Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 24.09.2016, Blaðsíða 47

Fréttatíminn - 24.09.2016, Blaðsíða 47
Farsæl reynsla af DynIce togtaugum í heilan áratug „Sumir töldu það hreina firru að hengja rándýr veiðarfæri aftan í einhverja spotta.“ Unnið í samstarfi við Hampiðjuna Í þessum mánuði eru tíu ár liðin frá því að Guðmundur Huginn Guðmundsson, skipstjóri á Hugin VE 55, tók 2x730 metra af 36 mm DynIce togtaugum um borð í skipið og reyndi þær í yfir­ borðsveiði á makríl og síld. Hamp­ iðjan lagði til togtaugarnar og var Guðmundur Huginn með þær um borð fram á vorið 2007. Þá keypti hann heilan gang af DynIce tog­ taugum, 2x2000 metra langar. „Það er vert að minnast þess að við fengum fyrst að reyna togtaugarnar um borð í vorleið­ angri Árna Friðrikssonar RE í maí 2006. Þar voru þær í raun próf­ aðar í fyrsta skipti hér við land. Það gerðum við með því að festa taugarnar ofan á togvíra skipsins til að kanna hvort það væri hægt að nota togtaugar án þess að taka áður allan togvírinn af vindun­ um. Þetta gekk eftir án þess að taugarnar eða vírinn skemmdust við notkunina,“ segir Guðmundur Gunnarsson, þróunar stjóri veiðarfæra hjá Hampiðjunni. Guðmundur segir að það hafi verið að undirlagi Guðmundar Bjarnasonar, skipstjóra á Árna Friðrikssyni, og Hjálmars heitins Vilhjálmssonar, fiskifræðings hjá Hafrannsóknastofnun, að leyfi fékkst til að prófa taugarnar í vor­ leiðangri skipsins.“ Styrkleikinn kom á óvart Guðmundur Huginn man vel eftir þessum tímamótum. „Okkur líkaði strax mjög vel við togtaugarn­ ar og léttleiki þeirra og styrk­ leiki kom okkur verulega á óvart. Það voru ekki allir sem höfðu trú á togtaugunum og sumir töldu það hreina firru að hengja rándýr veiðarfæri aftan í einhverja spotta og treysta þeim til að slitna ekki og hverfa með verðmætunum í djúpið,“ segir Guðmundur Huginn sem upplýsir að aðeins einu sinni á þessum tíu árum hafi togtaug slitnað hjá Hugin VE. „Endingin á togtaugunum virðist vera einstaklega mikil og við erum t.d. bara einu sinni búnir að skipta um taugar á þessum tíu árum. Það sá ekki á taugunum en við þorðum ekki annað en að skipta. Um leið fékk ég sömuleiðis 2 mm sverari taugar og við eigum nú taugar sem við getum notað í grandara næstu áratugina. Þetta er ein­ faldara með vírana. Þeir ryðga og maður sér strax hvenær skipta á þeim út. Líftími víra er líka miklu styttri en togtauganna.“ Tog­ taugarnar um borð í Hugin VE eru mest notaðar í yfirborðsveiði og Guðmundur Huginn segir ekki óalgengt að um 370 metrar af taugum séu úti á slíkum veið­ um. „Við höfum líka notað DynIce togtaugarnar á djúpsjávar­ veiðum þegar verið er að veiða kolmunna og þá eru 1100 til 1650 metrar af taugum í sjó hverju sinni,“ segir Guðmundur Huginn en að sögn hans var það önnur bylting í veiðarfæratækninni að fá DynIce höfuðlínukapalinn til að nota með taugunum. „Þetta smellpassar saman því floteig­ inleikinn er sá sami. Við vorum alltaf í bölvuðum vandræðum með vírkapalinn og þá sérstaklega ef beygt var með trollið. Við lentum oft í því á kolmunnaveiðunum að vírkapallinn sökk í beygjum undir taugarnar þannig að hætta var á skemmdum. Þetta er ekki vanda­ mál eftir að við fengum DynIce höfuðlínukapalinn. Það sér ekki á honum og endingin virðist vera margföld ef miðað er við vírakap­ alinn sem endist að hámarki í tvö ár.“ Meiri olíusparnaður Að sögn Guðmundar Hugins er öll vinna um borð miklu léttari og hreinlegri eftir að togtaugarnar leystu togvírana af hólmi. „Okkur reiknast til að taugarnar séu 22 tonnum léttari en sambærilegt magn af vírum. Þetta hefur mikil áhrif um borð í skipum þar sem spilin eru staðsett ofarlega og aftarlega á skipinu. Við fundum það hjá okkur að skipið gengur hraðar en mestu áhrifin eru hjá mjórri skipum en okkar, sem er 14 metra breitt. Skipin verða stöð­ ugri við það að þyngdarpunkt­ urinn færist neðar og þau verða hraðskreiðari. Þá er ótalinn sá kostur að hægt er að nota minni hlera en með sama árangri og þá stærri. Það skilar sér ótvírætt í minni eldsneytiseyðslu því það eru hlerarnir sem skapa mestu mótstöðuna í sjónum,“ segir Guð­ mundur Huginn Guðmundsson en hann telur að endingartími DynIce togtauganna sé að lágmarki fimm ár og þegar þeim sé skipt út, með réttu eða röngu, þá eigi menn efni í grandara til eilífðar. Togvírar Hér má sjá DynIce togtaugar í notkun. Mikil ending Guðmundur Huginn Guðmundsson, skipstjóri Hugins VE, segir endinguna á togtaugunum vera einstaklega mikla. 10 ár Fjölveiðiskipið Huginn VE frá Vestmanneyjum hefur notað DynIce togtaugarnar í áratug með frábærum árangri. „Það er vert að minnast þess að við fengum fyrst að reyna togtaugarnar um borð í vorleiðangri Árna Friðrikssonar RE í maí 2006.“ Guðmundur Gunnarsson Þróunarstjóri veiðarfæra hjá Hampiðjunni FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2016 7 KYNNINGAR SJÁVARÚTVEGUR

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.