Fréttatíminn - 02.12.2016, Side 24
Árni Snævarr
ritstjorn@frettatiminn.is
Víst er að parið Arta Ghavami og Amir Ghomi féllu illa að staðalímyndinni um ljóshærða og bláeyga
Norðurlandabúa þegar þau hlýddu
stoltust allra á frumflutning lof-
söngs Norðurlanda í tónleikasal
danska ríkisútvarpsins í byrjun
nóvember. Flutningurinn var í
höndum kórs danskra, íslenskra,
færeyskra og grænlenskra söngv-
ara við undirleik hljómsveitar að
viðstöddum danska krónprinsinum
og forsætisráðherrum Norðurlanda.
Eins og nöfn Arta og Amirs bera
með sér eru þau ekki af norrænu
bergi brotin þó þau hafi alist upp í
Kaupmannahöfn frá blautu barns-
beini, og séu að tungu, menningu
og ríkisfangi Danir.
Arta er klassískt menntaður
píanóleikari og Amir er meðal
annars rappari. Þau eru pólitískir
flóttamenn frá Íran í Danmörku
þar sem þau hafa dvalist mestalla
sína ævi.
Margir ráku upp stór augu þegar
hugmyndin um norrænan söng
var kynnt, og sumir létu í ljós efa-
semdir um að hægt væri að skil-
greina hið samnorræna hvað þá að
túlka það í tónum og orðum.
Eins og dæmin sanna eru Norð-
urlandabúar uppteknari af því að
tíunda það sem skilur þá að en
það sem sameinar þá, þótt því sé
öfugt farið þegar útlendingar eru
annars vegar. Þannig er notast við
skjátexta þegar rætt er við Dani í
norskum sjónvarpsfréttum, þótt
færa megi rök fyrir því að þá beri
líka að texta marga norska mál-
lýskuna.
Norræni liturinn er blár
Arta Ghavami, er fljót að benda á
að menn séu á villigötum ef þeir
einskorða kjarna norræns eðlis við
uppruna og tungumálið, og óþarfi
að leita langt yfir skammt þegar
finnska er annars vegar, græn-
lenska og tungumál Sama.
En ef hið norræna er ekki
bundið við tungumálið, hvað er
það þá? Til að undirbúa verk-
efnið boðuðu Arta og Amir, með
stuðningi Norðurlandaráðs og
Icelandair, hóp Norðurlandabúa
saman til fundar í Reykjavík fyrir
tæpum þremur árum. Í þeim hópi
voru tónlistarmenn, útgefendur,
blaðamenn, skriffinnar úr menn-
ingargeiranum, og meira að segja
fulltrúi Sameinuðu þjóðanna.
Fundarsalinn lánaði Hönnunar-
safnið og þar með var minnt á að
norræn hönnun er víðfræg um
allan heim.
„Stjórnmálamenn tala stöðugt
um sérstakt þjóðareðli í Dan-
mörku og hinum Norðurlöndun-
um, en gleyma því að erum hluti
af einstökum norrænum félags-
skap sem byggir á trausti, jafnrétti
og öryggi. Óðurinn er til heiðurs
þessu,“ segir Arta Ghavami.
Niðurstöður hópsins voru þær
að margir ólíkir þættir væru
Norðurlandabúum sameiginleg-
ir og mætti nefna stolt og sæmd,
sameiginlega sögu og gildi, þar á
meðal hið svokallaða „norræna
módel“, mannréttindi og tján-
ingarfrelsi, en líka sköpunargleði.
„Við nálgumst hlutina á mismun-
andi hátt, en við byggjum á sama
grunni. Og grunnurinn er sá að
byggja á umræðu. Við köfum djúpt
og brjótum til mergjar,“ segir Arta
og bætir við að norræni liturinn
sé blár!
Textinn að norræna söngnum
er verk dansk-norska höfundar-
ins Kim Leine, höfundar Spá-
mannanna í Botnleysufirði, sem
vann Bókmenntaverðlaun Norð-
urlandaráðs árið 2013 og gerist að
verulega leyti í Grænlandi.
Þegar norrænn lofsöngur var frumfluttur við
veitingu verðlauna Norðurlandaráðs á dögun-
um hefur vafalaust fáa grunað að hugmyndina
mætti hvorki rekja til Oslóar né Stokkhólms,
eða annarra höfuðborga Norðurlanda, heldur
alla leiðina austur til Teheran.
Norræni lofsöngurinn og
tilvistarkreppa í Teheran
Lofsöngur Norðurlanda
eftir Kim Leine í þýðingu Þórarins Eldjárn
A
Þú ástkæra, víðfeðma, ljósa
land
með löðrandi brim og
jökultinda
Þú ert mitt hjarta og mitt
trausta tryggðaband
sú tenging sem við jörð mig
nær að binda.
B
Þú ástkæra, niðdimma
norðurslóð
frá nunatak að jarðlestum í
borgum
frá örfoka melum í engi góð
ég elska þig í gleði og í
sorgum
A
Í þér á ég hof mitt og
helgistað
og hér á ég sól sem rís og
hnígur
í blíðu og í stríðu víst á ég þig
að
þinn andi býr í mér og víða
flýgur
B
Er norðurljós blika í gullnum
glans
og glitra á himinboga
svörtum
þá æði ég með í þann
álfadans
en endurfæðist svo á morgni
björtum.
A
Þú ískalda land mitt við líðum
þér
að láta kalda vetrarstorma
næða
því sumarnóttin bjarta svo
beint á eftir fer
og byrjar okkar sálaryl að
glæða
B
Ég elska þig land mitt og
þokka þinn
á þessum grunni öll við
saman stöndum
því heilinn, sálin og hugurinn
og hjartað eru bundin
Norðurlöndum.
Arta Ghavami er pólitískur flóttamaður frá Íran sem lifir og starfar í Danmörku. Mynd | Nanna Kirstine Jakobsen
SÆTA SVÍNIÐ // Hafnarstræti 1–3 / Sími 555 2900 / saetasvinid.is
HREINDÝRABORGARI 175 G
Brioch brauð, rauðlaukssulta,
piparrótarmayo, Búri, romain salat,
vöufranskar, truumayo
2.890 kr.
JÓLABOX
• Tvíreykt hangikjöt, epli, skallotlaukur, laufabrauð
• Flatkaka, bleikja, klettasalat, rjómaostur, dill
• Saltfiskur, sætmús, lotusrót, tómat-chutney
• Andabringa, piparrótar-blómkálspurre, portvínssósa
3.590 kr.
JÓLA
JÓLA
GASTROPUB
24 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 2. desember 2016