Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 11.11.2016, Síða 50

Fréttatíminn - 11.11.2016, Síða 50
…útivist kynningar 10 | amk… Föstudagur 11. nóvember 2016 Fjölbreytt úrval Í Ullarkistunni fást margar gerðir ullarfatnaðar; Þunn og þægileg ullarföt sem henta innan undir og þykkari flíkur sem henta sem millilag (til dæmis í staðinn fyrir flís). Sérfróðar um ullarföt Jóna Björk Guðjónsdóttir, Olga Ingrid Heiðarsdóttir og Salbjörg Ýr Guðjónsdóttir standa vaktina á hverjum degi í Ullarkistunni og sjá til þess að fólk finni nákvæmlega það sem því hentar. Myndir | Hari Ullarfatnaður er ómissandi fyrir íslenskan vetur Í Ullarkistunni er mikið úrval af ullarfatnaði fyrir börn og fullorðna, bæði til útivistar og daglegra nota. Unnið í samstarfi við Ullarkistuna Við erum með gífurlega mikið úrval af ullarfatn-aði. Hérna er eitthvað í boði fyrir alla,“ segir Olga Ingrid Heiðarsdóttir hjá verslun- inni Ullarkistunni við Laugaveg. Nú þegar veturinn er genginn í garð og framundan eru kald- ir dagar er vissara að vera vel búinn. Þá er sniðugt að kíkja við í Ullarkistunni þar sem er bæði mikið úrval af ullarfatnaði fyrir börn og fyrir fullorðna, hvort sem er til daglegra nota eða til úti- vistar. „Við erum með margar gerðir ullarfatnaðar; Þunn og þægileg ullarföt sem henta innan und- ir og þykkari flíkur sem henta sem millilag (til dæmis í staðinn fyrir flís). Við fengum nýjar línur í haust bæði fyrir fullorðna og börn sem eru rosalega flottar. Við höfum eiginlega átt í vandræðum með að koma öllum þessum vör- um fyrir í versluninni,“ segir Olga. Olga er sjálf mikil útivistar- manneskja og hefur til að mynda starfað sem jöklaleiðsögumaður. „Ég hef notað þessi föt frá því við byrjuðum fyrir ellefu árum og ég get staðfest að þetta er það sem virkar. Ég hef prófað það að klæð- ast fötum úr gerviefni og bómull og það er eins og svart og hvítt í samanburði við ullina. Það munar um það að vera í ullinni innst, sérstaklega hér á Íslandi þar sem maður veit aldrei hvað gerist í sambandi við veður. Svo eru föt- in svo þægileg og mjúk, enda úr merino-ull sem er mjúk og veldur ekki kláða.“ Foreldar Olgu stofnuðu versl- unina fyrir 11 árum, en hún hét upphaflega Janusbúðin og byrj- aði sem lítið söluhorn í þvotta- húsi sem fjölskyldan rak saman á Barónsstíg. „Mamma er norsk og mundi eftir Janus fötunum frá því hún var krakki og langaði að prófa að setja þau á markað hér.“ Skemmst er frá því að segja að ullarfötunum var svo vel tekið að fljótlega varð hornið að heilli verslun, þvottahúsið lagðist af og fjölskyldan sinnir í dag alfar- ið sölu á ullarfatnaði og rekur verslunina Ullarkistan sem er bæði á Laugavegi 25 í Reykjavík og á Glerártorgi á Akureyri. Þar að auki rekur fjölskyldan verslun í Noregi sem Olga opnaði þegar hún var þar við nám. „Okkar bestu meðmæli eru þegar fólk kemur til baka og segir að það verði að fá eitt sett í við- bót. Það segir mikið um vöruna að þegar fólk hefur prófað þá kem- ur það aftur. Margir vilja ekkert annað og það gildir bæði um börn og fullorðna,“ segir Olga Ingrid Heiðarsdóttir hjá Ullarkistunni. Nánari upplýsingar má fá á Facebooksíðu Ullarkistunnar. frettatiminn.is Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Kolbrún Björnsdóttir byrjaði síð- asta vetur að stunda gönguskíði og fjallgöngur og hyggst hún halda því áfram í vetur. Veturinn þar á und- an hjólaði hún líka en hjólið er nú í smá fríi vegna aðstæðna. Í haust fór hún svo á náttúruhlaupanámskeið þannig hlaupin verða líka á vetrar- prógramminu. Hún hefur því nóg fyrir stafni þó myrkrið og kuldinn taki völdin. Gott að fara í heitu pottana „Mér finnst myrkrið skemmtilegt. Það er eitthvað svo notalegt við það. Að vera til dæmis með vin- konum mínum að brölta upp fjall með flöktandi ljós og komast upp á topp er dásamleg tilfinning. Mér finnst snjórinn líka orðinn miklu skemmtilegri eftir að ég byrjaði að stunda útivist yfir vetrartímann og hlakka mjög til að komast á göngu- skíðin. Prófið líka að fara út í kuld- ann og hreyfa ykkur og fara svo í heitu pottana í sundi á eftir. Það toppar það fátt,“ segir Kolbrún að- spurð hvað sé skemmtilegast við að stunda útivist á veturna. Stofnaði óvart fjallgönguhóp Henni finnst best að hreyfa sig úti og veit fátt betra en að anda að sér fersku lofti. Og ef hana langar að prófa eitthvað nýtt þá lætur hún yfirleitt slag standa. „Mig langaði að prófa fjallgöngur og einhvern veginn gerðist það á einni kvöld- stund að ég bjó óvart til fjallgöngu- hóp ásamt vinkonum mínum og skráði mig í Landvætti sem þýddi að ég þurfti jafnframt að byrja að æfa gönguskíði, sund og hlaup.“ Kolbrún viðurkennir þó að það sé aðeins erfiðara að stunda úti- vist á veturna en á sumrin. „Það er samt ekkert sem ætti að stoppa fólk. Myrkrið setur auðvitað strik í reikninginn en þá er bara að nota gott höfuðljós og þegar það er hálka þá er bara að smella á sig broddum. Það er til heilmikið úrval bæði af ljósum og broddum og því um að gera að skoða vel úrvalið.“ En er aldrei erfitt að hafa sig út í kuldann? „Veðrið er alltaf verra þegar við horfum út um gluggann. Og kuldann er yfirleitt frekar auð- velt að klæða af sér, fyrir utan það að okkur hitnar svo vel á hreyf- ingu. Helsti gallinn við kuldann er að það getur verið óþægilegt að fá mjög kalt loft í lungun en ég passa mig þá bara á því að mæðast ekki of mikið köldustu dagana.“ Lenti í ævintýri á Esjunni Aðspurð hvort hún hafi lent í ein- hverjum ævintýrum eða hrakför- um í útivistinni að vetri til seg- ir hún fyrstu ferðina sína upp að Steini á Esjunni hafa verið heljar mikið ævintýri. „Við fórum nokkr- ar stelpur saman og lentum í alls kyns veðrum og það var nokkuð mikill snjór sem við þurftum að kljúfa. Broddarnir af öðrum skón- um týndust í snjónum sem gerði það aðeins meira krefjandi að klára ferðina upp og fara niður aftur og ég rembdist við að halda í við stelpurnar. Á tímabili fannst mér ég vera stödd í Hollywood stór- mynd og tvísýnt væri um líf mitt. Sem var auðvitað alls ekki raunin. En ég var líka þeim mun ánægðari með mig að hafa klárað þetta. En ég gat varla borðað eða baðað mig þegar ég kom heim, ég var svo gjör- samlega búin á því,“ segir Kolbrún sem stefnir á að vera dugleg í úti- vistinni í vetur og ætlar að reyna að fara eins oft út að leika og færi gefst. „Ég lenti í slysi í vor sem gerði það að verkum að ég gat gert mjög lítið í sumar og ætla því að nota veturinn í að koma mér aftur almennilega af stað.“ Dásamlegt að brölta upp á fjall Kolbrún veit fátt betra en að anda að sér fersku og lofti og stundar útivist af kappi yfir vetrartímann. Myrkrið skemmtilegt Kolbrún fer á gönguskíði, í fjallgöngur og hleypur á veturna. Hún segir auðvelt að klæða af sér kuldann og því óþarfi fyrir fólk að láta hann aftra sér. GLÆSILEGAR BORGIR Í A-EVRÓPU Í BEINU FLUGI Við bjóðum uppá glæsilegar borgir í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt, 2,3,4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup á hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum uppá skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki. BÚDAPEST Í UNGVERJALANDI Ein af fallegri borgum Evrópu, hún er þekkt fyrir sínar glæsi byggingar sem margar eru á minjaskrá Unesco, forna menningu og spa/heilsulindir. Þar hefur í árhundruði blandast saman ýmis menningaráhrif sem gerir borgina svo sérstaka. Flogið er tvisvar í viku allt árið. GDANSK Í PÓLLANDI Hansaborgin Gdansk er elsta og fallegasta borg Póllands, saga hennar nær aftur til ársins 997. Glæsilegur arkitektúr, forn menning og tónlistar-hátíðir hafa gert borgina að vinsælustu ferðamannaborg Póllands. Flogið er tvisvar í viku allt árið. VERÐ FRÁ 87.900.- WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900 VILNÍUS Í LITHÁEN Vilníus er eins og margar aðrar borgir í Eystrasaltinu frá miðöldum og glæsileg eftir því. Upphaf borgarinnar má rekja til ársins 1330 og er gamli bærinn á minjaskrá Unesco. Þröngar steinilagðar götur er viða að finna í gamla bænum og gamli byggingastíllinn blasir hvarvetna við. Flogið er tvisvar í viku allt árið.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.