Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 07.10.2016, Side 6

Fréttatíminn - 07.10.2016, Side 6
Húsnæðisloforð, kosningabrellur og skyndilausnir Stjórnmál Krónan er stærsti húsnæðisvandi Íslendinga að mati sérfræðings í hús- næðismálum á meðan hagfræðingur segir loforð stjórnmálaflokkanna um húsnæðismál töfrabrellur þar sem kostnaðurinn er ýmist sendur inn í framtíð- ina, eða hreinlega tekinn úr hinum vasa skattgreiðenda. Lítið fer fyrir framtíðarsýn hjá stjórnmálaflokkunum þegar kemur að þessum mikilvæga málaflokki en þó er lögð einhver áhersla á leigumarkaðinn, ólíkt því sem áður var. Valur Grettisson valur@frettatiminn.is „Auðvitað hjálpar þetta fólki, að fá peningana beint í hendurnar og kaupa, en á móti kemur þá fær fólk ekki vaxtabætur næstu fimm árin og því verður greiðslubyrðin vænt- anlega hærri, þetta jafngildir í raun vaxtalausu láni sem endurgreiðist á fyrstu fimm árum lánstímans,“ segir Jón Rúnar Sveinsson, fé- lagsfræðingur og sérfræðingur í húsnæðismálum, um nýjasta lof- orð Samfylkingarinnar sem var kynnt í byrjun vikunnar. Þar kom fram að fyrstu kaupendur, og þeir sem hefðu ekki átt íbúð síðustu þrjú árin, gætu fengið vaxtabæt- ur greiddar fyrirfram til fimm ára og nýtt sem útborgun í íbúð. Mest getur par fengið þrjár milljónir en einstaklingur tvær milljónir. Þórólfur Matthíasson hag- fræðingur segir loforðið geta orðið til þess að þrýsta fasteignaverði upp að því gefnu að of margir nýti sér það. Stjórnarf lokkarnir hafa lofað samskonar úrræði, en Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn vilja að fyrstu kaupendur nýti sér viðbótarlífeyr- issparnaðinn til þess að safna fyr- ir útborgun. Sá munur er þó á úr- ræðunum að Samfylkingin býður féð strax á meðan þeir sem myndu nýta sér úrræði ríkisstjórnarinnar þyrftu að safna peningum í fimm ár að minnsta kosti. Það kerfi hef- ur verið gagnrýnt fyrir að nýtast frekar þeim tekjuháu og veikja líf- eyriskerfið með því að senda reikn- inginn inni í framtíðina, eins og Þórólfur gagnrýnir. Bæði Jón Rúnar og Þórólfur eru sammála um að loforð stjórnar- flokkanna og svo Samfylkingarinn- ar lykti af skyndilausnum og kosn- ingabrellum. „Krónan er okkar stærsti hús- næðisvandi,“ segir Jón Rúnar og vísar þar til sveiflna í gengi og háa vexti. Samkvæmt því er það Björt framtíð sem leggur fram bestu hús- næðisstefnuna til framtíðar, sem er upptaka evru og öflugri hagstjórn. Þórólfur segir raunar enga töfra- lausn til þegar kemur að húsnæðis- markaðnum, og bendir á að önnur lönd, með aðrar og stærri myntir, eiga í samskonar vanda. Jón Rúnar segir aftur á móti að það jákvæða við þessar kosningar sé þó áhersla stjórnmálaflokkanna á leigumarkaðinn. „Það var varla neinn áhugi á slíku fyrir bara örfá- um árum,“ segir hann, en nú hefur Samfylkingin til að mynda lofað um 5000 nýjum leiguíbúðum. Jafnvel Sjálfstæðisflokkurinn, sem hefur verið hvað harðastur í séreignar- stefnu á Íslandi, leggur áherslu á leigumarkaðinn í kosningaefni sínu. „Það er stór breyting frá fyrri tíð, þegar Sjálfstæðisflokkurinn barð- ist með kjafti og klóm gegn lán- veitingum til húsnæðissamvinnu- félaga, þegar þau voru stofnuð sem valkostur við séreignarstefnuna,“ segir hann. Húsnæðismarkaðurinn er dýr og erfiður, og það ræðst að mörgu leytinu til af krónunni. 6 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 7. október 2016 FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 A F S L ÁT T U R 25-50% EKKI MISSA AF ÞESSU! R ÝM I N G A R S A L A STILLANLEG RÚM • HEILSURÚM OG -DÝNUR • GAFLAR • SÆNGUR • KODDAR • SVEFNSÓFAR • STÓLAR, O.FL. RÝMUM FYRIR NÝJUM VÖRUM Seljum í stuttan tíma eldri gerðir af rúmum og öðrum vörum með veglegum afslætti. Við erum að taka inn mikið magn af nýjum vörum og rýmum til með því að selja eldri gerðir og sýningareintök með góðum afslætti. H E I L S U R Ú M O G R Ú M G A F L A R S V E F N S Ó FA R Stjórnmál Björt framtíð og Viðreisn halda nú á lofti slag- orðinu „Almannahagsmunir framar sérhagsmunum“ og eru frambjóðendur ósam- mála um hvor flokkurinn sé trúverðugri. Björt Ólafsdóttir, þingkona Bjartrar framtíðar, er harðorð í garð fram- bjóðanda Viðreisnar. „Ég hef setið á mér varðandi Við- reisn hingað til. Og þegar Viðreisn afritaði stefnuskrá okkar, sem við samþykktum fyrir 4 árum, þá sögð- um við gleðilegt að fleiri legðust á árarnar... Þorsteinn Víglundsson, fyrrum talsmaður álfyritækjanna á Íslandi og síðar Samtaka atvinnulífsins, gefur í skyn að Björt framtíð sé á ekki ekta í því helsta markmiði okk- ar, að berjast fyrir almannahags- munum umfram sérhagsmuni. En það er þetta stef sem að Þorsteinn og félagar tifa nú á og telja sitt, og væna svo Bjarta framtíð um að herma  eftir.“ Björt segir flokk sinn hafa barist ötullega gegn sérhagsmunum. „Við höfum ekki keypt okkur inn á Al- þingi með gylliboðum um ókeyp- is peninga. Við börðumst á móti skuldaniðurfellingunni, búvöru- lögunum og skattaívilnunum sem hafa nær eingöngu farið til álfyrir- tækjanna. Því er fáránlegt að heyra þennan málflutning núna frá fram- bjóðanda Viðreisnar sem var bein- línis á launaskrá við að sinna sér- hagsmunum.“ Þorsteinn Víglundsson segir kó- mískt að halda því fram að Við- reisn hafi afritað stefnuskrá Bjart rar framtíðar. „Við höfum verið með málefnanefndir að störfum í tvö ár og áherslumál okkar eru sprottin úr þeirri vinnu. Ég tók hinsvegar eftir því að Björt framtíð var farin að keyra útvarpsauglýsingar undir sama slagorði og Viðreisn. Það er auðvitað bara besta mál að fleiri flokkar fylgi þeirri megin línu. Mér finnst Björt hinsvegar fara gegn stefnu flokks síns, sem lofar að fara aldrei í skítkast. Ég skammast mín ekkert fyrir mín fyrri störf. Ég hef alltaf talið að hagsmunir almenn- ings og atvinnulífs geti farið mjög vel saman.“ | þt Sakar Viðreisn um að þjóna sérhagsmunum Þorsteinn Víglundsson segir kómískt að saka Viðreisn um að afrita stefnu Bjartrar framtíðar. Björt Ólafsdóttir segir Þorstein hafa verið á launaskrá við að gæta sérhagsmuna.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.