Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 11.11.2016, Qupperneq 36

Fréttatíminn - 11.11.2016, Qupperneq 36
36 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 11. nóvember 2016 Þegar við erum ástfangin eða í ástar sorg eigum við til að taka heldur „drastískar“ ákvarðanir sem oft eru lítið úthugsaðar. Agnes Björgvinsdóttir deilir með Fréttatímanum því klikk- aðasta sem hún hefur gert í ástarmálum. „Ég er hvatvís og hef óbilandi trú á eigin sjarma. Ég kynntist fyrrver­ andi kærasta mínum á Ellefunni um jól þar sem hann var með vinkonu minni og kærasta hennar. Hann var frændi vinkonunnar og í heimsókn á Íslandi en bjó í Svíþjóð. Við fórum í sleik á Ellefunni, eins og hefð er fyrir, en kærasti vinkonu minnar var eitthvað ósáttur við að ég hefði stokkið á frænda kærustunnar svo við enduðum á að rífast í tvo tíma á barnum svo ég týndi gæjanum. Þegar við vorum búin að sættast bað ég vinkonu mína að hringja í frænda sinn og segja að ég væri að koma að sækja hann. Sem ég og gerði. Ég tók leigubíl þangað sem hann gisti í von og óvon um að hann kæmi út. Ríghélt í leigubílstjórann allan tímann og var bara: Ohh, ég er svo stressuð. Hvað á ég að gera ef hann kemur ekki út? Síðan labbar hann út úr húsinu og ég segi við bílstjórann. „Act cool, act cool!“ Þannig að við leigubílstjórinn vor­ um ofur slök þegar hann kom inn í bílinn. Þremur vikum seinna var ég komin í heimsókn til Stokkhólms til nýja kærastans míns. Eftir á að hyggja er fyndið að hugsa til leigu­ bílstjórans sem tók fullan þátt í leik­ ritinu,“ segir Agnes. „Einu sinni var ég líka nýbúin að kynnast strák sem mér leist vel á. Hann „addaði“ mér á Facebook og ég sendi honum frumsamið ljóð þar og óskaði eftir að hann byði mér á stefnumót. Ljóðinu fylgdi beiðni um svar í bundnu máli. Við höfum enn ekki farið á stefnumót.“ Agnes segist líka geta verið dramatísk. „Þegar ég var í mennta­ skóla var ég mjög skotin í vini mín­ um. Við fórum á nokkur stefnumót í september en hann sagði síðan hreint út að hann væri ekki nógu skotinn. Í apríl þar á eftir fór ég á hátíðina Aldrei fór ég suður og ákvað í ölæði mínu að ég væri enn skotin í honum. Skrifaði langt og einlægt sms sem ég sendi. Þegar ég kom heim um nóttina áttaði ég mig á að ég hefði ekki sent á rétt númer. Hefði átt að láta kyrrt liggja en ákvað að senda þetta hádramatíska sms í rétt númer. Við erum vinir í dag en höfum enn ekki rætt um­ rædd skilaboð.“ | bg Leigubílstjórinn tók fullan þátt í leikritinu Agnes Björgvinsdóttir er hvatvís og hefur óbilandi trú á sjarma sínum. Mynd | Hari DUO ACTIVE JUNIOR SLONG JOHNS 205 GR 7.990.kr DUO ACTIVE JUNIOR HALF ZIP NECK 205 GR 8.990.kr Í skítakulda og öskrandi roki eru Devold MERINO ULLARUNDIRFÖTIN lausnin. Amma með „fokk it“ hugarfar Amma og barnabarn tengjast í gegnum spuna. Agnes og María hafa alltaf verið mjög góðar vinkonur. Mynd | Móa Gustum. Mynd | Milica Minić Helga Dögg Ólafsdóttir helgadogg@frettatiminn.is Mér finnst að allir ættu að gera eitt­hvað skemmti­legt með ömmu sinni. Mér finnst mjög gaman að fá að vera besta vinkona ömmu minnar. Amma er með svona „fokk it“ hugar­ far og er ekki neitt að spá í hvað neinum finnst, sem er svo æðislegt í spunanum,“ segir Agnes Wild, ömmubarn Maríu Guðmundsdóttur, en þær leika saman í spunahópnum Improv Ísland í Þjóðleikhús­ kjallaranum. Agnes flutti heim til Íslands árið 2014 eftir að hafa lært leiklist í Bretlandi. Eftir að hún kom heim var erfitt að finna vinnu og datt Agnesi í hug að fá ömmu sína með sér, sem var þá á eftirlaunum, á námskeið hjá Improv Ísland: „Við sáum auglýst í einhverju blaði nám­ skeiðið hjá Haraldinum, nám­ skeið sem er haldið á vegum Improv Ísland og við ákváðum bara að skella okkur þangað og nú er ég orðin heiðurspuna­ leikari,“ segir María kát. María og Agnes hafa alltaf verið mjög góðar vinkonur og hafa verið lengi saman í leik­ listinni: „Við tengjumst mjög mikið í gegnum leiklistina. Við skrifum mikið saman og búum til leikrit og búum til grínsenur saman. Svo er amma bara svo ótrúlega hress og skemmtileg að það er bara ekki annað hægt en að vera vinkona hennar,“ segir Agnes og María hefur sömu sögu að segja. „Það er svo mikill styrkur þegar maður er orðinn svona gamall eins og ég, þá getur maður svolítið ruglast en ég get alltaf stólað á Agnesi og hennar viðbrögð. Hún er mjög ákveðin kona, eins og ég. Hún er frábær leik­ stjóri, mjög sanngjörn og frá­ bær leikari. Hún er líka alltaf í góðu skapi og drífur fólk með sér í hlutina. Hún er yndisleg manneskja og ég er stolt að eiga hana sem dótturdóttur,“ segir María um vinskap þeirra. Nokkur aldursmunur er á María og unga fólkinu í Improv hópnum hennar en hún lætur það ekki stoppa sig og heldur ótrauð áfram í leiklistinni. „Við erum alltaf að kynnast meira og meira og hún hringir oft í mig til að biðja um hjálp við allskyns verkefni. Síðast bað hún mig um aðstoð þegar við í Improv hópnum vorum öll að setja inn nýjar myndir fyrir samfélagsmiðla. Hún segir að hún geti ekki sett þessa „fokk­ ing“ mynd inn á Facebook og ég bauðst til að koma og hjálpa henni. Það er allskonar svona sem ég þarf stundum að hjálpa henni við,“ segir Agnes og hlær. Hvernig finnst þér að vinna með svona mikið með ungu fólki? „Þetta eru miklir og góðir karakterar og ég myndi segja vinir mínir. Maður finnur stundum fyrir aldrinum. Það var afmæli hjá einum í hópn­ um um daginn og við Agnes ákváðum að kíkja. Mér fannst stundum eins og ég væri á vöggustofu, þau voru öll svo ung. En það er meiriháttar að fá að vinna með þeim. Það bætir og kætir, eins og sagt er,“ segir María. Helga Dögg Ólafsdóttir helgadögg@frettatiminn.is „Guðrún frá Stígamótum hafði samband og ég varð mjög spennt og við ákváðum að gera þetta saman. Mann langaði strax til að gera eitthvað gagn því þetta er mjög mikilvægt málefni,“ segir Erna Ómarsdóttir, listdansstjóri Íslenska dansflokksins sem fór í lið með Stígamótum í þeim tilgangi að gera gjörning í tilefni söfnunarátaks Stígamóta sem ber heitið Styttum svartnættið. Tíminn sem líður frá því að kynferðisbrot er framið þar til brotaþoli leitar sér aðstoðar er oft langur og reyna Stígamót að beina ljósi sínu á það með allskyns gjörn­ ingum sem landsmenn geta fylgst með næstu vikuna. Hreinsunarathöfn „Ég fékk strax þá hugmynd að vera með hreinsunarathöfn. Dans sem ég dansaði áður í gamla daga, sem byrjaði í gríni en öllu gríni fylgir alvara. Hugmyndin var að við gætum öll andað saman, dansað saman, öskrað saman og faðmast. Svo kom svo hugmynd að við mynd­ um gera þetta beint fyrir framan héraðsdóm. Þetta var táknrænn gjörningur þetta með að þrífa.“ Hugmynd Ernu fæddist einn daginn þar sem hún var að þrífa íbúð sína en nennti því alls ekki og nýtti sér þá dansinn til að gera tiltektina skemmtilegri: „Maður er að slá tvær flugur í einu höggi, þrífa skítinn og sálina og hugann. Maður verður endurnærður andlega og líkamlega og allt „spikk og span“ heima hjá manni.“ Enn að jafna sig Það hefur alltaf verið draumur Ernu að nýta reynslu sína í tilgang sem gefur áfram: „Það er táknrænt að gefa þessari byggingu góða orku. Þetta var eins og nútíma særing, henda út neikvæðri orku. Þátttak­ endur voru þolendur kynferðisof­ beldis, dansarar Íslenska dans­ flokksins, starfsfólk Stígamóta og allskonar fólk sem vildi vera með til þess að styðja þetta góða mál­ efni. Það var mjög sterk upplifun að vinna með þessu fólki og svo að gera þennan dans fyrir framan allt þetta fólk sem bjóst ekki við þessu niður á Lækjartorgi. Það kom eigin­ lega á óvart hvað þetta hafði mikil áhrif, þetta er málefni sem maður getur verið mjög reiður og leiður yfir hvernig hlutirnir eru þannig ég fór að háskæla og ég er enn að jafna mig.“ Gjörningur Stígamóta: Nútíma særing Hún er frábær leik- stjóri, mjög sann- gjörn og frábær leikari. Hún er líka alltaf í góðu skapi og drífur fólk með sér í hlutina. Hún er yndis- leg manneskja og ég er stolt að eiga hana sem dótturdóttur. María Guðmundsdóttir

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.