Fréttatíminn - 07.10.2016, Side 35
| 35FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 7. október 2016
leikur sem átti eftir að reyna á alla
okkar lipurð, snerpu og úthald og
orkuforða.
Í eitt skiptið strunsaði kindin
með lömbin sín tvö niður svo bratta
klettaveggi í gilinu að þaðan hefði
ekki nokkur átt að komast lifandi
nema fuglinn fljúgandi. Okkar mað-
ur frá Egilsstöðum ætlaði held-
ur betur að koma þeim á öruggar
slóðir og fór beinustu leið á eftir, til
að reyna að koma í veg fyrir stór-
slys. Ekki vildi betur til en svo að
bæði smalinn, kindin og lömbin
lentu í sjálfheldu í klettunum þar
sem dynjandi fossinn beið und-
ir fótum þeirra. Hvorki bóndinn í
hópnum, NBA-leikmaðurinn né við
hinar gátum séð þessa stöðu fyrir.
Eftir örvæntingarfull hróp og köll
okkar mjakaði kindin og svo lömb-
in sér á öruggara undirlendi og
smalinn náði fótfestu. Við störðum
agndofa á atburðarásina án þess að
geta gert nokkuð til að rétta þeim
hjálparhönd.
Stuttu síðar komum við lömbun-
um yfir ána en ærin var enn í bar-
áttuham og gaf Ingvar þau fyrir-
mæli að mikilvægast væri að koma
lömbunum niður í rétt. Kindin væri
fullfær um að skila sér til byggða
sjálf. Tvö lömb voru því allt og sumt
sem átta manna smalahópur kom til
byggða ofan af fjalli.
Ekkert dró úr vindinum og með
hverjum klukkutímanum bætti
hressilega í. Rigningin kom í kviðum
og þeir sem gengu efsta klettabeltið
komu niður veðurbarðir af hagléli.
Það var ekki þurr þráður á nokkrum
manni og gangan var orðin marg-
falt lengri en okkur grunaði. Þegar
laus stund gafst lögðumst við á hnén
og löptum vatn úr lækjarsprænum.
Það var ekki laust við að samleitar-
menn okkar væru farnir að þreyt-
ast líka. Ekki að okkur hafi leiðst
eina sekúndu. Tilfinningin að fá að
taka þátt í þessari aðgerð, að fá bara
í örfáa klukkutíma að hafa þennan
tilgang, veitti okkur ómælda gleði.
Það er ekki á hverjum degi sem
borgarbörn komast svona í tæri við
alvöru lífsins.
Úr fjallshlíðunum sáum við móta
fyrir kindum á áætluðum áfanga-
stað neðar í dalnum. Þar sem við
gengum í röð niður úr brattanum
til móts við þær, sáum við skyndi-
lega í hverju starf leitarstjórans
hafði falist. Á hverjum hjalla, eins
langt og augað eygði út fjörðinn,
birtust gulklæddir smalar og mynd-
uðu breiðfylkingu sem var margföld
okkar. Þessi sjón sem birtist okkur á
sjöunda klukkutíma eftir tugi kíló-
metra göngu í gili og bratta, var eins
og umsátur í stríði. Hjörðin safnað-
ist saman í mýrinni, alveg eins og til
stóð, og var á endanum rekin niður
á veg og inn í rétt.
Hvaltönn fyrir hafnarstýruna
Þar sem við stóðum gjörsamlega
niðurringdar og algjörlega bensín-
lausar við réttina, var hughreystandi
að heyra því fleygt að fólkið myndi
ekki eftir verra gangnaveðri á sinn
lífslöngu ævi. Sveitungar grínuð-
ust með að nú væri kominn tími
á að breiða út dúk og borða nesti.
Það væri hefð þegar svangir smalar
kæmu niður af fjalli og hefðu rekið
kindurnar inn í rétt. Þá væru menn
vanir að setjast niður, áður en féð
væri dregið í dilka. Beljandi rign-
ingin bauð ekki upp á það í ár.
Okkar hlutverki í leitunum var
lokið. Við klöngruðumst aftur upp
í bíl. Úrvinda, sælar og glaðar hent-
um af okkur blautustu flíkunum og
upplifðum algjört spennufall. Ein-
hverskonar æðisgengna tilfinningu
af að hafa sigrað sjálfan sig og mögu-
lega fengið að gera örlítið gagn. Í
hamingjukasti ætluðum við aldrei
að geta hætt að hlæja.
Við munum varla eftir þægilegri
sundferð en þeirri sem fylgdi á eft-
ir. Laugin í briminu við Krossnes var
eins og paradís á jörð. Við vorum
hvergi nærri mettar af ævintýrum
eftir að upp úr var komið og skröns-
uðum í botni Norðurfjarðar þegar
við sáum andarnefjuhræ liggja þar
og rotna. Það var eins og runnið
væri á okkur æði og allar sem ein
stukkum við út úr bílnum og dróg-
um úr henni gula og ógeðslega tönn.
„Fyrir hafnarstýruna!“ sagði ein-
hver með dýrslegan glampa í aug-
um.
Smalamennskunni lauk auðvitað í
kaffihúsinu við höfnina þar sem við
tók einhver skemmtilegasta kvöld-
stund sem við munum eftir. Lamba-
kjöt af bestu sort var borið ofan í all-
ann hópinn. Yndislega sveitafólkið
reyndist ekki bara fyndið og gest-
risið heldur einstakir músíkantar
sem voru ekki lengi að draga upp
gítarinn. Hátindur kvöldsins voru
svo auðvitað systurnar þrjár af Mel-
um sem kunnu alla heimsins söng-
texta og fluttu þríraddað hvert ljóðið
á fætur öðru.
Framlag okkar blaðakvenna til ís-
lenskrar sauðfjárræktar fer kannski
ekki í sögubækurnar. En fyrir okk-
ur var þessi lífsreynsla á Strönd-
um svo stórfengleg að skiljum ekki
hversvegna vegna smölun hefur
ekki verið markaðssett sem upp-
lifunarævintrýri fyrir hugdjarfa
ferðamenn.
Tilfinningin að fá að taka
þátt í þessari aðgerð, að fá
bara í örfáa klukkutíma
að hafa þennan tilgang,
veitti okkur ómælda gleði.
Það er ekki á hverjum
degi sem borgarbörn
komast svona í tæri við
alvöru lífsins.
Síðstu metrana á toppinn laumaði Ragnar göngustafnum aftur fyrir sig og dró vígalega smalakonuna upp brattann.
KOMDU OG NJÓTTU MEÐ OKKUR!
Tapasbarinn er 16 ára og þér er boðið í afmælisveislu
mánudaginn 17. og þriðjudaginn 18. október
tapasbarinn – hinn eini sanni í 16 ár
10 vinsælustu tapasréttirnir 590 kr./stk.
• Marineraðar lambalundir með lakkríssósu
• Bleykja með hægelduðu papriku salsa
• Steiktur saltfiskur með sætri kartöflumús
• Hvítlauksbakaðir humarhalar
• Marineðar kjúklingalundir með alioli
• Serrano með melónu og piparrót
• Grillaðar lambalundir Samfaina með myntusósu
• Spænsk eggjakaka með lauk og kartöflum
• Beikonvafin hörpuskel og döðlur með sætri chilli sósu
• Nautalund í Borgunion sveppasósu
... og allir fá ljúffenga og margrómaða súkkulaðiköku
Tapasbarsins í eftirrétt.
Codorníu Cava-glas 490 kr./stk.
Peroni, 330 ml 590 kr./stk.
Campo Viejo, léttvínsglas 690 kr./stk.
veitingar á afmælisverði
BORÐAPANTANIR Í SÍMA 551 2344
AFMÆLISleikur
Í tilefni tímamótanna langar okkur
að gleðja heppna viðskiptavini.
Fylltu út þátttökuseðil á tapas.is
og þú gætir unnið veglega vinninga
t.d. ferð fyrir tvo til Tenerife á Spáni
í sjö daga - að verðmæti 403.115 kr.
Vinningar verða dregnir út
19. október 2016.
Vesturgötu 3B | 101 Reykjavík
Sími 551 2344 | www.tapas.is
RESTAURANT- BAR