Fréttatíminn - 11.11.2016, Page 46
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
„Mér fannst að ég þyrfti að taka mig
aðeins á. Ég hafði verið dugleg að
mæta í ræktina í tvö ár en það var
mjög ómarkvisst. Ég vissi reyndar
ekki að ég væri að fara út í lyftingar,
ég ákvað bara að prófa að fara til
þjálfara og þetta er það sem hann
notar,“ segir Silja Bára Ómarsdótt-
ir, aðjúnkt við Stjórnmálafræði-
deild Háskóla Íslands, sem æft hef-
ur kraftlyftingar síðastliðin þrjú ár,
undir dyggri leiðsögn einkaþjálfar-
ans Ingimundar Björgvinssonar.
Silja Bára fann fljótlega að kraft-
lyftingarnar áttu vel við hana og
þegar hún komst á bragðið var ekki
aftur snúið. Nú tekur hún orðið 100
kíló í réttstöðu, 50 kíló í bekkpressu
og stefnir á að ná 100 kílóum í hné-
beygju fyrir jól.
Rosaleg líkamsrækt
Lyftingarnar hafa gert mikið fyr-
ir líkamlega heilsu hennar. „Ég er
sterkari, með meira þol, mér finnst
ég bera mig betur og fæ síður vöðva-
bólgu og verki. Svo er þetta mjög
góð líkamsrækt að því leytinu að
maður þarf að vera viðstaddur í
hausnum líka. Hér áður þegar ég fór
í ræktina þá kveikti ég á einhverjum
þætti og var að gera eitthvað annað
á meðan ég var að æfa. En í þessu
þarf maður að vera mjög meðvitað-
ur um líkamsstöðu og hvernig mað-
ur beitir sér. Mér finnst líka gott að
þetta er rosaleg líkamsrækt, en ekki
beinlínis mikil hreyfing. Maður þarf
ekki hraða eða slíkt, það eru engin
högg á liði, en maður vinnur samt
mikið með líkamann.“
Árangurinn mjög skýr
Silju Báru þykir það einnig kostur
við lyftingarnar hvað árangurinn
er vel mælanlegur. „Ef maður fer í
þrektíma þá veit maður ekkert endi-
lega hvort maður er að gera meira
eða minna en maður gerði síðasta
tíma, en í þessu veit ég nákvæmlega
hvað ég er að lyfta þungu og það er
mjög skýrt þegar markmiðinu hefur
verið náð.“
Árangurinn sést þó ekki á einni
nóttu og því þarf þolinmæði og elju-
semi til að ná markmiðunum. „Ég
tók 100 kíló í réttstöðu fyrir ári og
ég er enn ekki farin að taka meira,
þannig nú er mig farið að langa að
bæta við. Mér finnst gott að setja
mér markmið fyrir árið og vinna
að því smám saman.“
Þarf ekki að vera mjó og létt
Ein af ástæðunum fyrir því að Silja
Bára hefur haldið sig við lyftingarn-
ar er sú að hún vill gera eitthvað
styrkjandi, sérstaklega í ljósi þess
að rannsóknir hafa sýnt fram á að
vöðvamassi kvenna rýrnar mjög
hratt eftir fertugt. „Það sem ég fíla
líka við þessa íþrótt er að það er
engin áhersla á að vera mjó eða létt,
þetta snýst um styrk. Svo er líka frá-
bært samfélag í kringum lyftingarn-
ar og skemmtilegar konur á öllum
aldri að lyfta með mér. Þar sem ég
er að æfa er þetta mikið kvenna-
sport þó það sé einn og einn karl
á stangli,“ segir Silja Bára kímin en
henni hefur tekist að draga nokkr-
ar vinkonur með sér æfingar sem
flestar hafa haft gaman af þó þær
hafi ekki allar haldið áfram að æfa.
En áhuginn á lyftingunum er svo
sannarlega að aukast, þá sérstak-
lega meðal kvenna og segir Silja
Bára það sjást vel á bætti aðstöðu.
„Nú er kominn sérsalur þar sem
fólk er ekki að gera neitt annað en
að lyfta og það eru alltaf að bætast
við rekkar þannig það er augljóslega
mikil eftirspurn.“
Kraftakona Silja Bára stefnir á að geta tekið 100 kíló í hnébeygju fyrir jól. Mynd | Rut
Silja Bára lyftir 100 kílóum
Hefur æft lyftingar í þrjú ár og kann vel að meta hvað þær eru rosaleg
líkamsrækt án þess að vera mikil hreyfing.CURCUMIN
Gullkryddið
Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður,
Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla.
Steinunn Kristjánsdóttir er sjúkraliði að mennt og
starfar í Blue Lagoon versluninni á Laugavegi. Hún
hefur átt við mikla verki að stríða um allann líkama í
með liðagigt.
„Ég er búin að taka inn minn skammt af verkjalyfjum
og var alveg að gefast upp á þeim. Nuddkonan mín
sagði mér þá frá Curcumin sem hefur í sannleika
sagt gefið mér nýtt líf. Ég var búin að taka inn Curcumin í einn og hálfan
mánuð þegar ég missti út fjóra daga og það var þá sem ég uppgötvaði að
Curcumin er það sem hjálpar mér að losna við alla verki.”
LIÐIR – BÓLGUR – GIGT
Bætt heilsa og betri líðan með
Natural Health Labs
100% náttúruleg bætiefni
balsam.is
…heilsa kynningar 6 | amk… FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2016
Fann stressið minnka, náði djúpslökun
og vaknaði endurnærð
Náttúruleg lausn við svefnvandamálum, kvíða og þunglyndi.
Unnið í samstarfi við Balsam
Áttu erfitt með svefn, vakn-ar þú oft ósofin/n eða er streitan og kvíðinn að ná tökum á þér? Magnol-
ia frá Natural Health Labs
er tilvalið fyrir þá sem glíma
við svefnvandamál,
streitu, kvíða eða
depurð. Magnolia
stuðlar að heilbrigð-
um samfelldum svefni
ásamt því að vinna
gegn streitu, kvíða
og depurð og bætir
andlega og líkamlega
líðan.
Náttúruleg lausn við
svefnvandamálum,
kvíða og þunglyndi
Börkur af plöntunni Magnolia sem
vex í fjallahéruðum Kína hefur
verið notaður við svefnvandamál-
um, kvíða og þunglyndi í meira en
2000 ár í Asíu. Rekja má ótrúlegan
lækningamátt hans til náttúrulega
efnanna honokiol og magnolol.
Börkurinn virkjar taugaboðefni
í heilanum sem hafa slakandi og
róandi áhrif og stuðla að heilbrigð-
um og samfelldum svefni. Börk-
urinn vinnur einnig gríðarlega vel
gegn stressi, kvíða og þunglyndi
með því að koma jafnvægi á horm-
ónið cortisol sem er stundum kall-
að stress hormónið. Nýleg rann-
sókn frá Landlæknisembættinu
sýnir að um þriðjungur Íslendinga
á við svefnvandamál eða þung-
lyndi að stríða. Natural Health
Labs eru hrein náttúru-
leg bætiefni sem inni-
halda hvorki rotvarn-
arefni né fylliefni og
eru án allra aukaefna.
Magnolia kemur í græn-
metishylkjum og telst
því vegan.
„Vaknaði
endurnærð“
„Ég vinn í tarnavinnu, sérstak-
lega kringum jól og páska, og þá
er lítið sofið og mikið unnið. Svo
byrjaði ég að taka inn Magnolia,
vinkona mín mælti með því að ég
prófaði. Strax fyrstu nóttina sofn-
aði ég dýpra, fann stressið minnka
og náði djúpslökun – og vakn-
aði endurnærð,“ segir Kristín
Þorgeirsdóttir ljósmyndari,
Krissý. „Ég tek Magnoliu
til að sofa betur og til
að minnka stress
og kvíða yfir
daginn. Ég
tek það inn
yfir daginn
ef það það er
mikil pressa í
vinnunni. Ég mæli með
Magnoliu fyrir alla sem eiga erfitt
með að sofna eða sofa mjög laust,
líka ef það er álag og stress eða
kvíði. Ef ég þarf að vinna mikið þá
finn ég hvernig Magnolia dregur
úr þreytuverkjum í líkamanum og
hjálpar mér að vera róleg.
Ég elska líka
að þetta er 100%
nátturulegt.“
hefur þegar notið mikilla vinsælda
og hjálpað fjölmörgum íslending-
um. Magnolia er fáanlegt í öllum
apótekum landsins, Heilsuhúsinu,
Heilsuveri, Heilsutorgi Blómavals,
verslunum Hagkaupa, Iceland
Engihjalla, Fjarðarkaupum,
Orkusetrinu, á Heimkaup.
is og Heilsulausn.is .
1-2 hylki með vatnsglasi
kvölds og eða morgna.
Mælt er með 1-2 hylki að morgni
við kvíða og depurð.
Við svefnvandamálum er mælt
með 1-2 hylki með kvöldmat
eða um 30-60 mínútum fyrir
svefn.
Magnolia Ráðlögð notkun:
Kristín Þorgeirsdóttir ljósmyndari.