Fréttatíminn - 11.11.2016, Blaðsíða 22
22 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 11. nóvember 2016
Ásgeir Ingólfsson
asgeir@frettatiminn.is
Það að páfinn hafi verið pólskur og
barist gegn kommúnismanum hefur
örugglega ekki haft lítil áhrif á það
að Pólverjar eru um þessar mund-
ir lang trúaðasta þjóð Evrópu. En
það á sér þó dýpri rætur. Á meðan
nágrannar þeirra í Tékklandi, trú-
lausasta þjóð álfunnar, fengu að
stóru leyti útrás fyrir þjóðfrelsis-
baráttu sína í erjum gegn erlendum
trúarhöfðingjum og erlendum kirkj-
um var þessu öfugt farið í Póllandi,
þar var kirkjan iðulega vettvangur
fyrir andspyrnu gegn erlendu yfir-
valdi.
Pólland var stórveldi langt fram
á átjándu öld en þegar komið var
fram á þá nítjándu var Pólland ekki
til lengur til sem ríki, mismun-
andi hlutar landsins voru undir
yfirráðum Rússa, Prússa og Habs-
borgara og þeir voru gjarnir á að
banna pólsku í skólum og jafnvel
á almannafæri. Pólskir mennta-
menn voru margir í útlegð og oft
var sveitapresturinn eini mennta-
maðurinn til sveita, stundum sá
eini sem gat séð um kennslu – og
kirkjurnar voru oft einu staðirnir
þar sem menn gátu óhræddir talað
– og sungið – pólsku.
Þessu hlutverki gegndi kaþólska
kirkjan líka þegar Þjóðverjar og
Rússar hernámu landið í seinni
heimstyrjöldinni og áfram á tím-
um kommúnismans, þegar kaþ-
ólska kirkjan gat sótt aukinn styrk
til pólsks páfa.
Páfinn þarf samt ekki að vera
pólskur til að fólk mæti – það mættu
meira en milljón manns til þess að
hlusta á ræðu Francis páfa í Pól-
landi í fyrrasumar. En það hefur
þó ýmislegt breyst. Páfinn hvatti
menn til að taka vel á móti flótta-
mönnum og fékk sýrlenskan flótta-
mann upp á svið með sér til þess
að segja sögu sína. Þegar kemur að
málefnum flóttamanna þá er páf-
inn á öndverðum meiði við pólsku
ríkisstjórnina, rétt eins og forveri
hans var á öndverðum meiði við
kommúnistastjórnina um flest – en
það sem hefur hins vegar breyst er
að núna er pólska kirkjan með rík-
isstjórninni í liði. Hægri stjórninni
sem hefur reynt að sölsa undir sig
fjölmiðla og gera réttarkerfi lands-
ins sér auðsveipt, hægri stjórninni
sem Evrópusambandið fylgist með,
tilbúið að grípa inn – því sambandið
Það var í herbergiskytru á tékkneskri heimavist seint
á síðustu öld sem ég fór að átta mig betur á trúmál-
um í gamla austrinu. Piotr, pólski herbergisfélaginn
minn, var að rifja upp þegar páfinn kom til Póllands
árið 1983. Þangað mættu milljónir Pólverja og þetta
var hátíðleg stund, þau sungu ættjarðarlög með lag-
línum á borð við „Kæri Guð, færðu okkur aftur frjálst
föðurland“ - og svo endaði Piotr söguna með þessum
orðum: „Þetta var eina skiptið sem okkur fannst við
vera frjáls.“
Barnastjörnur, páfar
og kvennamótmæli
Um pólska alræðisstjórn, valdamikla tvíbura og umdeilda fóstureyðingalöggjöf.
óttast það að ríkisstjórnin eyðileggi
mögulega lýðræði í Póllandi end-
anlega ef hún gengur mikið lengra.
Tvíburinn sem stýrir Póllandi
Til þess að átta okkur betur á bak-
grunni þessarar hægri stjórnar
skulum við rifja upp upphaf og
endalok kommúnismans í Póllandi.
Þýskaland og Sovétríkin lögðu Pól-
land í sameiningu undir sig í upp-
hafi heimstyrjaldarinnar síðari – en
þegar Sovétmenn urðu skyndilega
bjargvættir þeirra í lok stríðs þá
hófust þeir handa við að endur-
skrifa söguna og kenna Þjóðverjum
um allt hernámið, gera þá og hin
kapítalísku Vesturlönd að óvininum
– og festa þar með kommúnismann
og sovésk áhrif í sessi, með lepp-
stjórn fjarstýrða frá Moskvu. Og
þótt hægri stjórnin núverandi telji
sig svarna óvini gömlu kommúnist-
anna þá nota þeir sömu taktík, rifja
upp yfirgang Rússa og Þjóðverja
við hvert tækifæri til þess að ala á
útlendingahatri og gera Evrópu-
sambandið tortryggilegt.
Tímarit sem eru höll undir ríkis-
stjórnina hafa teiknað Angelu Mer-
kel upp í nasistabúningi og illar
tungur segja leynilögregluna Stasi
hafa komið henni til valda, á meðan
raunin er sú að ímyndin um vonda
Þýskaland var stór hluti þess sem
kom hægri stjórninni til valda.
En kommúnisminn leið und-
ir lok í Póllandi árið 1989 – og það
mátti þakka Samstöðu, sem var
líklega öflugasta andspyrnuhreyf-
ingin í Austur-Evrópu. Þar var
Lech Walesa, eldklár og sjarmer-
andi verkamaður, ótvíræður leið-
togi. Walesa tók þó ekki við emb-
ætti strax. Hann hafði augastað á
forsetaembættinu – en málamiðl-
anir höfðu hagað því þannig að
kommúnistaleiðtoginn Jaruzelski
varð áfram forseti um hríð á með-
an Tadeusz Mazowiecki, lærifaðir
Walesa, varð forsætisráðherra. En
umskiptin yfir í markaðshagkerfi
voru ekki átakalaus og eins þótti
mörgum Samstaða hafa gefið gömlu
kommúnistunum of mikið eftir.
Gamlir kommúnistar tóku til sín
mikið af hagnaðinum þegar ríkis-
fyrirtæki voru einkavædd og þegar
Jaruzelski yfirgaf loks sviðið í des-
ember 1990 var óánægjan mikil,
bæði hjá almenningi og hjá lægra
settum meðlimum Samstöðu. Með-
al þeirra voru tvíburarnir Lech og
Jaroslaw Kaczynski. Þeir höfðu ver-
ið barnastjörnur eftir að hafa leik-
ið í bíómyndinni „Þessir tveir sem
stálu tunglinu“ þrettán ára gamlir
– og á endanum átti annar þeirra
eftir að stela heilu landi.
Jaroslaw var ekki hátt settur á
þessum tíma, en þetta var hans
tækifæri. Hann klauf sig úr flokkn-
um og þegar innbyrðisátökin náðu
hámarki þegar gömlu baráttufé-
lagarnir Tadeusz Mazowiecki og
Lech Walesa börðust um forseta-
embættið þá hafði hann komið sér
í stöðu helsta ráðgjafa Walesa og
var verðlaunaður með góðri stöðu
innan stjórnarráðsins eftir sigur
hans. En Walesa fékk fljótlega nóg
af Jaroslaw og losaði sig við hann
– og þeir hafa verið svarnir óvinir
allar götur síðan.
Jaroslaw hefur reynt að grafa
undan Walesa með sögum um
meint samstarf hans við kommún-
ista á áttunda áratugnum og í dag er
Walesa einn harðasti andstæðingur
Jaroslaws – sem nú er orðinn valda-
mesti maður Póllands.
Lengst af var hann hluti af öflugu
tvíburateymi sem komst fyrst til
Rússar drápu yfir 20 þúsund
pólska hermenn í Katyn.
Jóhannes Páll Páfinn í einni af Póllandsheimsóknum sínum.
Þeir Pawel og Jaroslav léku aðalhlut-
verkin í bíómynd um drengi sem stálu
tunglinu ...
... og urðu svo forseti og forsætisráð-
herra Póllands.
AFSLÁTTUR
UM HELGINA-20%
BYKO Grandi 11.11. kl. 16-19
BYKO Breidd 12.11. kl. 13-16
KYNNING