Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 11.11.2016, Qupperneq 34

Fréttatíminn - 11.11.2016, Qupperneq 34
34 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 11. nóvember 2016 5 vinsælustu hlutir Krónunnar Losaðu þig við Krónukvíðahnútinn! Erfitt getur verið að velja hvað á að fá sér í Krónunni. Margar allskyns hlutir eru í boði og stundum getur valið flækst fyrir manni þegar á að fara velja eitthvað í matinn. Til að komast hjá í kvíðakasti yfir því hvað á að kaupa nýtt fyrir heim- ilið hefur Fréttatíminn ákveðið að aðstoða við valið með því að afhjúpa fimm vinsælustu hlutina í  Krónunni: 1 OATLY hafradrykkir Vinsælasta vara Krónunnar er vegan haframjólkin OATLY. Til lukku veganar, það er allt á réttri leið! 2 Jóla klementínur Hver elskar ekki að komast í alvöru jólaskap og vera klístr- aður á puttunum af yndislegri jóla klementínulykt. Samkvæmt Krónunni elska allavega margir að komast í jólaskap og verða klístraðir á puttunum. Áfram jóla- skap! 5 URTEKRAM kókoshnetu sjampó & næring Næring sem er bæði lífræn og vegan, það verður eiginlega ekki betra. Leyfðu hárinu þínu að fá aðeins það besta sem Krónan býð- ur upp á og stoltið og ánægjan fer með þér inn í daginn. 4 Lárperur Lárperumauk með snakki, ristað brauð með lárperu og salti, lárperusalat, lárpera í morgun- safann, listinn er endalaus. Það kemur ekki á óvart að lárper- an sé á topplista yfir mest keyptu hlutina, enda er hún dásamleg. 3 Grillaður kjúklingur Nennirðu ekki að elda og þú hefur pantað pítsu aðeins of oft í vikunni? Hlauptu í Krón- una og náðu þér í einn eldheit- an kjúkling og málið er dautt. Nikký og skuggaþjófurinn eftir Brynju Sif Skúladóttur Hún sá eitthvað risastórt koma út úr þokunni – sem líktist ógnarstórum ál með haus á stærð við lítinn fólksbíl. Kjafturinn á skepnunni var opinn. Nikký öskraði af lífs og sálarkröftum, greip um höfuðið og grúfði sig niður í jörðina. Nú var þetta búið. Skrímslið ætlaði að gleypa hana. Nikký og skuggaþjófurinn er sjálfstætt framhald fyrri bóka um þessa dugmiklu stúlku. Nikký er orðin þrettán ára gömul og fram undan er æsispennandi sumar. Amma Mandana og sirkusinn eru á leiðinni til Íslands. En þau eru ekki fyrr komin til landsins þegar dularfullir hlutir gerast og Nikký og vinir hennar sogast inn í hringiðu óhugnanlegra atburða ... Við vorum að ljúka við afhöggvinn haus,“ segir Arngrímur Guðmunds-son, lærlingur hjá Heimi Sverrissyni leikmynda- hönnuði og leikmunasmiði. Arn- grímur hafði samband við Irma Studio, fyrirtæki Heimis, eftir að hann sá nafn fyrirtækisins í kredit- lista þáttanna Ófærð en Heimir og félagar bjuggu til líkið í þáttunum sem mörgum landanum er enn afar minnisstætt. „Arngrímur sendi mér tölvu- póst og kynnti sig sem 17 ára gamlan menntskæling sem langaði að vinna við kvikmyndir. Hann sagðist vera handlaginn og sendi mér myndir af körlum sem hann hafði tálgað. Mér fannst það svo rosalega flott að réði hann strax í vinnu. Ég veit ekki hvernig hann hafði upp á mér.“ „Ég hafði bara samband þegar ég sá hverjir hefðu gert líkið í Ófærð. Hef alltaf verið að smíða, mála og tálga. Hef svo mikinn áhuga á að búa til hluti. Áður en ég sótti um vinnu hjá þeim hafði ég verið að tálga allskonar karaktera úr myndum, þáttum og kalla sem ég bjó bara til. Sendi þeim myndir af þeim.“ segir Arngrímur. Heimir tekur til máls: „Ég er búinn að kenna honum á silíkon og að búa til áverka. Við vorum að ljúka við þennan ófrýnilega haus og erum núna að vinna í bíómynd sem heitir Ég man þig og er byggð á bók Yrsu Sigurðardóttur. Við þurfum að búa til leikmuni fyrir kirkju sem er rústað tvisvar sinn- um í myndinni.“ „Kirkjumunirnir þurfa að vera mjög trúverðugir en þeir eru síðan brotnir. Svo erum við að smíða Afhöggvinn haus og brotnir kirkjumunir Meistarinn og lærlingurinn. Birna Guðmundsdóttir birna@frettatiminn.is Haus og hjarta sem Heimir og Arngrímur hafa búið til Myndir | Hari Heimir hefur unnið í kvikmynda- geiranum í mörg ár. Arngrímur er handlaginn 17 ára menntskælingur. altaristöflur úr tré sem við hand- málum. Rúður sem hægt er að kýla í gegnum. Skálar sem hægt er að brjóta á andliti fólks án þess að það meiði sig. Búum líka til mikið af vopnum.“ „Arngrímur er rosalega fljótur að læra. Það er sama hvað maður setur honum fyrir hann klárar allt með glæsibrag. Annað hvort er maður með þennan hæfileika eða ekki. Hann er með þetta.“ „Það besta er líklega kennslan sem maður fær. Heimir kennir mér flest allt en ég er líka að horfa á myndbönd á netinu um hvern- ig maður á að gera hlutina. Efnin sem maður notar eru svo dýr að það er ekki hægt að gera neitt annarsstaðar en í vinnunni. Þetta er miklu skemmtilegra en mennta- skóli.“ Ókeypis japönsk veisla Áhugafólk um japanskan mat ætti að fá vatn í munninn um næstu helgi en þá verður japönsk kvikmyndaveisla í Háskólabíói. Kvikmyndirnar eiga það allar sameiginlegt að fjalla um japanska matarmenningu á einn eða annan hátt. Opnunarmynd hátíðarinn- ar er A tale of a Samurai cooking frá árinu 2014 en hún fjallar um Oharu, unga stúlku sem er gift samúræja-kokkinum Yasanobu. Yasanobu er alls ekki góður kokk- ur þó hann vinni við að elda mat fyrir samúræja og þarf að kyngja stoltinu þegar Oharu kennir hon- um hvernig á að fara að í eldhús- inu. Myndin, sem er ein af fimm myndum hátíðarinnar, er sjónræn veisla sem lætur engan áhuga- mann um japanska menningu ósnortinn. Það er Íslensk-japanska félagið sem stendur fyrir hátíðinni í Háskólabíó dagana 18. og 19. nóvember. Ókeypis er inn á allar myndir. | hh

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.