Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 07.10.2016, Síða 1

Fréttatíminn - 07.10.2016, Síða 1
Nokkrir erfingjar hjónanna Ingvars Helgasonar og Sig- ríðar Guðmundsdóttur hafa boðist til þess að borga sjálfir fyrir rannsókn ráðgjafafyr- irtækisins Kroll á afdrifum týndra sjóða foreldra sinna erlendis. Skiptastjórinn hefur lagst gegn því að gefa fyrir- tækinu heimild til þess, samkvæmt upplýsingum Frétta- tímans. Valur Grettisson valur@frettatiminn.is Dómsmál erfingjanna gegn Guð- mundi Ágústi Ingvarssyni og Júl- íusi Vífli Ingvarssyni, fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks- ins, verður þingfest í Héraðs- dómi Reykjavíkur dag. Bræðurn- ir höfnuðu óháðri rannsókn á sjóðunum á vegum ráðgjafa- fyrirtækisins Kroll sem hef- ur meðal annars starfað fyrir þrotabú bankanna eft- ir hrun og sérhæfir sig í að elta uppi fjármuni. Kostn- aður vegna rannsóknar- innar nemur um fimm milljónum. Rætur málsins má rekja til Panamaskjalanna þar sem upplýst var að Júlíus Vífill hefði stofnað aflandsfélag árið 2014. Það var Kastljós sem greindi fyrst frá tilurð félagsins en gögn úr grunni Mossack Fonseca sýndu að í ársbyrjun 2014 stofnaði Júlíus Vífill félagið Silwood Foundation á Panama, og greiddi fyrir um 200 þúsund krónur fyrir. Rík áhersla var lögð á að nafn Júlíusar Vífils yrði ekki í forgrunni félagsins, hlutabréf þess stíluð á handhafa en ekki nafn hans. Töldu erfingjar að þarna væri hugsanlega kominn varasjóður Ingvars Helgasonar sem lést árið 1999 og ekkja hans leitaði ítrekað að árangurslaust. Talið er að sjóð- urinn nemi tveimur milljörðum, hið minnsta. Nokkrir erfingjar hjónanna hafa boðist til þess að greiða sjálfir fyrir rannsóknina að því gefnu að þeir fái upphæðina endurgreidda vinn- ist dómsmálið. Samkvæmt upplýs- ingum Sögu Ýrar Jónsdóttur, lög- manns hluta erfingjanna, var ekki fallist á að það af hálfu skiptastjóra dánarbúsins, Láru V. Júlíusdóttur. Segir Saga að ákvörðunin hafi kom- ið erfingjunum í opna skjöldu, enda viðbúið að dómsmálið taki mánuði, jafnvel ár. Óttast er að hugsanan- legir fjármunir kunni að glatast á þeim tíma. Lára vildi ekki tjá sig um málið við Fréttatímann en sagði dóms- málið í dag aðeins einn anga af nokkrum í málinu. frettatiminn.is ritstjorn@frettatiminn.is auglysingar@frettatiminn.is 61. tölublað 7. árgangur Föstudagur 07.10.2016 Við verðum að tala um sjálfsvíg Jóhanna María Eyjólfsdóttir missti manninn sinn 24 830 KRINGLUNNI ISTORE.ISSérverslun með Apple vörur Hausttilboð á Phantom 4. Frá 199.990 kr. iStore Kringlunni er viðurkenndur sölu- og dreifingaraðili DJI á Íslandi STÓRÞÆTTIRNIR VIKINGS Í TÖKUM Á ÍSLANDI STOPPUÐ Á DJAMMINU TIL AÐ VEITA RÁÐ UM ÞRIF FÖSTUDAGUR 07.10.16 Mynd | Rut SÓLRÚN DIEGO SÉRKAFLI UM JÓLAHLAÐBORÐ JÓN GUNNAR RIFJAR UPP GAMLA TAKTA AF ASTRÓ OG SKUGGABARNUM Stríðið gegn konunum Kosningabarátta í afturhaldslandinu Anna María Þórðardóttir, systir þroskaskertrar stúlku sem varð fyrir hrottalegu kynferðisofbeldi sem barn, spyr sig hvort ofbeldismaðurinn hafi fengið vægari dóm, þar sem fórnarlambið var fatlað. Fjölskyldan sá ekki dóminn yfir manninum fyrr en fyrir nokkrum dögum. Mynd | Heiðar Kristjánsson Eigendur 17 fyrirtækja efnuðust um 38 milljarða Ofsagróði útgerðarinnar í fyrra KOMIÐ Í VERSLANIR Guli miðinn styrkir Bleiku slaufuna. 200 kr. af hverju bleiku glasi renna til styrktar Bleiku slaufunni. SMÁRALIND - DÚNÚLPUR - KÁPUR - DÚNVESTI Sáu ekki dóminn fyrr en 30 árum seinna Nokkrir erfingjar vilja borga sjálfir fyrir Kroll-rannsókn

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.