Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 18.11.2016, Síða 16

Fréttatíminn - 18.11.2016, Síða 16
16 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 18. nóvember 2016 Eftir fyrstu hrinu borgarastríðs hins nýfrjálsa ríkis tók Mamdani sæti í fimm manna rannsóknarnefnd á vegum Afríkubandalagsins. Niður- staða nefndarinnar var að stærstur hluti ofbeldismanna hafi verið „glæpamenn“ að maka krókinn í upplausnarástandi. Mamdani skil- aði hinsvegar séráliti og taldi of- beldið framið af pólitískum gerend- um. Ágreiningur nefndarmanna undirstrikar átakamynstur í nútíma borgarastríðum í Afríku, hvernig gangsteravædd stríðin eru betur skýrð sem kerfi en keppni. Valdlausir fá vopn Borgarastríðið í Suður-Súdan hef- ur staðið yfir, með hléum, frá árinu 2013. Ef stríð skyldi kalla. Það hefur, líkt og mörg innanríkisátök nútím- ans, strítt gegn þeirri hefðbundnu túlkun að stríð séu línulaga ferli sem endar annað hvort með yfirburðum eins aðila eða friðarsamningum. Bein átök skæruliða og hermanna eru lágstemmd og einangruð við borgir. Þess vegna skýtur skökku við að fórnarlömb átakanna — hinir saklausu borgarar — skuli svo margir koma úr dreifbýli. Liðlega 80 prósent Suður-Súdana skrimta með aðferðum sem hafa lítið breyst frá upphafi landbúnað- ar, eiga kannski pál og plóg en sjá varla pappírs-peninga. Súdanskir skæruliðar í „borgarastríðinu“ fara ekki um þessar byggðir sem fiskar í sjó, samanber fleyg tilmæli Maó, til þess að ávinna sér stuðning. Þeir eitra sjóinn. Fólk er ekki fólk nema að það sé með réttan ættbálka- stimpil. Dinka. Nuer. Murle. Landið er þeirra. Á tungumáli Dinka þýð- ir „Dinka“ bókstaflega „fólk“. Og hvað skyldi „Nuer“ þýða á Nuer- ísku? „Hreinræktað fólk.“ Orðræð- an endurómar útsendingar Útvarp Hútú í aðdraganda þjóðarmorðanna í Rúanda árið 1994. Líkt og sagnfræðingurinn Eric Hobsbawm sagði, er freistingin til að grípa til morða og pyntinga æ meiri eftir því sem uppreisnarmað- ur skynjar sig nær botni samfélags- ins. Valdleysi spillir ekki síður en vald. Vopnin gefa ungum, atvinnu- lausum karlmönnum áður óþekkt völd og tilgang í lífinu. The Guardian greinir frá því hvernig Suður-Súdan varð að ruslakistu vopnasala í Afr- íku á meðan barátta landsins fyrir sjálfstæði stóð yfir. Talið er að um 3,2 milljón handvopna séu í umferð. Tveir þriðju hluti þeirra eru í hönd- um óbreyttra borgara, þó að skilin þar á milli séu oft óljós; einkennis- klæðnaður skiptir litlu þegar launa- greiðslur eru í formi sjálftöku. Her- menn eru kannski dátar í dagsbirtu en skæruliðar í skugga. Í krafti glundroðans geta stríðs- herrar átakanna einokað olíu- og náttúruauðlindir landsins. Rann- sóknarskýrsla frá hjálparstofuninni The Sentry — fjármönguð af leikaran- um George Clooney — sýndi nýver- ið hvernig stjórnmálastétt landsins misnotaði markvisst gamlar skil- greiningar á etnískum uppruna til að tvístra samfélaginu í eigin þágu. „Tengslanet [Kirr forseta og yfirlýsts andstæðings hans, Riek Machar] eru ein um að hagnast á þessum átök- um, þar fléttast meðal annars hagur alþjóðlegra fyrirtækja,“ segja skýr- sluhöfundar Stríðsglæpir ættu ekki að borga sig. Fyrsta lausnin, segja höfundar, er að frysta alþjóðlegar eignir og bankainnistæður og sækja alþjóðleg fyrirtæki til saka fyrir að viðhalda þjáningu heillar þjóðar. Erfitt líf en friðsælt „Sársaukaþröskuldurinn hér er ansi hár,“ segir David Aboot, hjúkrunar- fræðingur í Agogo flóttamanna- búðunum. „Fólk hefur greinilega gengið í gegnum margt.“ Í byrjun október var svæðið sem Agogo þekur ónuminn víðavangur í Norður-Úganda. Nú búa þar um fjögur þúsund manns. Búðirnar eru fámennar miðað við flóttamanna- byggðir á borð við BidiBidi, sem er nokkru vestar, með um 150 þúsund Súdani. Lífið á þessum stöðum er mikið basl en á móti friðsælt. Þar ræður samsetning íbúa miklu. Um 85 prósent eru börn 16 ára og yngri, konur og gamalmenni. Ennfremur hafa stríðandi ættbálkar flúið í hvor í sína áttina Dinka til Úganda og Nuer til Eþíópíu. Hitastigið er 33 gráður. Miðbaugs- sólinn skýn lóðrétt, einsog rússnesk ljósakróna í niðurníddum hýbýl- um. Skilyrði til myndatöku eru erf- ið. Af rælni smelli ég af nokkrum myndum - stúlka að dæla vatni úr brunni, maður að grafa kamarholu, sunnudagsmessa undir mangótré - og hugsa um leið til sögufrægu myndarinnar „Hrægammurinn og litla stúlkan“. Myndin er tek- in í Suður-Súdan árið 1993 og sýn- ir vannærða stúlku sem hniprar sig saman á berri moldinni. Nokkrum skrefum aftar situr hrægammur og, samkvæmt æpandi myndmálinu, bíður átekta. Eftir að myndin birtist í heimspressunni var ljósmyndarinn þráspurður hvað hefði orðið af stúl- kunni. Er hún á lífi? Gekkstu í burtu? Hraktirðu ekki hrægamminn? Er hinn raunverulegi hrægammur ekki sá, sem við þessar aðstæður, hefur hugann við ljósop og tökuhraða? Ári síðar hlaut myndin Pulitzer verð- launum. Og ljósmyndarinn, Kevin Carter, framdi sjálfsmorð. Fyrr og síðar hafa eldarnir logað í Suður-Súdan. Þeir einu sem ekki hafa litið undan eru íbúarnir sjálfir. Viola Moses, nítján ára flótta- maður frá bænum Yei, með slitna flugfreyjutösku eftir tíu daga ferðalag sem loks er á enda. Borgarastríðið í Suður- Súdan hefur staðið yfir, með hléum, frá árinu 2013. Ef stríð skyldi kalla. Það hefur, líkt og mörg innanríkisátök nútímans, strítt gegn þeirri hefðbundnu túlkun að stríð séu línulaga ferli sem endar annað hvort með yfirburðum eins aðila eða friðarsamningum. Sjö ára drengur að bera fimm lítra vatnsbrúsa. Fyrir okkur hin virðist enda deilu- efnið óskiljanlegt - vegna þess að deiluefnið er óskiljanlegt. Dökkar horfur í Austur-Afríku „Langvarandi deilur hafa tvístrað samfélagi sem var hvorki einsleitt né sameinað fyrir. Það verður mjög flókið að púsla þessu saman,“ segir Guðrún Sif Friðriksdóttir sem starf- aði í Suður-Súdan fyrir UN Women frá 2010 - 2012. Eftir það fékk hún doktorsstyrk til að rannsaka sam- félagsstöðu fyrrverandi hermanna sem tekið hafa þátt í borgarastríði. Suður-Súdan átti að vera vettvangur rannsóknarinnar en stríðið breytti skyndilega þeim áformum. Hún undirbjó því jarðveginn í Líberíu en þurfti að hætta við þann áfangastað vegna ebólufaraldursins. Loks flaug hún til Búrúndí (smáríkis nokkru sunnar við Suður-Súdan) og bjó þar allt síðasta ár, eða þar til ástandið þar í landi varð sömuleiðis eldfimt. Liðlega þrjú hundruð þúsund hafa flúið Búrúndí á þessu ári vegna átaka. Margir Búrúndar hafa endað í Úganda, rétt eins og flóttamenn frá Suður-Súdan, Kongó, Sómalíu, Mið-Afríkulýðveldinu og mögulega, ef fer sem horfir, Eþíópíu. „Austur- -Afríka er í slæmu ástandi,“ segir Guðrún. „Svæðið vantar leiðtoga, nú þegar Tansanía og Eþíópía eiga einfaldlega nóg með sitt.“ Milliríkja- samskipti í álfunni hafi áður brúað takmarkanir alþjóðlegra stofnana til friðaruppbyggingar, með „afrísk- um lausnum“ við „afrískum vanda- málum“. Suður-Súdan er dæmi um takmarkanir alþjóðlegra stofnana. Áður en stríð braust út höfðu al- þjóðastofnanir einblínt á friðarverk- efni meðal almennings. Samt var flestum ljóst að líklegustu friðar- spillarnir væru stjórnmálamenn. „Stjórnmálaíhlutun hjá fullvalda ríki var einfaldlega ekki innan okk- ar vébanda sem alþjóðaliðar,“ segir Guðrún, nú búsett í Reykjavík, höf- uðborg friðsælasta ríkis heims, sam- kvæmt alþjóðlegum mælingum. Velkomin til Úganda Hér þykja fólksflutningar sjálfsagður hluti af sögunni. Á bakaleiðinni ökum við fram- hjá konum að kveikja sinu. Eldarn- ir svíða annars ósnortna lágsléttu Norður-Úganda. „Flóttamenn að koma sér fyrir,“ segir bílstjór- inn, eins og það sé alsiða um þess- ar mundir að færa flóttamönnum landskika til sjálfsþurftarbúskapar. Það fer ekki milli mála að flóttamenn eru velkomnir í Úganda um ókomna tíð. Hvítu dúkarnir, sem klæða trjá- kofa og tjöld, víkja með tímanum fyrir varanlegri byggingarefnum. Nú þegar er búið að steypa grunn að skólabyggingu í Agogo. Geremew Yadessa, yfirmaður hjá Lúterska heimssambandinu, telur að flestir Súdanir muni kjósa að setj- ast að í Úganda. „Það þyrfti að ríkja friður í mörg ár svo að fólk treysti sér aftur,“ segir hann. „Svokölluð vopnahlé hafa hingað til bara verið tækifæri fyrir stríðandi fylkingar til að safna kröftum.“ Fingrafaraskráning við komu í Úganda. Á veggnum á má sjá aðsókn síðustu daga. Flóttamenn frá Suður-Súdan ferjaðir yfir ánna Níl í norðvestur Úganda. Sinu- eldar í Agogo flótta- manna- búðun- um. Veljum hríslenskt. NÝTT! FREYJU KARAMEL LU BRAGÐ T ILBOÐ OPNUNARTÍMI Virka daga 11-18 laugardaga 11-16 Ármúla 44 - Sími: 517 2040 - facebook.com/skomarkadurinn GÖNGUSKÓR TILBOÐ I Verð: 7.995.-Áður: 9.995.-

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.