Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 18.11.2016, Page 52

Fréttatíminn - 18.11.2016, Page 52
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Ég hef orðið fyrir mjög miklu aðkasti af því að ég er buffkona. Það má segja að ég sé jaðarsett vegna buffnotkunar minnar,“ segir Þórhildur Ólafsdóttir fjöl­ miðlakona og einn helsti talsmað­ ur buffs á Íslandi. Það má eigin­ lega ganga svo langt að kalla hana drottningu buffsins. Þórhildur hef­ ur varið buffið með kjafti og klóm alla vikuna eftir að mynd birtist af Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, með buff á höfði í opinber­ um erindagjörðum og allt ætlaði um koll að keyra á samfélagsmiðl­ um í kjölfarið. Finnst hún sæt með buff „Það er alveg magnað hvað buffið vekur upp ofsafengin viðbrögð og fólk er búið að ákveða að þetta sé svakalega hallærislegt. En þetta sama fólk, tískuspekúlantar og trendsettererar, gengur sjálft í allskonar flíkum sem maður skilur ekki hvaðan koma. Maður þarf ekki annað en að fara niður í bæ og sjá múnderinguna á helstu hipsterun­ um. Svo er buffið gagnrýnt. Það er alveg óskiljanlegt miðað við hvaða tísku„ítem“ eru í gangi í samfélag­ inu í dag,“ segir Þórhildur og henni er augljóslega mikið niðri fyrir. „Mér finnst ég alltaf mjög sæt með buff. Þetta er flík sem fer mér mjög vel. Ég myndi aldrei ganga í mittisleðurjakka því það fer mér ekki, en buffið fer mér,“ bætir hún við. „Mér skilst að buffið sé tíunda áratugar uppfinning en ég byrjaði í eyrnabandinu sem krakki. Ég var alltaf með eyrnaband, gekk með það allan daginn og svaf með það í nokkur ár. Þegar buffið kom svo Fékk buff í brúðkaupsafmælisgjöf Þórhildur er einn helsti talsmaður buffs á Íslandi og hefur orðið fyrir miklu aðkasti vegna buffnotkunar sinnar. Hún segir vel hægt að vera smart með buff og skilur ekki hatur fólks á þessu hentuga höfuðfati. Sæt með buff Þórhildi finnst buffið fara sér vel og von- ast til að einhver listaspíra hanni tískubuff með flottum printum. fram á sjónarsviðið, þá var það mér mjög kunnulegt, enda hægt að nota það á sama hátt og eyrnabandið. Buffið er hins vegar mun notenda­ vænni flík,“ segir Þórhildur um hvernig það kom til að hún tileink­ aði sér buff. Það tók einfaldlega við af af eyrnabandinu, sem hentaði henni einstaklega vel vegna þess hver hárprúð hún er. „Það er miklu betra að vera með buff sem fer yfir ennið og eyrun heldur en húfu sem klessir niður hárið.“ Hægt að hafa buff- ið smart Hún rifjar upp að buffið hafi verið mjög áberandi í Survivor þáttunum, þar sem það var meðal annars notað sem pils, brjóstahaldari, svitaband og fleira. „Buff­ ið varð eiginlega frægt í Survivor en síðan hefur útivistarfólkið tekið þessu fegins hendi, enda praktísk og margnota flík. Ég nota buffið við öll útivistartækifæri og líka þegar ég kafa. Þá nota ég það til að halda hárinu frá andlitinu. Svo bý ég úti á Seltjarnarnesi þar sem er alltaf vindur og það er ótrúlega þægi­ legt að grípa í buffið ef maður þarf að skjótast út í búð eða rölta út á róló með krakkann.“ Þórhildur hikar því ekki við að nota buffið innabæjar og skammast sín ekkert fyrir það. „Við skulum ekki gleyma því að það er hægt að setja buffið þannig á að það sé frekar smart, og í rauninni bara eins og eyrna­ band. Það þarf ekki að vera með það ósamanbrotið og lafandi niður á bak eins og leikskólakrakkar eru með það. Buff í brúðkaupsafmælisgjöf Þá bendir Þórhildur á að það séu til allskonar gerðir af buffum. Fólk þurfi ekki endilega að vera með næfurþunnt bómullarbuff með auglýsingalógói, enda sé hægt að fá skemmtileg buff úr vandaðri bóm­ ull og merino ullarbuff, sem er í miklu uppáhaldi hjá henni. „Þegar ég og maðurinn minn átt­ um tveggja ára brúðkaupsafmæli þá gaf hann mér merino ullarbuff, sem er eitt það rómantískasta sem fyrir mig hefur verið gert,“ segir Þórhildur, en þó maðurinn hennar sé ekki buffmaður sjálfur þá finnst honum hún mjög sæt með buff. Þá fékk Þórhildur buff frá vinum sínum í þrítugsafmælisgjöf sem búið var að prenta nafnið hennar á í miðjuna og þeirra allra í kring, ásamt íslenska skjaldarmerkinu. Buff er því ekki því svo sannarlega ekki bara einhver léreftshólkur í hennar huga. Þórhildur bindur vonir við að athyglin sem buffið hans Guðna hefur fengið verði til vitundarvakn­ ingar um þægindi og praktík höf­ uðfatsins. „Næsta skref gæti mögulega ver­ ið að einhver listaspíra og tísku­ gerðarmaður hanni tískubuff með mögnuðum printum. Svo á ein­ hver töff týpa eftir að mæta með buffið á Kaffibarinn. Og þá verðum við, bufffólkið, vonandi látin í friði í kjölfarið. Um leið og Salka Sól mætir með hönnunarbuff á hausn­ um í partí, þá verður þetta leyfi­ legt. Ég bara hlakka til því þá er ég komin með klæðnað fyrir næstu árshátíð.“ GÓÐAR ÚLPUR FYRIR VETURINN ÚLPA * STÆRÐIR 14-28VERÐ 14.990 KR ÚRVAL Í STÆRÐUM 14-28 EÐA 42-56 SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Í NETVERSLUN CURVY.IS EÐA KOMDU Í VERSLUN OKKAR AÐ FÁKAFENI 9 OPIÐ ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 11-18 OPIÐ LAUGARDAGA FRÁ KL. 11-16 Fákafeni 9, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is Z b r a u t i r & g l u g g a t j ö l d Faxa fen i 14 - s . 525 8200 - Op i ð v i r ka daga k l . 10 -18 og l auga rdaga k l . 11 -15 ALLT FYRIR GLUGGANN Á EINUM STAÐ Flatahraun 5A, Hfj. | Jökla Laugavegi 90 Rvk. info@blacksand.is | www.blacksand.is | 896 8771 Íslensk hönnun OPIN VINNUSTOFA Afsláttur föstudag og laugardag milli 12-17 Flatahraun 5A, Hfj Nýjar og eldri vörur með afslætti. Fatnaður, púðaver ofl. 280cm 98cm 20% afsláttur af öllum vörum til 17. júní Túnika kr. 3000 Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í ittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega 20% afsláttur af öllum vör m til 17. júní Túnika kr. 3000 Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í ittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega most.c_tiska ost.tiskufataverslun KONUVIKA!!! ÞESSA VIKU BJÓÐUM VIÐ 30% AFSÁTT AF ÖLLUM VÖRUM ! SÍÐAN ÆTLUM VIÐ AÐ DRAGA ÚT 3 GJAFABRÉF AÐ UPPHÆÐ 10.000KR!! ENDILEGA KOMA, TAKA ÞÁTT OG HAFA GAMAN 10 þúsund kr. 10 þúsund kr. 10 þúsund kr. …tíska 8 | amk… FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2016

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.