Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 07.10.2016, Blaðsíða 25

Fréttatíminn - 07.10.2016, Blaðsíða 25
| 25FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 7. október 2016 Tim Kaine og Mike Pence við upphaf sjónvarpskappræðna varaforsetaefnanna. Stjórnmálaskýrendur eru á einu máli að Pence hafi staðið sig betur í viðureign sinni við Kaine en Trump gegn Clinton. Heimildir CNN herma að frekar en að gleðjast yfir því að Pence hafi bætt eitthvað af þeim skaða sem Trump olli í fyrstu kappræðum hafi Trump tekið þessum fréttum illa. bandarískir kjósendur hafa í ár jafn lítinn áhuga á varaforsetaembættinu og raun ber vitni. Sérstaklega þegar haft er í huga að töluverðu máli get- ur skipt hvort Kaine eða Pence verð- ur næsti varaforseti Bandaríkjanna. Valdaminnsta embætti sögunnar Mikilvægasta hlutverk varaforseta er enda að vera til taks ef forseti Banda- ríkjanna fellur frá eða segir af sér, nokkuð sem hefur gerst níu sinnum í sögunni. Í ljósi þess að Trump yrði elsti forsetinn í sögu Bandaríkjanna næði hann kjöri, og Hillary sá næst elsti, er þetta hlutverk varaforsetans nú mikilvægt. Varaforsetinn er einnig forseti öldungadeildarinnar og hann getur greitt oddaatkvæði þar ef fylkingar eru að öðrum kosti jafnar. Fyrir utan þetta eru formleg völd varaforseta engin og lýsti John Adams, fyrsti varaforseti Bandaríkjanna, emb- ættinu sem „valdaminnsta embætti sem mannkyninu hefði nokkru sinni dottið í hug að skapa.“ Valdameiri varaforsetar Á síðustu öld tók hlutverk varafor- setaembættisins hins vegar að breyt- ast. Samhliða því sem valdsvið for- setans hefur stækkað og skrifstofa forsetans þanist út frá því að vera í raun lítið meira en einn ritari á ofan- verðri nítjándu öld, í umfangsmik- ið embættismannakerfi í dag, hefur embætti varaforsetans vaxið. For- setaframbjóðendur sem hafa litla reynslu af gangverki Washington hafa því valið varaforsetaefni sem gætu aðstoðað þá við að koma hlut- um í verk. Walter Mondale, varafor- seti Jimmy Carter, og George H.W. Bush, varaforseti Ronald Reagan, eru góð dæmi, innanbúðarmenn í þinginu eða stjórnkerfinu, „Was- hington insiders“, sem gátu bætt upp reynsluleysi forsetans. Í dag er varaforsetinn nánasti samstarfsmaður og ráðgjafi for- setans í Hvíta húsinu. Hann getur komið fram fyrir hönd forsetans á alþjóðlegum vettvangi, er mik- ilvægasti tengiliður forsetans við þingið og hann stýrir fjölmörgum nefndum sem heyra undir forseta- embættið. Stærstu breytingarnar á embættinu hafa hins vegar orðið síðan um aldamót, því sá sem mest gerði til að færa út valdsvið vara- forsetaembættisins var Dick Chen- ey, varaforseti George W. Bush. Í tíð Cheney, sem margir vildu meina að réði meira og minna öllu því sem hann vildi, varð varaforsetaemb- ættið að nokkurskonar aðstoðarfor- setaembætti. Æ róttækari varaforsetaefni Það er margt sem bendir til þess að Mike Pence yrði valdamesti varafor- setinn í sögu Bandaríkjanna, yrði Donald Trump kjörinn forseti. Don- ald Trump Jr., elsti sonur Trump, sem sá um leitina að varaforsetaefni föður síns, á að hafa lofað væntan- legum kandídötum að þeir myndu „hafa yfirumsjón með bæði innan- ríkis og utanríkismálum“, meðan Trump myndi einbeita sér að því að vera talsmaður Bandaríkjanna á alþjóðavettvangi. Það er því skiljanlegt að margir Repúblikanar, sem hafa efasemdir um Donald Trump, stjórnleysi hans og stefnumál sem eru oft á tíðum á skjön við það sem flokkurinn hefur til þessa fylgt, svo ekki sé talað um útistöður hans við flokksforystuna, hafi huggað sig við að Pence hafi orðið fyrir valinu. Pence er ekki bara góður og gegn flokksmaður sem hefur sjaldan gengið gegn vilja flokksins, heldur hefur hann verið í miklu uppáhaldi hjá Teboðshreyf- ingunni. Ólíkt mörgum leiðtogum flokksins sem hafa vakið reiði gras- rótarinnar fyrir minnstu viðleitni til að leita málamiðlana við Obama, hefur Pence fengið hrós fyrir að gefa ekkert eftir. Innmúraður ofstækismaður Líklega má halda því fram að Pence sé hægrisinnaðasta varaforsetaefni í sögu Bandaríkjanna. Fyrir kosn- ingarnar 2012 sýndi tölfræðigúrúinn Nate Silver fram á að væru atkvæða- greiðslur varaforsetaefnis Rom- ney, Payl Ryan, á Bandaríkjaþingi bornar saman við atkvæðagreiðslur annarra varaforsetaefna sem hefðu setið á þingi frá 1900, kæmi í ljós að hann væri áberandi íhaldssam- astur. Silver benti enn fremur á að varaforsetaefni Repúblikana virtust hafa færst til hægri síðustu áratugi. Þannig væri Ryan hægra megin við Dick Cheney, sem hefði verið hægra megin við Dan Quayle. Þetta mynstur hefur haldið áfram, því Pence er enn íhaldssam- ari en Ryan. Það sem meira er: Með- an Pence sat á Bandaríkjaþingi var hann ýmist einn af allra íhaldssöm- ustu þingmönnum flokksins eða sá íhaldssamasti. Ofstækisfólk á borð við Michele Bachmann og Todd Aik- in, sem varð frægur í kosningunum 2014 fyrir að velta því fyrir sér hvað væru raunverulegar nauðganir, „leg- itimate rape“ og hvað ekki, hafa t.d. verið með frjálslyndari viðhorf en Pence. Það ætti ekki að koma á óvart að varaforsetaefni Repúblikanaflokks- ins í ár sé hægrisinnaðra en vara- forsetaefni flokksins fjórum árum fyrr, enda hefur flokkurinn færst æ lengra til hægri síðustu ár, og fulltrúar hægri jaðarsins í vaxandi mæli tekið yfir forystuna. Á meðan Trump er draumakandídat rasista og jaðarhreyfinga á hægrivængn- um er Pence draumakandídat hefðbundnari róttæklinga í grasrót flokksins, teboðshreyfingarinnar og sótsvartasta íhaldsins. Blómabúðadagar 6.-9. október 2016 Líttu við í næstu blómabúð. Fjölbreytt úrval talandi blóma á frábæru verði. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.