Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 11.11.2016, Side 26

Fréttatíminn - 11.11.2016, Side 26
26 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 11. nóvember 2016 Þórdís Gísladóttir er eitt vinsælasta og víðlesnasta ljóðskáld landsins, þykir skemmtileg, beinskeytt og kaldhæðin í ljóðum sínum, og fjórða ljóðabók hennar, Óvissustig, er ekki líkleg til að breyta því áliti. Hún er enn jafn lagin við að sýna okkur það sem við skömmumst okkar fyrir í eigin fari. Friðrika Benónýsdóttir fridrika@frettatiminn.is Óvissustig er fjórða ljóðabók Þór- dísar Gísladóttur og sver sig í ætt hinna fyrri; hér hljómar rödd þeirra sem yfirleitt heyrast hvorki né sjást í þjóðfélaginu. Hefur Þórdís tekið það að sér að gefa þeim rödd? „Ég veit það nú ekki,“ segir hún hikandi. „Jú, það má kannski segja að ég tali fyrir hönd venjulega fólks- ins án þess ég hafi sérstaklega ætlað mér það. Mér finnst bara það sem er undir yfirborðinu yfirleitt skemmti- legra heldur en það sem er á Face- book.“ Ljóðskáld mega náttúru- lega vera mjög skrýtin eða þá – að því er sumum finnst – einhvers konar sjáendur sem skrifa eitt- hvað gáfulegt og fullkom- ið sem hægt er að nota í minningargreinar.“ Það í lífinu enginnvinnur Afkvæmi bloggsamfélagsins Þórdís byrjaði ritferilinn sem bloggari, hélt úti geysivinsælu bloggi sem hét Sól í Norðurmýri og þau skrif urðu kveikjan að fyrstu ljóðabókinni, Leyndarmál annarra, sem hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2010. Hún segir það þó kannski ekki hafa verið fyrstu skrefin á rit- vellinum. „Ég var búin að skrifa alls konar skýrslur og fundargerð- ir og þýða hitt og þetta áður en ég byrjaði að blogga. En vissulega var það bloggsíðan sem varð til þess að fyrsta bókin mín kom út. Það var skyndiákvörðun hjá mér að senda handrit inn í Tómasarkeppnina og þá tók ég eitt og annað af bloggsíð- unni og vann texta upp úr því, auk þess sem ég bætti nokkrum text- um við. En ég er gamalt afkvæmi bloggmenningarnar, það er engin spurning.“ Finnst leiðinlegt á fundum Þórdís er íslenskufræðingur frá Háskóla Íslands og með próf í nor- rænum fræðum frá Svíþjóð en það var þó ekkert endilega meiningin að fara sjálf að skrifa. Eftir heim- komu frá Svíþjóð vann hún sem verkefnastjóri hjá Háskólanum, en hún segir það ekki hafa átt vel við sig. „Mér fannst ég bara ekkert góð í þessu. Ég er ekki góð að skipuleggja hluti, mér finnst leiðinlegt á fund- um, en það var ótrúlega skemmti- legt fólk að vinna hjá Háskólanum og ég var þarna í fimm ár. Ég var samt alltaf viss um að ég væri ekki rétta manneskjan í þetta starf svo ég bara sagði upp. Fólk trúði ekki eigin eyrum og allir spurðu hvað ég ætlaði eiginlega að fara að gera, en ég vissi ekkert um það. Ég var samt ekkert stressuð, ég gat þess vegna alveg hugsað mér að fara að vinna í blómabúð eða eitthvað. Ég fékk fljótlega afleysingastarf á auglýsingastofu þar sem ég vann í fjóra mánuði, kenndi í menntaskóla eina önn og fleira. Svo byrjaði ég að þýða á fullu og tók að mér alls konar verkefni, gera eina og eina þáttaröð fyrir útvarp og mér fannst þessi lausamennska bara henta mér miklu betur.“ Erum öll skrýtin Barnabækur Þórdísar um Randa- lín og Munda hafa notið mikilla vinsælda, hún þýðir eina til tvær bækur á ári og auk Óvissustigs er unglingabókin Doddi – Bók sann- leikans!, sem hún skrifaði með Hildi Knútsdóttur að koma út hjá Bóka- beitunni. Hún hefur verið rithöf- undur í fullu starfi síðan 2010 og á sér tryggan aðdáendahóp. Fólkið sem hún skrifar um í ljóðabókun- um er allt meira og minna mislukk- að, er það kannski skýringin á vin- sældunum, samsama lesendur sig þessu fólki? „Það er kannski ekki allt mislukk- að, þetta fólk sem ég skrifa um,“ segir Þórdís og tekur upp þykkj- una fyrir sköpunarverk sín. „Eru ekki allir með alls konar vankanta? Ég hugsa stundum um þetta þegar ég er að hugsa um allt þetta sem þarf að opna umræðuna um, alla þessa nýju sjúkdóma eins og bak- flæði og fóbíur og óhamingju og ástarsorgir, og ég er eiginlega á því að allir séu meira og minna haldn- ir af einhverju af þessu – eða öllu. Ég er kannski svona svartsýn eða jarðbundin eða eitthvað en ég held við séum öll skrýtin. Kannski er það af því ég var nokkur sumur rit- ari á geðdeild og er bara alltaf að skrifa um fólkið sem kom á bráða- geðdeildina, ég skildi það svo vel. Ég held að persónurnar mínar séu bara venjulegt fólk. Flestir eru skrýtnari en maður heldur og mað- ur sjálfur örugglega líka.“ Er engin Sofi Oksanen Eitt af því sem Þórdís tekur fyrir í Óvissustigi er gervilífið sem fólk lifir EXPLORE WITHOUT LIMITS ® ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF. KLETTHÁLSI 3 110 REYKJAVÍK SÍMI: 540 4900 NETFANG: info@arctictrucks.is www.arctictrucks.com VÖNDUÐ JEPPADEKK FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR VÖNDUÐ OG HLJÓÐLÁT DEKK UNDIR FLESTAR GERÐIR JEPPA OG JEPPLINGA. STÆRÐIR FRÁ 29-44 TOMMU. ÖLL ALMENN DEKKJAÞJÓNUSTA TÍMABÓKANIR Í SÍMA 540 4900 „Það er kannski ekki allt mislukk- að, þetta fólk sem ég skrifa um,“ segir Þórdís Gísladóttir. Myndir | Hari

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.