Fréttatíminn - 29.10.2016, Blaðsíða 42
42 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 29. október 2016
FARARSTJÓRN:
PÉTUR HRAFN ÁRNASON
„ÞETTA ER BÚRMA“
farvel.is farveltravel farvel_travel farvel@farvel.is415 0770
TILBOÐSVERÐ
499.500 KR.*
EF BÓKAÐ ER FYRIR
15. NÓVEMBER
18 manns
hámark
16.–29. JANÚAR, 14 DAGAR
555.000 KR.*
*Verð per mann í tvíbýli. Nánari upplýsingar á vefsíðu Farvel.
Búrma, eða Myanmar, er með eindæmum
sérstakt og margbreytilegt land sem þar
til fyrir rúmum áratug var að mestu hulið
umheiminum. Könnuð verða mörg af
áhugaverðustu svæðum Búrma. Gamla
höfuðborgin Yangon verður
heimsótt, farið verður um Bagan og
musterisvellina sem oft eru taldir á meðal
undra veraldar, siglt um Inle-vatn með
sínum fljótandi híasintugörðum og
þorpum á stultum og hin forna borg
Mandalay heimsótt.
KJARNI GAMLA FRANSKA INDÓKÍNA
OPINBERAÐUR Á EINSTAKAN OG HNITMIÐAÐAN HÁTT
Iceland Airwaves hefst á fimmtudag. Á svokölluðu Non-ference sem Útón, Útflutn-ingsstofa íslenskrar tónlistar, stendur fyrir í Hörpu er stefnt
að því að hjálpa íslenskum tónlist-
armönnum að ná betri tökum á
tónlistarbransanum, kynningar-
málum og viðskiptum. „Við tölum
um Nonference frekar en Confer-
ence, því það er eitthvað bólgið
og leiðinlegt,“ segir Sigtryggur
Baldursson, framkvæmdastjóri
Útón. „Þetta samtal er hugsað
fyrir þetta skapandi og frábæra ís-
lenska tónlistarsamfélag sem
þarf að koma tónlistinni
sem víðast.“
Á Airwaves er gott
að grípa gesti úr tónlist-
arbransanum glóðvolga.
„Við viljum kreista úr
þessu reynslumikla
fólki þekkingar- og
reynslusafa sem nýt-
ist til að vökva
íslensku gras-
rótina.“
Rapp á íslensku
Þarna verður spurt
hvort íslenskir rapp-
arar geti rappað á ís-
lensku fyrir heiminn. „Þeir eru að
hefja útrás sína og hefur gengið
vel. Á tónleikum Úlfs úlfs í Pól-
landi á dögunum söng fólkið með
þó að það skildi ekki íslensku. Það
er hins vegar áhugavert að velta
fyrir sér hvort íslenskt rapp geti
ekki stækkað úti líka.“
Sigtryggur segir að tónlist sé
ekki bara listgrein heldur líka
starfsgrein, en tekjur í henni hafa
breyst mikið á síðustu árum.
„Leiðin fram á við er ekki að rífast
um það hvort fólk megi hlaða nið-
ur tónlist eða ekki, heldur finna
nýjar leiðir til að selja tónlist. Til
dæmis hefur sala á tónlist í kvik-
myndir og sjónvarpsþætti aukist.“
Sigtryggur segir mikilvægt
að íslenskir tónlistarmenn auki
þekkingu sína. Samtal-
ið ætti að gagnast öll-
um þeim sem vilja ná
eyrum fólks víða um
heim. Tækifærið gefst
á Nonference Útón
sem verður haldið í
Hörpu frá kl. 13 til 17
á fimmtudag og föstu-
dag. Allt nánar á
uton.is. | gt
Fullt af tækifærum
fyrir íslenska tónlist
Erlent bransafólk á Airwaves
getur kennt margt. Mynd | Rut
Ólöf Rut um
klikkaðar ákvarðanir
í ástarmálum.
Þegar við erum ástfangin eða í ást-
arsorg eigum við til að taka heldur
drastískar ákvarðanir sem eru lítið
úthugsaðar. Ólöf Rut deilir með
Fréttatímanum því klikkaðasta sem
hún hefur gert í ástarmálum.
„Í fyrsta skipti sem ég reyndi eitt-
hvað fyrir mér á markaðnum varð
ég skotin í strák sem var með mér
á námskeiði. Við þekktumst ekkert
en ég ákvað samt að mæta fyrir
utan heimili hans með rós. Keyrði
með vinkonu minni sem beið út í
bíl á meðan og síðan dinglaði ég
bjöllunni með rósina. Til dyra kom
kærastan. Þetta var eiginlega dáldið
eins og rán þegar ég hugsa til baka.“
„Annað fyndið atvik var þegar ég
átti stefnumót með strák heima hjá
honum, ekkert áfengi haft um hönd.
Ég var geggjað stressuð yfir að ég
hefði ekki nóg að tala um og ákvað
því að búa til borðspilið Ice Breaker.
Brandarareiturinn var erfiðastur. Þá
þurfti að segja brandara. Erfitt“
„Með ástarsorgina þá get ég átt
nokkur vandræðaleg móment með
sjálfri mér þar sem ég keyrði fram-
hjá húsi stráksins og hlustaði á lög
úr kvikmyndinni Amélie, jafnvel þó
að ég hafi ekki verið það sorgmædd,
bara svo gott að gráta.“
„Einu sinni var líka strákur sem
vildi ekkert með mig hafa leng-
ur. Ég heyrði af því á djamminu að
hann hefði verið handtekinn fyrir
veggjakrot og með óbilandi trú á
mínum sannfæringakrafti að hoppa
upp í leigubíl og ætlaði að sannfæra
lögregluna um að þetta hefði verið
misskilningur. Endaði á því að bíða
lengi eftir að vera hleypt inn á stöð-
ina þar sem vinsamlegur lögreglu-
þjónn sagði við mig: Farðu heim til
þín og láttu renna af þér.“ | bg
Ætlaði að bjarga fyrrum ástmanni úr fangelsi
Hvatvísin er rauði þráðurinn í ákvörðunum tengdum ástinni. Mynd | Rut
Ég hef rödd þótt ég sé
18 ára krakkaskítur
Hvað segja ungu frambjóðendurnir um heilbrigðismál?
Helga Dögg Ólafsdóttir
helgadogg@frettatiminn.is
Eva H. Baldursdóttir
34 ára, Samfylkingin
Hefurðu einhverntímann þurft að
borða spítalamat?
Þegar ég fór í aðgerð þegar ég var
unglingur en þá þurfti ég að vera á
spítala í þrjá daga og líka þegar ég
eignaðist barn og var á fæðingar-
deildinni. Mér fannst hann vera
fínn.
Hefurðu verið hjá sálfræðingi eða
geðlækni?
Ég hef verið hjá sálfræðingi og eytt
miklum peningum í sálfræðiþjón-
ustu. Tíminn kostaði 13.000 krón-
ur og ég hef farið í þónokkra tíma.
Hefurðu verið á geðlyfjum?
Nei. Geðlyfjanotkun er mjög mikil
á Íslandi en ég held að meðferð hjá
sálfræðingum geti verið miklu far-
sælli og árangursríkari meðferð til
lengri tíma.
Hver er ykkar stefna Samfylkingar-
innar í heilbrigðismálum?
Við setjum heilbrigðiskerfið í
algeran forgang og teljum þörf á
því að endurreisa heilbrigðskerfið
og að það þoli ekki bið.
Hvað þýðir að endurreisa heilbrigð-
iskerfið?
Minnka biðlista, fjölga hjúkrunar-
rýmum, taka skref að ókeypis
heilbrigðisþjónustu. Byggja nýjan
Landspítala og veita meiri fjár-
munum inn
í heilbrigð-
iskerfið.
Erna Lína Baldvinsdóttir
18 ára, Alþýðufylkingin.
„Heilbrigðiskerfið er búið að vera
grotna niður í mörg ár en samt er
haldið áfram að skera niður,“ segir
Erna Lína en henni finnst að það
eigi heldur enginn að græða á heil-
brigðiskerfinu eða taka út úr því.
Hefurðu verið lögð inn á spítala?
Já, oft. Ég er búin að lenda í sex
bílslysum og svo er ég svo mikill
hrakfallabálkur.
Hefurðu þurft að nota sálfræði- eða
geðlæknaaðstoð?
Já, en það eru fáir geðlæknar í
Keflavík. Bara ein sem gat tekið
á móti mér og það small ekki svo
ég þurfti að fara til Reykjavík-
ur. Mamma þurfti að skutla mér
tvisvar sinnum í viku til þess að fá
að tala við sálfræðing.
Afhverju leitaðirðu þér hjálpar?
Ég var lögð mikið í einelti í grunn-
skóla og var greind með kvíða og
þunglyndi. Ég byrjaði hjá sál-
fræðingi og var svo flutt á Bugl
þar sem enn og aftur var of lítið af
starfsfólki og of mikið af fólki sem
þarf á hjálp að halda. Ég var í tvö
ár í einhverju greiningarferli sem
kom svo aldrei nein niðurstaða úr
því allt í einu var ég orðin 18 ára og
gat ekki fengið hjálp lengur.
Afhverju ertu að bjóða þig fram?
Það var eiginlega alveg fyrir
slysni. Ég fór með kærastan-
um mínum á fund og þar var
bara tekið ofboðslega vel á
móti mér og það var eins og
ég hefði rödd þótt ég sé 18 ára
krakkaskítur.
Arna Dís Kristinsdóttir
44 ára, Íslenska þjóðfylkingin.
með þeim yngstu í sínum flokki
„Stefna Íslensku þjóðfylkingarinn-
ar í heilbrigðismálum er gjaldfrjáls
þjónusta fyrir Íslendinga.“ segir
Arna Dís.
Hún segist hafa reynslu af heil-
brigðiskerfinu á Íslandi: Fyrir
rúmum þremur árum þá eignað-
ist ég fjórða barnið mitt og stuttu
eftir fæðingu fékk ég heilablóðfall.
Ég var send upp á spítala í Eyjum
þar sem haldið var að ég væri
með fæðingarþunglyndi. Einn
læknirinn ákvað að senda mig til
Reykjavíkur með sjúkraflugi og þá
kom í ljós að þetta væru smávægi-
legar heilablæðingar og ég flutt
heim. Stuttu seinna fæ ég aðra
heilablæðingu. Þetta var erfiður
tími. Í kjölfarið greindist ég með
kvíða og þunglyndi en það er voða
erfitt þegar búið er að hola heil-
brigðiskerfið að innan og sveitar-
félögin eru í molum varðandi
heilbrigðisþjónustu. Hérna eru
fáir læknar sem anna ekki eftir-
spurn og fólk er oft hvatt til að
fara til Reykjavíkur.
Er mikið af geðlæknum
eða sálfræðingum í Vest-
manneyjum?
Enginn geðlæknir en
einn sálfræðingur
sem ég er núna ný-
lega farin að hitta.
Mér var bent á
að ég gæti fengið
styrk frá bænum
því ég hafði ekki
efni á kostnaðin-
um sjálf.
Arna vill gjaldfrjálsa þjónustu fyrir
Íslendinga.
Erna hefur mikla reynslu af
heilbrigðis kerfinu. Mynd | Hari.
Eva vill
endur-
reisa
heil-
brigð-
iskerfið.
Mynd |
Hari.