sér með þær hug- myndir hvað gerist þegar fólk set- ur sig á svið og í hve miklum mæli raunveruleikinn blandast þar inn í. Allt í lífi þeirra félaga geti þannig orðið að efni og mýmörg dæmi úr fyrri verkum sýni það hvernig smæstu atvik í lífi þeirra leiti inn í verkin. „Stundum hugsum við þetta nánast eins og seríu í leikhúsi, bara nánast eins og sjónvarpsseríu. Í þessu tilfelli er serían með þrem- ur vinum sem eru alltaf að hittast á sviði og við, áhorfendur, erum alltaf að upplifa eitthvað nýtt með þeim. Þess vegna verður þetta stundum dálítið greinandi í efnistökum og býður upp á pælingar um sjálfshjálp eða betrun.“ Árni og Ragnar taka undir að auðvitað gagnist vinnan í listinni einstaklingunum sem standa á sviðinu.„Til dæmis með því að segja stundum: „Sjáið hvað við erum nú miklir kjánar“ þá verður maður kannski sáttari við kjánann í sjálf- um sér.“ „Auðvitað vonar maður að það sem maður gerir sem listamaður geti mögulega gagnast öðrum,“ heldur Ragnar áfram. „Ég á við að ef maður þrífur gólf þá mögulega mun einhver ganga á hreinu gólfi í staðinn fyrir skítugu.“ Friðgeir samsinnir þessu og bendir aftur á að persónurnar á sviðinu séu ýkt- ari útgáfur af þeim sjálfum. „Þess vegna hafa þeir metnað í að gera ekki bara eitthvað fyrir einhvern, heldur breyta heiminum.“ Glíman heldur áfram. SÓLTÚN KYNNIR öRYggIS- og þjÓNuSTuíbÚðIR Um íbúðirnar Nýjar og bjartar tveggja til fjögurra herbergja íbúðir í fimm hæða húsi, að meðaltali um 95 m2 að stærð, til sölu fyrir 60 ára og eldri. Yfirbyggðar suðursvalir. Stæði í upphitaðri bílageymslu, auk þess sem geymsla fylgir öllum íbúðum. íbúðirnar eru staðsettar í Sóltúni 1–3, beint á móti Sóltúni hjúkrunarheimili. Frábær staðsetning miðsvæðis og stutt í alla þjónustu í nágrenninu. Kynntu þér íbúðirnar, verðskrá og aðrar upplýsingar á www.soltunibudir.is eða hafðu samband við okkur og bókaðu fund. Sóltún 1 ehf | Laugavegi 182 | 105 Reykjavík Sími 563 1440 | soltunibudir@soltunibudir.is | www.soltunibudir.is Po RT h ön nu n Til sölu fyrir 60 ára og eldri í Sóltúni 1-3, Reykjavík. Verð frá kr. 39.800.000. íbúðirnar verða afhentar vorið 2017

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.