Fréttatíminn - 07.10.2016, Blaðsíða 1
Nokkrir erfingjar hjónanna
Ingvars Helgasonar og Sig-
ríðar Guðmundsdóttur
hafa boðist til þess
að borga sjálfir fyrir
rannsókn ráðgjafafyr-
irtækisins Kroll á
afdrifum týndra
sjóða foreldra
sinna erlendis.
Skiptastjórinn
hefur lagst gegn
því að gefa fyrir-
tækinu heimild
til þess, samkvæmt
upplýsingum Frétta-
tímans.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
Dómsmál erfingjanna gegn Guð-
mundi Ágústi Ingvarssyni og Júl-
íusi Vífli Ingvarssyni, fyrrverandi
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins, verður þingfest í Héraðs-
dómi Reykjavíkur dag. Bræðurn-
ir höfnuðu óháðri rannsókn á
sjóðunum á vegum ráðgjafa-
fyrirtækisins Kroll sem hef-
ur meðal annars starfað
fyrir þrotabú bankanna eft-
ir hrun og sérhæfir sig í að
elta uppi fjármuni. Kostn-
aður vegna rannsóknar-
innar nemur um fimm
milljónum.
Rætur málsins má rekja
til Panamaskjalanna þar
sem upplýst var að Júlíus
Vífill hefði stofnað aflandsfélag árið
2014. Það var Kastljós sem greindi
fyrst frá tilurð félagsins en gögn
úr grunni Mossack Fonseca sýndu
að í ársbyrjun 2014 stofnaði Júlíus
Vífill félagið Silwood Foundation á
Panama, og greiddi fyrir um 200
þúsund krónur fyrir.
Rík áhersla var lögð á að nafn
Júlíusar Vífils yrði ekki í forgrunni
félagsins, hlutabréf þess stíluð á
handhafa en ekki nafn hans.
Töldu erfingjar að þarna væri
hugsanlega kominn varasjóður
Ingvars Helgasonar sem lést árið
1999 og ekkja hans leitaði ítrekað
að árangurslaust. Talið er að sjóð-
urinn nemi tveimur milljörðum,
hið minnsta.
Nokkrir erfingjar hjónanna hafa
boðist til þess að greiða sjálfir fyrir
rannsóknina að því gefnu að þeir
fái upphæðina endurgreidda vinn-
ist dómsmálið. Samkvæmt upplýs-
ingum Sögu Ýrar Jónsdóttur, lög-
manns hluta erfingjanna, var ekki
fallist á að það af hálfu skiptastjóra
dánarbúsins, Láru V. Júlíusdóttur.
Segir Saga að ákvörðunin hafi kom-
ið erfingjunum í opna skjöldu, enda
viðbúið að dómsmálið taki mánuði,
jafnvel ár. Óttast er að hugsanan-
legir fjármunir kunni að glatast á
þeim tíma.
Lára vildi ekki tjá sig um málið
við Fréttatímann en sagði dóms-
málið í dag aðeins einn anga af
nokkrum í málinu.
frettatiminn.is
ritstjorn@frettatiminn.is
auglysingar@frettatiminn.is
61. tölublað
7. árgangur
Föstudagur 07.10.2016
Við verðum að tala um sjálfsvíg
Jóhanna María Eyjólfsdóttir missti
manninn sinn 24 830
KRINGLUNNI ISTORE.ISSérverslun með Apple vörur
Hausttilboð á
Phantom 4.
Frá 199.990 kr.
iStore Kringlunni er
viðurkenndur sölu- og
dreifingaraðili DJI á Íslandi
STÓRÞÆTTIRNIR
VIKINGS Í TÖKUM
Á ÍSLANDI
STOPPUÐ Á
DJAMMINU
TIL AÐ VEITA
RÁÐ UM ÞRIF
FÖSTUDAGUR
07.10.16
Mynd | Rut
SÓLRÚN
DIEGO
SÉRKAFLI UM JÓLAHLAÐBORÐ
JÓN GUNNAR
RIFJAR UPP GAMLA
TAKTA AF ASTRÓ
OG SKUGGABARNUM
Stríðið gegn
konunum
Kosningabarátta í
afturhaldslandinu
Anna María Þórðardóttir, systir þroskaskertrar stúlku sem varð fyrir hrottalegu kynferðisofbeldi sem barn, spyr sig hvort ofbeldismaðurinn hafi fengið vægari
dóm, þar sem fórnarlambið var fatlað. Fjölskyldan sá ekki dóminn yfir manninum fyrr en fyrir nokkrum dögum. Mynd | Heiðar Kristjánsson
Eigendur 17
fyrirtækja
efnuðust um
38 milljarða
Ofsagróði
útgerðarinnar
í fyrra
KOMIÐ
Í VERSLANIR
Guli miðinn styrkir Bleiku slaufuna.
200 kr. af hverju bleiku glasi renna
til styrktar Bleiku slaufunni.
SMÁRALIND
- DÚNÚLPUR
- KÁPUR
- DÚNVESTI
Sáu ekki
dóminn fyrr
en 30 árum
seinna
Nokkrir erfingjar vilja borga
sjálfir fyrir Kroll-rannsókn