Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 02.12.2016, Qupperneq 38

Fréttatíminn - 02.12.2016, Qupperneq 38
38 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 2. desember 2016 Ég er búin að vera hérna í tæp tvö ár en áður var ég í sama starfi á N1 í Skógar-seli. Neðra Breiðholt er það víst kallað,“ segir Ari rólyndislega og brosir í kampinn. „Samtals hef ég unnið í bens- ínafgreiðslu í fjögur ár. Áður var ég öryrki. Ég lenti í tveimur mjög alvarlegum slysum, lifði af, og var frá vinnu í fimm ár. Svo byrjaði ég að vinna hér.“ „Þegar ég lenti í þessum slysum var ég að vinna hjá Landflutningum hjá Samskipum. Fyrst fékk ég svona járnprjón, sem er stungið inn í teppi eða dúkarúllur, í höfuðið. Þeim er stungið inn í vörubíla og teknir út með lyftara. Ég höfuðkúpubrotnaði og fór aðeins yfir um, hinu megin, skilurðu?“ „Í seinna skiptið keyrði sjö tonna lyftari framhjá mér með hurðina úti. Framhjá gámi. Hann klemmdi mig á milli hurðarinnar og gáms- ins, stoppaði, og sleit á mér bak- vöðvana. Ég var allur lurkum lam- inn, kolsvartur um allan skrokkinn, en lifði þetta af og er búinn að ná mér. Ekki alveg samt. Er alltaf með verki en sæmilegur samt. Þess vegna er ég svo ánægður að geta þó unnið.“ „Hefðbundinn dagur er þannig að ég kem aðeins fyrir tímann, fæ mér kaffi, ber út dótið og byrja að afgreiða fólkið. Býð góðan daginn og spyr: Viltu aðstoð? Rúðuvökva eða eitthvað annað? Svo gengur allur dagurinn svona.“ „Þetta er allt svo hverf- ult í tilverunni, allt svo hverfult. Foreldrar mín- ir dóu fyrir skömmu og þetta er allt svo hverfult. Ég nýt bara lífsins á með- an ég get. Er góður við aðra, sýni þeim tillitssemi og virðingu. Öllum.“ Í bensínafgreiðslu á Bíldshöfða tekur syngjandi glaður starfsmaður á móti viðskiptavinum og dælir bensíni á bíla með brosi á vör. Sá heitir Ari Bragason og hefur lifað af tvö lífshættuleg vinnuslys. Hann segir að mikilvægast sé að njóta lífsins á meðan maður getur. Allt sé hverfult. Birna Guðmundsdóttir birna@frettatiminn.is Nýtur lífsins á meðan hann getur Ari Bragason tekur syngjandi á móti viðskiptavinum N1 á Bíldshöfða. Myndir | Rut Ari segir mikilvægt að vera góður við aðra. Sýna tillitsemi og virðingu. Býður góðan daginn og spyr: Viltu aðstoð? Lifði af tvö vinnuslys og er ánægður að geta þó unnið. Náttfatalagalisti Soda Pop ... Baby One More Time Brave New Girl In the Zone Thinkin' About You ... Baby One More Time Anticipating Britney Make Me ...(ft. G-Eazy) Glory The Hook Up In the Zone (I Can't Get No) Satisfaction Oops ... I Did it Again Dear Diary Oops ... I Did it Again E-Mail my Heart ... Baby One More Time Slumber Party (ft. Tinashe) Glory Náttfatapartí til heiðurs söngkonunni Birna Guðmundsdóttir birna@frettatiminn.is Prinsessa poppsins, Britney Spears, á afmæli í dag og er 35 ára gömul. Britney fæddist 2. desember árið 1981. Söngkonan skaust á stjörnuhimininn tólf ára gömul þegar hún lék í The Mickey Mouse Club og gaf hún út plötuna Baby One More Time árið 1999. Óhætt er að segja að skipst hafi á skin og skúrir í lífi söngkonunnar sem bæði hef- ur verið farsæl tónlistarkona en stundum átt erfitt í einkalífinu. Britney gaf nýverið út plötuna Dýrð (e. Glory) sem er níunda plat- an sem kemur út á ferli hennar og fyrir skömmu kom út myndband með einu laga plötunnar, Nátt- fatapartíi (e. Slumber Party), sem hún vann í samstarfi við RnB söngkonuna Tinashe. Þegar hafa um þrjátíu milljón- ir manna horft á mynd- bandið á Youtube. Til að samgleðjast söng- konunni góðkunnu og halda upp á daginn — en Britney er sjálf lítið af- mælisbarn og heldur sjaldan veislu á afmæli sínu — er tilvalið að halda eitt gott náttfatapartí henni til heiðurs. Í myndbandi lagsins Slu- mber Party er unnið með pastelliti og því snjallt að hafa pastel-þema í partíinu í kvöld. Ekki er síður vitlaust að hlusta bara á Britney lög og hefur Fréttatíminn því tekið saman lagalista, tíu ný sem gömul lög með Britney, til að láta rúlla í gegnum kvöldið. Til hamingju með afmælið Britney. Hipp, hipp, húrra! Britney Spears á afmæli í dag Britney ásamt Tinashe, úr nýjasta myndbandi þeirra, Náttfatapartí. Poppprinsessan á afmæli í dag. Ferðin hefst við rústir Angkor. Bækistöðvarnar verða í bænum Siem Reap. Þar finnast skrautlegir nætur- markaðir, gamall miðbær í frönskum nýlendustíl og fjölbreytt flóra veitinga- staða. Eftir fimm daga í Kambódíu verður flogið til Hanoí og stefnan sett á hinn ægifagra Halongflóa þar sem þriggja daga sigling tekur við. Að henni lokinni er flogið til Mið-Víetnam að hinum draumkennda bæ Hoí An. Lokaáfangi ferðarinnar er Saígon sem státar af einstakri blöndu af hraðri uppbyggingu og rómantík nýlendutímans. KJARNI GAMLA FRANSKA INDÓKÍNA OPINBERAÐUR Á EINSTAKAN OG HNITMIÐAÐAN HÁTT angkor og víetnam 18 manns hámark 3.–17 FEBRÚAR, 15 DAGAR 585.000 KR.* farvel.is farveltravel farvel_travel farvel@farvel.is415 0770 *Verð per mann í tvíbýli. Nánari upplýsingar á vefsíðu Farvel. FARARSTJÓRN: PÉTUR HRAFN ÁRNASON frettatiminn.is

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.