Fréttatíminn - 02.12.2016, Síða 44
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Donna Cruz hefur slegið í gegn á snapchat síðustu mánuði með gaman-samri framkomu, en hún vakti fyrst athygli
á snapchat-reikningi Ungfrú Ísland
keppninnar sem hún tók þátt í fyrr
á þessu ári. Hún er nú orðin hluti af
samfélagsmiðlahópnum Áttunni,
þar sem hún tekur þátt í allskonar
fíflagangi, sem á vel við hana, því
hún elskar að fíflast.
Donna er 22 ára, fædd á Filipps-
eyjum, en fluttist til Íslands ásamt
fjölskyldu sinni þegar hún var
fjögurra ára. Hún man lítið sem ekk-
ert eftir sér fyrir þann tíma og lítur
á sig sem Íslending.
Amma kynntist Íslendingi
„Ég er reyndar mjög dugleg að fara
til Filippseyja og síðustu fimm,
sex árin hef ég farið einu sinni á
ári og dvalið í mánuð, þannig ég
þekki Filippseyjar mjög vel,“ segir
Donna sem á ennþá ættingja úti þó
öll hennar nánasta fjölskylda búi
á Íslandi. En sagan af því hvernig
það kom til að fjölskyldan fluttist til
Íslands, er mjög krúttleg, að hennar
sögn.
„Besta vinkona ömmu minnar
kom til Íslands og giftist íslensk-
um manni. Hann átti besta vin, afa
Egil, sem vinkonan kynnti fyrir
ömmu. Þau skrifuðust á í tvö ár en
þá ákvað afi Egill að fljúga ömmu
til Íslands og þau giftu sig. Þetta var
miklu meira vinátta en rómantík
á milli þeirra samt. Hann var mjög
einmana, var alkóhólisti og átti í erf-
iðleikum í fyrra hjónabandi sínu, en
amma, sem var mjög trúuð, hjálpaði
honum mikið. Hann hjálpaði svo
ömmu að koma allri fjölskyldu sinni
til Íslands. Þannig að öll börnin
hennar ömmu og barnabörn eiga
heima hérna,“ útskýrir Donna og á
þar að sjálfsögðu við frænkur sínar
og frændur.
Rífast á tveimur tungumálum
Hún segist mjög þakklát fyrir að
hafa fengið að koma til Íslands. „Ég
held að ég ætti ekki lífið sem ég á í
dag ef ég hefði alist upp á Filipps-
eyjum. Ég get varla ímyndað mér
hvernig það hefði verið. Miðað við
það sem amma hefur sagt mér þá
held ég að það hafi verið jákvætt fyr-
ir okkur öll að koma til Íslands.“
Donna viðurkennir að hún reyni
stundum að sjá fyrir sér hvernig lífið
hefði orðið ef málin hefðu ekki þró-
ast eins og þau gerðu. Hún vill þó
ekki staldra of mikið við það. „Þetta
er eitthvað sem ég spái stundum í
klukkan þrjú á nóttunni þegar ég
get ekki sofnað.“
Hún hefur leitt hugann að því að
fara í nám til Filippseyja en segist
eiga erfitt með að slíta sig frá Íslandi
í lengri tíma. „Það er bara eitthvað
við Ísland. Það er allt svo þægilegt
hérna.“ Það væri þó lítið mál fyrir
Donnu að stunda nám í Filippseyj-
um, enda talar hún tvær mállýskur
af filippseysku, ásamt íslensku og
ensku.
„Það eru svo mörg tungumál í
gangi í hausnum á mér að stund-
um rugla ég þeim saman. Heima
hjá mér er öllum þessum fjórum
tungumálum blandað saman. Þrátt
fyrir að íslenskan mín sé mjög góð
þá heyrist stundum að ég tala önn-
ur tungumál. Ég tala íslensku við
mömmu en hún talar filippseysku
við mig. Þetta getur verið mjög
fyndið þegar við erum að rífast. Þá
segi ég við hana hvað mér finnst
á íslensku og oft skilur hún mig
ekki, þannig ég þarf að þýða það
sem ég segi yfir á filppseysku og
byrja aftur að rífast,“ segir Donna
og hlær. Þetta verður reyndar oft
til þess að hún nennir ekki að rífast
við mömmu sína, enda missir það
aðeins marks þegar hún þarf að
stoppa og þýða þegar henni er mik-
ið niðri fyrir.
Uppnefnd grjón
Líkt og margir Íslendingar af er-
lendum uppruna þá hefur Donna
upplifað fordóma í sinn garð. Hún
segir fordómana ekki alltaf snúast
um hvað fólk segi við hana, heldur
hvernig það segi hlutina. „Eins og
þegar fólk spyr hvort ég tali íslensku
og notar neikvæðan tón, líkt og það
sé að tala niður til mín. Þetta gerist
Donna Cruz hefur vakið athygli á snapchat
upp á síðkastið en þar í gegn hefur hún fengið
hatursfull og rasísk skilaboð. Henni finnst
fáfræði ekki vera afsökun og er þreytt á for
dómum. Hún tók þátt í Ungfrú Ísland til að
sanna að Íslendingar af erlendum uppruna
gætu alveg unnið titil, sem tókst. Þegar hún
rífst við mömmu sína þarf hún oft að þýða
orð sín yfir á filippseysku svo þær geti haldið
áfram að rífast.
alls ekki á hverjum degi, en þegar
þetta gerist þá er það mjög leiðin-
legt.“
Eftir að Donna opnaði snapchat-ið
sitt fyrir almenningi og fylgjendun-
um fjölgaði hefur skilaboðunum
sem hún fær einnig fjölgað. Flestir
eru jákvæðir og hrósa henni fyrir
að vera skemmtileg og lífsglöð en
einstaka sinnum fær hún dónaleg
skilaboð, uppfull af fordómum, sem
send eru til þess að særa. Hún tók
einmitt ákvörðun um að birta ein
slík skilaboð opinberlega og tjáði sig
um málið í fréttum Stöðvar 2 um
síðustu helgi. Í skilaboðunum var
hún meðal annars uppnefnd sem
grjón, sögð hræðilega ljót, ekkert
fyndin og að best væri fyrir hana að
eyða snapchat-reikningum sínum.
Fáfræði ekki afsökun
„Mig langaði svo að vekja athygli á
þessu til að fólkið sem hugsar svona
sjái viðbrögð annarra og átti sig á
því að þetta er ekki allt í lagi,“ seg-
ir Donna um þá ákvörðun sína að
geyma skilaboðin og segja frá í stað
þess að eyða þeim.
Hún telur reyndar að sumir segi
eitthvað óviðeigandi án þess að
ætla sér að særa, á meðan öðrum
virðist ganga það eitt til að vera með
leiðindi. „Þegar þetta er orðin bein
árás þá fer ég í mikla vörn og svara
fyrir mig. Ég er orðin svo þreytt
á þessu og skil ekki af hverju fólk
hagar sér svona. Eftir að ég fór að tjá
mig um þessi mál þá hef ég fengið
skilaboð frá fólki sem segir svona
framkomu hljóta af stafa af fáfræði,
en mér finnst það ekki vera afsökun.
Það er ekki hægt að afsaka sig með
fáfræði á Íslandi í dag. Aðrir segja
að ég eigi ekki að taka mark á þessu,
en mér finnst frekar að fólk eigi að
hætta að vera dónalegt, heldur en
að ég þurfi að reyna að leiða dóna-
skapinn hjá mér.“
Sýndi sig og sannaði
Líkt og áður sagði tók Donna þátt í
keppninni Ungfrú Ísland í sumar og
landaði titlinum vinsælasta stúlkan,
sem þykir mikill heiður. En þegar
hún er spurð að því af hverju hún
hafi ákveðið að taka þátt í keppninni
fer hún að hlæja. „Ég er sko engin
fegurðardrottning. Ég er algjör
klaufi og auli. En besta vinkona mín
vildi taka þátt, og við erum báðar
mjög hvatvísar, þannig ég ákvað að
taka þátt með henni. Ég var samt
mjög efins með þá ákvörðun. Ég hélt
að ég myndi ekki upplifa mig sem
hluta af hópnum út af ímyndinni
sem ég hafði af keppendum, en
allar stelpurnar voru svo bara sjúk-
lega ólíkar. Ég átti því alveg heima
þarna,“ segir Donna sem sér svo
sannarlega ekki eftir því að hafa
slegið til.
„Ég sagði vinum mínum og fjöl-
skyldu frá þessu og mamma spurði
mig af hverju ég ætlaði að taka þátt,
því það væri enginn útlendingur að
fara að vinna Ungfrú Ísland. Það var
samt ekki illa meint hjá henni. En
ég er svo þrjósk að þetta sannfærði
mig endanlega um að taka þátt.
„Sjáiði mig vinna þessa keppni þó ég
sé af erlendum uppruna,“ hugsaði
ég með mér. Ég vann reyndar ekki
Ungfrú Ísland en ég tók kórónu með
mér heim. Ég var rosalega ánægð
með það. Svo voru þrjár stelpur af
fimm sem unnu titla af erlendum
uppruna. Mér finnst mjög gaman að
geta bent fólki á það,“ segir Donna
og það hlakkar í henni. Eðlilega.
Hún sýndi sig og sannaði og setti
ofan í við efasemdafólk. Þá vakti
hún athygli langt út fyrir hópinn.
Varð óvart opinber
„Ég vildi vinna titil. Það fara allir í
keppni til að vinna. Þessi titill, vin-
sælasta stúlkan, var eitthvað sem
ég gat lagt mig fram um að reyna að
vinna. Það er erfiðara með Ungfrú
Ísland titilinn sjálfan, því þar eru
það dómarar sem dæma og maður
veit ekki að hverju þeir eru að leita
eftir. Það gerðist eiginlega alveg
óvart að ég varð svona opinber
manneskja. Ég fékk bara svo góðar
viðtökur þegar ég var með Ung-
frú Ísland snappið og eftir það fór
boltinn að rúlla. Mér finnst mjög
gaman að fíflast og ég geri mikið
af því.“ Í kjölfarið komst Donna í
samband við stofnanda samfélags-
miðlahópsins Áttunnar og málin
þróuðust þannig að hún varð hluti
af hópnum. „Við erum bara að
skemmta okkur og öðrum, og reyna
að koma ungu fólki á framfæri. Það
er svo mikil neikvæðni í heiminum
að maður þarf að gera hlegið mjög
reglulega,“ segir Donna og hlær. Það
er augljóslega alltaf stutt í hláturinn
hjá þessari stúlku sem tekur sig ekki
of hátíðlega.
Aðspurð um framtíðina segist
hún hafa mikinn áhuga á því að
ferðast meira, en hún skipuleggi sig
reyndar sjaldan langt fram í tím-
ann. „Ég pæli aldrei í hlutum fyrr
en þeir gerast og reyni bara að gera
það sem mér finnst skemmtilegt. Ég
lærði það fyrir ekki fyrir svo löngu
að maður á ekki sóa tíma í eitthvað
sem manni finnst leiðinlegt. Og mér
finnst allt sem ég er að gera núna
mjög skemmtilegt.“
Vill ekki sóa tímanum í leiðindi
Hefur gaman af lífinu Donna veit fátt skemmtilegra en að fíflast og gerir mikið af því á snapchat. Mynd | Rut
…viðtal 4 | amk… FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2016
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Katrín Bessadóttir, katrin@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, solrunlilja@amk.is.
Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.