Fréttatíminn - 24.09.2016, Side 47
Farsæl reynsla af DynIce
togtaugum í heilan áratug
„Sumir töldu það hreina firru að hengja rándýr veiðarfæri aftan í einhverja spotta.“
Unnið í samstarfi við Hampiðjuna
Í þessum mánuði eru tíu ár liðin frá því að Guðmundur Huginn Guðmundsson, skipstjóri á Hugin VE 55, tók 2x730 metra
af 36 mm DynIce togtaugum um
borð í skipið og reyndi þær í yfir
borðsveiði á makríl og síld. Hamp
iðjan lagði til togtaugarnar og var
Guðmundur Huginn með þær um
borð fram á vorið 2007. Þá keypti
hann heilan gang af DynIce tog
taugum, 2x2000 metra langar.
„Það er vert að minnast þess
að við fengum fyrst að reyna
togtaugarnar um borð í vorleið
angri Árna Friðrikssonar RE í maí
2006. Þar voru þær í raun próf
aðar í fyrsta skipti hér við land.
Það gerðum við með því að festa
taugarnar ofan á togvíra skipsins
til að kanna hvort það væri hægt
að nota togtaugar án þess að taka
áður allan togvírinn af vindun
um. Þetta gekk eftir án þess að
taugarnar eða vírinn skemmdust
við notkunina,“ segir Guðmundur
Gunnarsson, þróunar stjóri
veiðarfæra hjá Hampiðjunni.
Guðmundur segir að það hafi
verið að undirlagi Guðmundar
Bjarnasonar, skipstjóra á Árna
Friðrikssyni, og Hjálmars heitins
Vilhjálmssonar, fiskifræðings hjá
Hafrannsóknastofnun, að leyfi
fékkst til að prófa taugarnar í vor
leiðangri skipsins.“
Styrkleikinn kom á óvart
Guðmundur Huginn man vel eftir
þessum tímamótum. „Okkur líkaði
strax mjög vel við togtaugarn
ar og léttleiki þeirra og styrk
leiki kom okkur verulega á óvart.
Það voru ekki allir sem höfðu trú
á togtaugunum og sumir töldu
það hreina firru að hengja rándýr
veiðarfæri aftan í einhverja spotta
og treysta þeim til að slitna ekki
og hverfa með verðmætunum í
djúpið,“ segir Guðmundur Huginn
sem upplýsir að aðeins einu sinni
á þessum tíu árum hafi togtaug
slitnað hjá Hugin VE. „Endingin
á togtaugunum virðist vera
einstaklega mikil og við erum t.d.
bara einu sinni búnir að skipta um
taugar á þessum tíu árum. Það sá
ekki á taugunum en við þorðum
ekki annað en að skipta. Um leið
fékk ég sömuleiðis 2 mm sverari
taugar og við eigum nú taugar
sem við getum notað í grandara
næstu áratugina. Þetta er ein
faldara með vírana. Þeir ryðga og
maður sér strax hvenær skipta á
þeim út. Líftími víra er líka miklu
styttri en togtauganna.“ Tog
taugarnar um borð í Hugin VE eru
mest notaðar í yfirborðsveiði og
Guðmundur Huginn segir ekki
óalgengt að um 370 metrar af
taugum séu úti á slíkum veið
um. „Við höfum líka notað DynIce
togtaugarnar á djúpsjávar
veiðum þegar verið er að veiða
kolmunna og þá eru 1100 til 1650
metrar af taugum í sjó hverju
sinni,“ segir Guðmundur Huginn
en að sögn hans var það önnur
bylting í veiðarfæratækninni að
fá DynIce höfuðlínukapalinn til
að nota með taugunum. „Þetta
smellpassar saman því floteig
inleikinn er sá sami. Við vorum
alltaf í bölvuðum vandræðum með
vírkapalinn og þá sérstaklega ef
beygt var með trollið. Við lentum
oft í því á kolmunnaveiðunum að
vírkapallinn sökk í beygjum undir
taugarnar þannig að hætta var á
skemmdum. Þetta er ekki vanda
mál eftir að við fengum DynIce
höfuðlínukapalinn. Það sér ekki
á honum og endingin virðist vera
margföld ef miðað er við vírakap
alinn sem endist að hámarki í tvö
ár.“
Meiri olíusparnaður
Að sögn Guðmundar Hugins er
öll vinna um borð miklu léttari og
hreinlegri eftir að togtaugarnar
leystu togvírana af hólmi. „Okkur
reiknast til að taugarnar séu 22
tonnum léttari en sambærilegt
magn af vírum. Þetta hefur mikil
áhrif um borð í skipum þar sem
spilin eru staðsett ofarlega og
aftarlega á skipinu. Við fundum
það hjá okkur að skipið gengur
hraðar en mestu áhrifin eru hjá
mjórri skipum en okkar, sem er 14
metra breitt. Skipin verða stöð
ugri við það að þyngdarpunkt
urinn færist neðar og þau verða
hraðskreiðari. Þá er ótalinn sá
kostur að hægt er að nota minni
hlera en með sama árangri og þá
stærri. Það skilar sér ótvírætt í
minni eldsneytiseyðslu því það
eru hlerarnir sem skapa mestu
mótstöðuna í sjónum,“ segir Guð
mundur Huginn Guðmundsson en
hann telur að endingartími DynIce
togtauganna sé að lágmarki fimm
ár og þegar þeim sé skipt út, með
réttu eða röngu, þá eigi menn efni
í grandara til eilífðar.
Togvírar
Hér má sjá DynIce togtaugar í notkun.
Mikil ending Guðmundur Huginn Guðmundsson, skipstjóri Hugins VE, segir endinguna á
togtaugunum vera einstaklega mikla.
10 ár Fjölveiðiskipið Huginn VE frá Vestmanneyjum hefur notað DynIce togtaugarnar í áratug með frábærum árangri.
„Það er vert að
minnast þess
að við fengum fyrst að
reyna togtaugarnar
um borð í vorleiðangri
Árna Friðrikssonar RE
í maí 2006.“
Guðmundur Gunnarsson
Þróunarstjóri veiðarfæra hjá
Hampiðjunni
FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2016 7 KYNNINGAR SJÁVARÚTVEGUR