Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 11.11.2016, Blaðsíða 1

Fréttatíminn - 11.11.2016, Blaðsíða 1
Þingmenn innan Sjálfstæðis- flokksins telja varla raunhæft að mynda meirihluta með Viðreisn og Bjartri framtíð, of mikið beri í milli. Því sé líklegast að stjórnar- myndunarumboðinu verði skilað aftur á Bessastaði enda hefur VG hafnað því að hefja stjórnar- myndunarviðræður við flokkinn. Viðreisn og Björt framtíð útiloka þátttöku í ríkisstjórn með Fram- sóknarflokknum. Valur Grettisson valur@frettatiminn.is „Þetta er þungt og það er erfitt að ná þessu,“ segir Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem er svartsýnn. Hann sat langan fund með þingmönnum flokksins í Valhöll á miðvikudaginn, þar sem farið var yfir kosti og galla sam- starfsins. Bjarni Benediktsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins, sagði eftir fundinn, að mikið bæri í milli og að ekki væri útilokað að umboð- inu yrði skilað aftur á Bessastaði í þessari umferð. Þó er spurning hvort formað- ur Sjálfstæðisflokksins láti reyna á formlegar samningaviðræður en það þykir ólíklegt. Viðreisn og Björt framtíð gera þá kröfu að fiskveiðistjórnunarkerfið verði stokkað upp, myntráði komið á og kosið um áframhaldandi samn- ingaviðræður um ESB, „Þetta eru allt risastór mál og gæti verið erfitt að ná saman um þau,“ segir Brynjar. Hann segir að lítið gerist nema menn slái af kröfum sínum, en hann bendir einnig á að 32 manna meirihluti sé allt of lítill, það þurfi meira til. Nefnir hann þá Framsóknarflokk- inn til sögunnar sem virðist vera eitt helsta bitbeinið. Þar sé nægan styrk að finna en Viðreisn er alfarið á móti slíku samstarfi. Það flækir svo ennfrekar stöðuna að nokkrir þingmenn innan Sjálf- stæðisflokksins eru mjög andvígir samstarfinu. „Menn eru mjög „skeptískir“ á að þetta gangi upp í fyrstu atrennu,“ segir Brynjar. Samkvæmt heimildum Fréttatím- ans stóðu þreifingar yfir í gær á milli formanna flokkanna. Það var síð- asta tilraun til þess að finna grund- völl til samstarfs. Því er ekki útséð um að flokkarnir láti reyna á stjórn- armyndunarviðræður, þó sterkar efasemdarraddir séu um að slíkt gangi upp innan Sjálfstæðisflokks- ins. Því er líklegt að umboðinu verði skilað í dag, föstudag. frettatiminn.is ritstjorn@frettatiminn.is auglysingar@frettatiminn.is 75. tölublað 7. árgangur Föstudagur 11.11.2016 26 34 22 20 12 VEISLAN HEFST Í COMMA, 2. HÆÐ - SMÁRALIND KRINGLUNNI ISTORE.IS iStore Kringlunni er viðurkenndur sölu- og dreifingaraðili DJI á Íslandi Sérverslun með Apple vörur Phantom 4 Frá 169.900 kr. Forpöntun á Mavic Pro han á iStore.is Ísland er gott fyrir börn Allir sem Ivan Milankovic elskar eru á Íslandi Allir erfiðleikar lífs míns á bók Aðalbjörg Stefanía skráir ótrúlegt lífshlaup sitt og sinna amk fylgir Fréttatímanum Arngrímur býr til lík Við erum öll skrítin Þórdís Gísladóttir skáld segir að enginn vinni í lífinu Pólland: Land öfganna Átakasaga Póllands er saga margra Íslendinga Þungt hljóð í Sjálfstæðismönnum Það er þungt hljóðið í Brynjari Níelssyni sem segir þingmenn hafa efasemdir um að viðræður gangi upp í fyrstu atrennu. Meðan formenn Bjartrar framtíðar og Viðreisnar héldu sinn fyrsta sameiginlega þingflokksfund, veltu þungaviktarmenn innan Sjálfstæðisflokksins því fyrir sér, hvort ekki væri réttast að skila inn stjórnarmyndunarumboðinu. Mynd | Rut Fer Bjarni einn heim af ballinu? Heimur án olíu Olían er á útleið þrátt fyrr lágt verð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.