Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 11.11.2016, Side 24

Fréttatíminn - 11.11.2016, Side 24
24 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 11. nóvember 2016 valda um miðjan síðasta áratug, Jaroslaw sem forsætisráðherra og Lech sem forseti. Þótt þeir litu ná- kvæmlega eins út skildi skapgerðin á milli – og þar bættu þeir hvor annan upp. Jaroslaw þykir snjall- ari pólitíkus en um leið þykir hann alls ekki viðkunnalegur, sérlundað- ur einfari sem kann hvorki á bíl né tölvu, auk þess sem hann neitar að halda bankareikning og þarf því iðulega að fá greitt í reiðufé. Lech var hins vegar alþýðlegur húmoristi sem lífið lék við, hann fiskaði at- kvæðin á meðan Jaroslaw plottaði. En Jaroslaw tapaði kosningunum árið 2007 og það var útlit fyrir að Lech myndi tapa forsetaembættinu árið 2010. Sem hann og gerði – en ekki í kosningum. Flogið yfir blóðuga velli Ófáar þjóðir Evrópu eiga sína sorgar vel l i. Gyðingar eiga Auschwitz og Pólverjar eiga Katyn. Áður en gyðingum var slátrað af Þjóðverjum í Póllandi hafði Pól- verjum nefnilega verið slátrað í Katyn, skóglendi í vesturhluta Rússlands. Þar slátraði rússneska leyniþjónustan meira en 20 þúsund pólskum hermönnum á vordögum 1940. Rússar kenndu á sínum tíma Þjóðverjum um voðaverkin og á kommúnistatímanum var Katyn bannorð – það gat verið hættulegt að svo mikið sem minnast á voða- verkin, en á endanum viðurkenndi Gorbatstjof þó ábyrgð Sovétmanna á harmleiknum. Þessu til viðbótar var Katyn staðurinn sem komm- únistastjórnin lagði á ráðin um að koma mörgum helstu mennta- mönnum Póllands fyrir kattarnef stuttu eftir stríð. Til þess að breiða yfir samvinnu sína við nasista þá máluðu Sovétmenn pólsk stjórn- völd fyrir stríð sem barbaríska fasistastjórn og sama gilti um ótal pólskar stríðshetjur sem urðu ofsóttar eftir stríð. Katyn virtist þannig vera skurð- punkturinn þar sem öll ógæfa Pól- lands rennur saman í – og sú tilf- inning ágerðist bara þegar minnast átti atburðanna 70 árum síðar, árið 2010. En í stað þess að minnast gamallar sorgar soguðust Pólverjar inní þoku nýrrar sorgar. Þokan var svo þykk að það sá ekki út úr augum þegar flugvél, með Lech Kaczynski forseta og eiginkonu hans innan- borðs, brotlenti á leið sinni á minn- ingarathöfnina. Í vélinni voru líka seðlabankastjóri Póllands, 18 þing- menn, flestir yfirmenn hersins og nokkrir afkomendur fórnarlamba hins upprunalega harmleiks. Það voru 96 manns um borð í vélinni og enginn lifði af. Minningarathöfn gat af sér aðra minningarathöfn. Niðurstaðan var einföld; slys. Einhverjir héldu því þó fram að Lech forseti hefði beitt óþarfa þrýstingi, heimtað að reynt yrði að lenda þrátt fyrir ómöguleg veður- skilyrði, því hann vildi ekki verða of seinn. Þetta var upphafið að kosn- ingabaráttunni og það var útlit fyrir að hún yrði nógu erfið án þess að hann myndi missa af eða verða of seinn á þennan lykilviðburð. Einnig hefur verið talað um að þeir bræður hafi verið í símasambandi og Jaros- law hafi þrýst á Lech að halda för- inni áfram. En opinberlega dylgjar Jaroslaw þó iðulega um að Kreml hafi borið ábyrgð á slysinu, þótt ekkert benti til þess. Það passar hins vegar vel við söguskoðun þar sem Rússar eru hinn eilífi óvinur og þannig reyndist þetta slys svo síðasta bragðefnið í þann eitraða kokteil sem átti eftir að gera hann að valdamesta manni Póllands. Eftir slysið hefur hann ávallt gengið um svartklæddur – skuggi hins látna bróður hangir yfir honum og Póllandi öllu. Konurnar sem mótmæltu Mögulega var harmleikurinn akkúrat það sem Jaroslaw þurfti til þess að ná völdum aftur. Hann fékk kirkjuna í lið með sér og náði þar með góðu taki á landsbyggðinni – og bætti í með útlendingahatri og paranoju, ýkti upp úr öllu valdi ógnina sem stóð af Þýskalandi, nú öflugasta landi Evrópusambands- ins, og Rússlandi. Það er skautað vandlega fram hjá því að þetta sé breyttur heimur – fornir óvinir Pól- lands bíða enn við hvert fótmál í heimsmynd Jaroslaws og vilja þar að auki eyðileggja gömul og góð pólsk gildi með vafasamri vest- rænni frjálshyggju. Regnhlífarnar í Póllandi. Pólskar konur létu rigninguna ekki stöðva sig í að mótmæla. Mynd | Getty Það er hellingur af Pólverjum í borgum á borð við Varsjá og Kraká sem eru hjartanlega ósammála áherslum Jaroslaws – en bakland hans er í afskekktum sveitum þar sem menn telja sig svikna af land- búnaðarstefnu Evrópusambands- ins, íhaldssömum samfélögum þar sem kirkjan ræður og vestrænt frjálslyndi á lítt upp á pallborðið. Með þessu náði hann að búa til eitraðan kokteil þar sem þjóð- ernishyggja, byggð bæði á raun- veruleika pólskrar sögu – þegar ná- grannaríkin réðust á Pólland, sem og á Moskvulyginni sem ýkti allar syndir Þjóðverja og dró úr syndum þeirra sjálfra til að tryggja eigin stöðu. Þýskaland og Rússland urðu því grýlurnar, byggðar á eldgamalli heimsmynd, að ógleymdum flótta- mönnunum, sem Jaroslaw fullyrðir að „færi kóleru til grísku eyjanna, blóðkreppusótt til Vínarborgar og alls kyns sníkjudýr að auki.“ Með þessa stefnu í farteskinu tókst flokknum hans, Lög og rétt- læti (skammstafað PiS), að ná 37,5 prósentum atkvæða – sem dugði til hreins meirihluta í pólska þinginu (þar hjálpar að fimm prósenta þröskuldurinn sem er í gildi hér- lendis er átta prósent í Póllandi). Jaroslaw sjálfur gegnir þó engu embætti öðru en að vera formaður flokksins. Hann virðist mjög með- vitaður um eigin skort á kjörþokka, þannig að hann fær samflokksmenn sína til þess að taka að sér embætti forseta og forsætisráðherra – en það efast þó fáir um að hann ráði því sem hann vilji ráða bak við tjöldin. Hér ber þó að taka fram að þótt flokkurinn sæki í smiðju öfgahægri- flokka þegar kemur að afturhalds- sömu siðferði þá hjálpaði mikil áhersla flokksins á bætt velferðar- kerfi honum líka að ná kjöri, sér- staklega stórbættar barnabætur. Þótt ríkisstjórnin hafi sætt harðri gagnrýni fyrir að múlbinda fjöl- miðla og dómstóla landsins þá urðu það hins vegar pólskar konur sem urðu loks til þess að ríkisstjórnin þurfti að hörfa. Kornið sem fyllti mælinn var frumvarp um hert- ari fóstureyðingalöggjöf – og er sú löggjöf nú þegar ein sú strangasta í Evrópu. Fóstureyðingar eru nú þegar bannaðar – nema ef líf móð- ur er í hættu eða ef þungunin varð vegna nauðgunar eða sifjaspells. Nú átti meira að segja að girða fyrir þetta – og um leið hætta lífi fjölda kvenna. Þess ber að geta að undan- farin ár er talið að um þúsund löglegar fóstureyðingar séu fram- kvæmdar árlega í Póllandi – en því til viðbótar séu 80 til 190 þús- und fóstureyðingar sem eru annað hvort framkvæmdar ólöglega við misjafnar aðstæður eða á erlendum spítölum. Nýju lögin urðu til þess að pólskar konur fengu nóg. Ekki bara þær frjálslyndari, heldur líka margar sem studdu það bann sem þegar var við fóstureyðingum. Þær mættu svartklæddar á götur Póllands og mótmæltu, fóru í verkfall að ís- lenskri fyrirmynd – og tókst loks að láta ríkisstjórnina bakka og lögin voru dregin til baka stuttu síðar. Mótmælin munu vafalaust verða vatn á myllu andspyrnu- hreyfingunnar KOD, sem minn- ir um margt á Samstöðu en hefur ekki enn tekist að ná sömu breiðu samstöðunni meðal mismunandi þjóðfélagshópa – sem stendur er hópurinn borinn uppi af menntaðri millistétt og hefur ekki enn náð til yngri Pólverja á vinstri vængnum eða til landsbyggðarinnar. Það á enn eftir að koma í ljós hvort þetta var bara hraðahindrun á valdabraut Jaroslaw Kaczynski og félaga eða upphafið að endan- um. Þótt Pólverjar séu margir hallir undir þjóðernishyggju eru þeir líka Evrópusinnar – um þrír fjórðu hlut- ar landsmanna vilja vera áfram í Evrópusambandinu og tíminn einn mun leiða í ljós hvort framtíð þeirra verður þar eða í harðstjórnarfaðmi Jaroslaws. Ein af síðustu myndum pólska meistarans Andrzej Wajda fjallaði um harmleikinn í Katyn. Andspyrnuleiðtoginn Lech Walesa veitir eiginhandaráritanir árið 1980. Það er enginn vafi á því að jólablað Fréttatímans er góður staður til þess að kynna jólavörur og þjónustu. Í blaðinu verður spennandi jólatengt efni af ýmsum toga, skrifað af reyndum blaðamönnum. Að auki verða í blaðinu vörukynningar í samvinnu við fyrirtæki. auglysingar@frettatiminn.is | 531 3300 Jólablaðið Þann 24. nóvember

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.