Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 11.11.2016, Blaðsíða 12

Fréttatíminn - 11.11.2016, Blaðsíða 12
12 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 11. nóvember 2016 Lágt olíuverð hindrar notkun vistvænni orkugjafa, en framtíðin lætur ekki bíða eftir sér endalaust. Volkswagen kynnti nýja kynslóð rafbíla á einni stærstu bílasýningu heims í París fyrr í mánuðinum. Vonast þeir til þess að bílarn- ir verði það sama fyrir 21. öld og bjallan var á þeirri síðustu, en í báðum tilfellum er mótorinn að aftanverðu sem býður upp á mun meira geymslurými að framan. Bíllinn ku vera sá fyrsti þar sem skrokkurinn er sérhannaður fyrir rafbíla, en sjálfkeyrandi útgáfa kemur ekki á markað fyrr en 2025. Eftir hneykslismál undanfarinna ára þar sem kom í ljós að fyrir- tækið hafði svindlað á mælingum um koltvísýring reyna þeir nú allt hvað þeir geta til að bæta ímynd sína og verða leiðandi í framleiðslu umhverfisvænna bifreiða. Um miðja 19. öld fundu Banda- ríkjamenn miklar olíulindir inn- an landamæra sinna og náði olíu- framleiðsla þeirra hámarki árið 1970, en tók að minnka upp frá því. Bandaríski kagginn hvarf af götun- um og sparneytnari japanskir bílar komust í tísku. Olíukreppur fylgdu árin 1973 og 1979 vegna átaka í Mið- austurlöndum og hernaðaríhlutanir Bandaríkjanna á svæðinu jukust og náðu hámarki á síðasta áratug. En árið 2009 fór þessi þróun að snúast við. Ný tækni gerði það að verkum að hægt var að vinna olíu úr leirsteini og hátt heimsmarkaðs- verð gerði það jafnframt arðbært. Talið er að með þessum hætti megi framleiða samanlagt um billjón tunnur af olíu. Um þriðjung þeirra er að finna í Bandaríkjun- um og olíuframleiðsla þar er nú orðinn nálægt því sem hún var árið 1970. Til samanburð- ar má nefna að olíu? Heimur án áætlað magn af jarðolíu sem enn má finna í heiminum er um ein og hálf billjón tunna. Sádí-Arabar dæla nú upp svarta gullinu af miklum móð til að halda heimsmarkaðsverðinu niðri og gera leirsteinaolíuna þannig síður samkeppnishæfa. Ódýr olía erfið fyrir efnahaginn Fyrir utan Noreg eru Evrópubú- ar háðir innflutningi á olíu, og þá mætti ætla að lágt olíuverð kæmi þeim vel og myndi auka hagvöxt, en sú hefur ekki orðið reyndin. Ástæðan er að hluta til sú að hið lága olíuverð hefur komið sumum af þeim löndum sem flutt er út til illa, sem þar af leiðandi kaupa færri vörur. Einnig hefur það ýtt undir flóttamannakrísuna, því minni hag- vöxtur heima fyrir ýtir undir að fólk leiti frekar að tækifærum erlendis. Það er þó ekki aðeins þetta mikla magn af olíu sem hefur lækkað verðið, heldur fer ef til vill brátt að sjá fyrir endann á olíuöldinni. Bandaríski fjárfestingaráðgjafinn Kirk Spano hjá Market Watch spá- ir því að einhvern tímann á næsta áratug muni aukinn notkun rafbíla fara að hafa veruleg áhrif á eftir- spurn eftir olíu, en bifreiðar bera í dag ábyrgð á um 60 prósent af allri olíunotkun. Hann mælir með því að fjárfestar í olíugeiranum fari að huga að verðbréfakaupum í öðrum orkugjöfum. En hverjir eru þessir orkugjafar? Bílar eða matur? Lífræna orkugjafa, svo sem etanól eða jurtaolíu, er hægt að rækta og geta þeir þannig komið í stað þeirra sem takmarkað magn er til af, svo sem olíu eða kol. Alþjóða orkumála- stofnunin hefur sett það sem mark- mið að árið 2050 verði um fjórð- ungur farartækja knúinn áfram af lífrænum orkugjöfum. Meðal helstu kosta jurtaolíu er sá að með því að blanda henni saman við díselolíu er hægt að nota hana á hefðbundna bíla og því þarf ekki að ráðast í rán- dýra uppbyggingu á innviðum til að skipta um kerfi. Sumir umhverfisverndarsinnar hafa hinsvegar áhyggjur af því að ræktun á orkugjöfum muni hafa í för með sér mikil spjöll fyrir skóga og lífríki. Aðrir hafa meiri áhyggjur af að orkugjafar þessir hækki verðið á matvöru, því þeir keppa við hana um ræktunarsvæði. Eitthvað er þó hægt að vinna úr afgangshráefnum matarvinnslunnar, og lífrænir orku- gjafar geta að einhverju leyti brúað bilið á meðan jarðarbúar skipta yfir í umhverfisvænni orku. Lestir eru bestar Vetni er annar möguleiki og hef- ur meðal annars verið notað til að knýja strætóa í Reykjavík. Helsti kostur þess er sá að þegar vetni er klofið til að knýja farartæki verður aðeins vatn afgangs, og blása bíl- arnir frá sér meinlausri vatnsgufu í stað mengandi koltvísýrings. Sumir trúa að vetni sé framtíðin og í fyrra kynnti Toyota fyrsta vetnisdrifna fólksbílinn. Helsti gallinn við vetni er hinsvegar sá að það gefur frá sér tiltölulega litla orku og eru vetn- isbílar dýrir bæði í framleiðslu og í notkun. Það myndi þurfa miklar fjárfestingar í innviðum og enn sem komið er geta vetnisbílar ekki keyrt jafn langt og bensínbílar. Ólíkt vetni er nýtingin af raf- magni sem orkugjafa afar góð. Um 90 prósent af orkunni kemst til skila til að knýja bifreiðina áfram, en þær díselvélar sem nú eru í notk- un nýta aðeins um 45 prósent og er afgangurinn losaður sem meng- un. Hér þarf þó einnig nýtt kerfi ef skipta á yfir og rafbílar eru ekki jafn langdrægir og bensínbílar, en þeir sækja þó óðum á. Lestir eru þegar knúnar áfram af rafmagni og hafa Evrópuríki reynt að auka vægi þeirra í flutningum, en ef ná á markmiðum Parísarsáttmálans um losun gróðurhúsalofttegunda þarf einnig að rafvæða bílaflotann eða finna honum aðra orkugjafa. Hið lága heimsmarkaðsverð á olíu gerir öðrum orkugjöfum erf- iðara fyrir, þar sem þeir verða þá dýrari til samanburðar. Þó ber að hafa í huga að þrátt fyrir lækkun undanfarið hefur olía eigi að síður hækkað um 50 prósent frá aldamót- um. Og hún gæti enn farið hækk- andi, því Sádí-Arabía, Íran og aðrir meðlimir í OPEC samtökum olíu- útflutningsríkja stefna að því að undirrita samning í nóvember um að minnka olíuframleiðslu sína og vilja fá Rússa til að taka þátt. Hvern- ig sem fer mun leitin að nýjum orku- gjöfum fyrir 21. öldina halda áfram. Hvernig gerðist það að lágt olíu- verð er orðinn einn helsti efna- hagsvandi heimsins? Norðmenn eru í fyrsta sinn farnir að taka út úr olíusjóði sínum í stað þess að leggja inn á hann. Í olíuríkinu Rússlandi er neikvæður hag- vöxtur og í Venesúela ríkir djúp kreppa. Hvað veldur? Svarið er tvíþætt, en í báðum tilfellum er ástæðan sú að ný tækni er komin til skjalanna. Valur Gunnarsson ritstjorn@frettatiminn.is Mynd | Getty „Bæði átök og hagsæld á 20. öld snérust að miklu leyti til um aðgang að olíu. En nú gæti sá tími farið að líða undir lok.“ Mynd | Shutterstock páska ferð Dvalið í höfuðborginni Delhi sem er sjóðheitur suðupottur menningaráhrifa frá tímum búddadóms, hindúa, múslima og Breta. Til Agra sem státar af þremur stöðum á heimsminjaskrá UNESCO og er Taj Mahal þeirra frægastur. Til að loka hinum Gullna þríhyrningi er næst haldið til Jaipur sem jafnan er kölluð „bleika borgin“ vegna fjölda bygginga í þeim lit. Í borginni Varanasi fáum við að kynnast hinu kaótíska og iðandi mannlífi sem víða einkennir Indland. Niður hið helga fljót Ganges og fylgjumst með borginni vakna. Það er ógleymanleg lífsreynsla að sjá borgarbúa þvo sér í hinu helga vatni. Stórkostleg litadýrð, fjölbreytt mannlíf og fegurstu mannvirki jarðar. Indland bíður þín. ÞÉTT OG HNITMIÐUÐ FERÐ UM GULLNA ÞRÍHYRNING INDLANDS 8.–19. APRÍL, 12 DAGAR 489.000 KR.* farvel.is farveltravel farvel_travel farvel@farvel.is415 0770 *Verð per mann í tvíbýli. Nánari upplýsingar á vefsíðu Farvel. eldar indlands FARARSTJÓRN: PÉTUR HRAFN ÁRNASON Taj Mahal, Agra, Jaipur og Ganges-fljót
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.