Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 11.11.2016, Síða 20

Fréttatíminn - 11.11.2016, Síða 20
20 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 11. nóvember 2016 Innflytjandinn Ivan Milenkovic: Hér eru allir sem ég elska „Ég held að Ísland hljóti að vera einn besti staðurinn í heimi til að ala upp börn því hér er svo mikið öryggi og frelsi,“ segir Ivan Milenkovic. Mynd | Rut Eftir að hafa búið hér í þrettán ár lítur Ivan á Ísland sem heimili sitt. Hann kvartar ekki yfir veðrinu og elskar að fara í sund yfir háveturinn. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Það var erfitt að upp-lifa stríðið og ég vil helst ekki tala um það né heldur pólitíkina í Serbíu sem ennþá er mjög óstöðug. Mig langar frekar að tala um Ísland, sem er heimilið mitt í dag,“ segir Ivan Milenkovic. Ivan er frá lítilli borg í nágrenni Belgrad en flutti hingað þegar hann fékk fótboltasamning árið 2003. „Mamma mín var hér þegar ég kom, hún er hjúkrunarkona og sá atvinnuauglýsingu um laus störf. Hún hefur starfað sem hjúkr- unarkona síðan og er mjög ánægð. Eftir að faðir minn féll frá heima í Serbíu þá fluttu systir mín og son- ur hennar til Íslands og þeim líður líka mjög vel hérna. Frá því að pabbi fór hef ég miklu frekar litið á Ísland sem heimili mitt en Serbíu. Hér eru allir sem ég elska.“ „Ég byrjaði á samningi hjá Vík- ingi en spilaði svo um tíma með Grindavík en fór svo aftur í Víking. Svo fór ég í háskólanám og byrjaði að spila með Hamri í Hveragerði á sama tíma. Það kom að því að ég þurfti að ákveða hvort ég myndi halda áfram í boltanum eða klára nám og ég ákvað að velja námið,“ segir Ivan sem lærði almanna- tengsl í fjarnámi í háskólanum í Belgrad og ferðamálafræði í Há- skóla Íslands. „Þetta var mjög erfið ákvörðun en ég sé ekki eftir henni. Ég er samt ekki hættur að spila því það er nauðsynlegt fyrir sálina og ég spila alltaf tvisvar í viku með vinum mínum.“ „Ég held að Ísland hljóti að vera einn besti staðurinn í heimi til að ala upp börn því hér er svo mikið öryggi og frelsi. Ég viðurkenni að ég sakna þess að hafa gott úr- val af mat. Og ég sakna stundum samskiptanna við fólk, sem eru ekki alveg jafn innileg hér á landi. Íslendingar eru mjög kurteisir en þeir eru ekki vanir því að snerta annað fólk. Ég var lengi að venjast því að faðma ekki og kyssa vini og kunningja,“ segir Ivan og hlær. „Svo myndi ég vilja að íslenska sumarið væri aðeins lengra en ég kvarta ekki yfir veðrinu. Fólk er alltaf hissa á því að maður búi hér, út af veðrinu. Það var erfitt í fyrstu en veðrið er svo lítill hluti af lífinu og þú lærir að lifa með því. Það er líka margt gott bæði við veðrið og myrkrið, eins og norðurljósin, sem eru algjörlega ótrúleg. Ég læt veðrið heldur ekki stoppa mig í að njóta náttúrunn- ar og er mjög duglegur að ganga og fara á fjöll með vinum mínum. Mér finnst mikilvægt að nýta allt það sem náttúran hefur upp á að bjóða, eins og til dæmis allar þessar sund- laugar sem ég nýti mest yfir hávetur- inn.“ volundarhus.is · Sími 864-2400 VERÐTILBOÐ - GESTAHÚS 25 m² með 9 m² yfirbyggðri verönd kr. 1.699.900,- án fylgihluta. kr. 1.999.900,- með fylgihlutum og byggingarnefndar teiknisetti. Grunnmynd og nánari upplýsingar á heimasíðu volundarhus.is www.volundarhus.is Vel valið fyrir húsið þitt V H /1 6- 04 34 mm bjálki / Tvöföld nótun TILBOÐ - GARÐHÚS 4,7m² m/opnanlegum glugga kr. 189.900,- án fylgihluta kr. 219.900,- m/fylgihlutum 70 mm bjálki / Tvöföld nótun TILBOÐ - GARÐHÚS 9,7m² kr. 299.900,- án fylgihluta kr. 359.900,- m/fylgihlutum TILBOÐ - GARÐHÚS 4,4m² kr. 169.900,- án fylgihluta kr. 199.900,- m/fylgihlutum 34 mm bjálki / Tvöföld nótun 50% afsláttur af flutningi á GARÐHÚSUM og GESTAHÚSUM á allar þjónustu- stöðvar Flytjanda. GESTAHÚS og GARÐHÚS sérhönnuð fyrir íslenskar aðstæður Sjá fleiri GESTAHÚS og GARÐHÚS á tilboði á heimasíðunni volundarhus.is ATH! 34 mm bjálki / Tvöföld nótun RISA HAUSTTILBOÐ Á GESTAHÚSUM OG GARÐHÚSUM

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.