Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 02.12.2016, Blaðsíða 20

Fréttatíminn - 02.12.2016, Blaðsíða 20
20 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 2. desember 2016 -50% kr. 8 ARMA LJÓSAKRÓNA Úr stáli 7.498 Áður: kr. 14.995 Ljósakrónur á 20–50% afslætti. KRÓNUDAGAR við Fellsmúla | 108 Reykjavík | rvm.is OPIÐ ALLA DAGA Mán. til fös. kl. 9–18 Laugard. kl. 10–16 Sunnud. kl. 12–16 -30% -30% kr. 5 ARMA LJÓSAKRÓNA Krómuð 13.997 Áður: kr. 19.995 kr. 5 ARMA LJÓSAKRÓNA Úr stáli 8.998 Áður: kr. 17.995 kr. LJÓSAKRÓNA Krómuð/svört 6.997 Áður: kr. 9.995 kr. 5 ARMA LJÓSAKRÓNA Krómuð 8.397 Áður: kr. 11.995 -30% -50% Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is Meginástæðan fyr-ir því að fólk sækir sér hjálp, er að það hefur gleymt eða látið vera að rækta samband sitt, og sett allt annað á oddinn. Það er krefjandi að takast á við og fólk þarf að horfa vel í spegil og spyrja sig hvað það getur sjálft gert til að bæta tengslin. Fólk þarf sjálft að vinna vinnuna en ég rétti þeim verkfæri til þess. Ég segi þeim ekki fyrir verkum heldur vinna pör- in sjálf verkefni sem ég legg fyrir þau.“ Þórhallur býður upp á þriggja daga námskeið í Hörpu í janúar fyr- ir pör sem vilja bæta samband sitt. „Þetta er vinna sem hentar öll- um, hvort sem fólk vill styrkja sambandið, er að byrja búa eða leita leiða í gegnum erfiðleika. Við fjöllum um algenga hluti sem ber á góma í samböndum, börn, pen- inga, kynlíf, vinnu og svo tökum við líka á algengum vandamálum eins og framhjáhaldi og áfengisneyslu. Stundum kemur upp framhjáhald og særindi og margir sem hafa lent í því, hafa fundið leið til baka með því að setja sambandið í forgang. Rauði þráðurinn er hvað hægt sé að gera til að efla sambandið.“ Þórhallur er orðinn nokkuð sjóað- ur í að vinna með pörum á þennan hátt en hann hefur haldið svoköll- uð hjónanámskeið í rúm tuttugu ár. Víða um landið og einnig á Norður- löndum. „Þó námskeiðin hafi breyst og tíðarandinn líka, þá eru við- fangsefnin í raun alltaf þau sömu. Það sem kannski hefur breyst mest á þessum árum er þröskuldurinn hjá fólki fyrir því að leita sér hjálpar. Í dag þykir það sjálfsagt. Við búum í rosalegu fjölskyldusamfélagi og það er oft erfitt að lenda í vandræðum í sínu sambandi. Nú getur fólk komið fyrr, áður en allt er komið í óefni, og tekist á við það. Þetta eru þrjú kvöld og eftir þau þá sendi ég fólk heim með sjö vikna heimavinnu. Til að koma sér upp nýjum hefðum eða venjum og losna við aðrar. Eftir sjö vikur mega pörin koma aftur til mín í viðtal en minnihlutinn ger- ir það. Einhvernveginn hefur þetta virkað fyrir marga, að gera þetta svona.“ –Hvað getur fólk gert til að bjarga þreyttu hjónabandi? „Samband er alltaf vinna og það er engin skyndilausn. Ég lofa engu um árangurinn. Þetta er ekki eins og að taka einhverja pillu en augu fólks opnast fyrir því að það er hægt að gera hlutina öðruvísi og eiga betra líf. Þegar fólk er komið í vítahring, þarf oft aðstoð frá þriðja aðila. Einhverjum sem stendur utan við deilurnar. En það mikilvægasta er að hafa vilja til að breyta, að báð- ir aðilar hafi vilja til að sækja nám- skeiðið og vilja til að skoða hlutina í nýju ljósi. Það er mýta að konurn- ar dragi karlana sína á námskeiðið. Þegar þau eru komin á staðinn þá hafa karlar jafnmikla þörf fyrir að tala og konurnar.“ –En hvað geta lesendur gert, sem þora ekki að koma á námskeið en vilja bæta sambandið sem þeir eru í? „Mikilvægast er að fólk muni eft- ir hvort öðru og gefi sér tíma fyr- ir hvort annað. Stundum þarf fólk hreinlega að bóka tíma til þess. Ákveða bara að næsta fimmtu- dagskvöld ætlum við að eiga stund fyrir hvort annað og vera búið að gera ráðstafanir til dæmis um barnapössun eða eitthvað slíkt. Það getur verið ágætt að setja upp næsta mánuðinn, nokkrum sinnum í viku, einhvern tíma til að gera eitthvað til að efla sambandið. Margir segja að þeir hafi ekki tíma eða komist ekki frá barnanna vegna. Þetta snýst ekki um að fara til New York eða kaupa dýrar gjafir fyrir hvort ann- að heldur um að ákveða að gefa sig hvort að öðru. Við einblínum á litlu hlutina og hversdaginn. Allt gengur þetta út á að gera hlutina í núinu. Ég reyni að biðja fólk um að skera niður allt þetta ytra, allar kröfurnar og áreitið, og spyrja heldur hvað það geti gert ánægjulegt saman. Hvað þau geti gert til að finna aftur ástina sem kviknaði þegar þau kynntust. Ég aðstoða pörin við að gera áætl- un um hvað þau geta gert til að fá meiri krydd í tilveruna. Fólkið kemur sjálft með hugmyndir sem því finnst skemmtilegar. Aðalat- riðið er að horfa inn á við og skoða sjálfan sig; „Hvað get ég gert bet- ur? Hvernig get ég hugsað betur um maka minn?“ Þetta með virðinguna skiptir mjög miklu máli. Stundum bið ég fólk um að haldast í hendur á meðan það talar saman. Ef það hefur verið að rífast og ekki snert hvort annað í langan tíma, kynlíf- ið orðið alveg ískalt, og allt kom- ið í frost, þá getur það að haldast í hendur verið stórmál. Það getur líka verið mjög sterk upplifun fyr- ir fólk að fá að heyra í fyrsta sinn í mörg ár: „Ég elska þig og ég ber mikla virðingu fyrir þér.“ Máttur þess að heyra þessi orð eftir langan tíma getur verið mjög mikill.“ Leiðir til að bjarga ísköldu hjónabandi Máttur þess að heyra maka þinn segja að hann elski þig, og beri virðingu fyrir þér, getur verið ótrúlega mikill. Sérstaklega í löngu sambandi, þar sem þessi orð hafa ekki verið sögð í mörg ár. Þetta segir Þórhallur Heimisson prestur sem kennir fólki að hlúa að sambandi sínu við makann. „Stundum bið ég fólk um að haldast í hendur á meðan það talar saman. Ef það hefur verið að rífast og ekki snert hvort annað í langan tíma, kynlífið orðið alveg ískalt, og allt komið í frost, þá getur það að haldast í hendur verið stórmál,“ segir Þórhallur Heimisson prestur. Mynd | Hari „Samband er alltaf vinna og það er engin skyndi- lausn. Ég lofa engu um árangurinn. Þetta er ekki eins og að taka ein- hverja pillu en augu fólks opnast fyrir því að það er hægt að gera hlutina öðruvísi og eiga betra líf.“ & þér er boðið laugardaginn 3. des Laugardaginn 3.des ætlum við að slá til og vera með afmælisboð í verslun okkar á krókhálsi 6 Dagskrá á milli 13-17 AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM, dróna flug, happdræti og léttar veitingar. Hlökkum til að sjá ykkur. S: 566-6666 dronefly@dronefly.is Við erum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.