Fréttatíminn - 02.12.2016, Side 48
Súpan er fullelduð og aðeins þarf að hita hana upp
Við notum ekki MSG í súpuna okkar.
Hún fæst í öllum helstu matvöruverslunum
og stórmörkuðum landsins.
mannaeyjum, ásamt eiginmanni
sínum, Sigurði Gíslasyni. Þau hafa
nú sent frá sér matreiðslubók-
ina Gott þar sem hægt er að finna
girnilegar og heilnæmar uppskrift-
ir af réttum staðarins. En áður
höfðu þau hjónin sent frá sér tvær
bækur með Heilsuréttum fjöl-
skyldunnar sem hafa notið mikill
vinsælda.
Á að líða vel eftir matinn
„Það eru engin leyndarmál hjá
okkur. Ég held að við höfum
skrifað uppskriftina að brauðinu
og súpunni á svona hundrað
servéttur síðan við opnuðum.
Nú getum við hætt því og boðið
bókina í staðinn. Við erum svo að
hugsa um að láta þýða hana yfir á
ensku fyrir vorið.“
Þrátt fyrir að nýja bókin sé ekki
heilsuréttabók sem slík, þá leggja
þau hjónin áherslu á maturinn sé
bæði bragðgóður og næringarrík-
ur, unninn úr fersku hráefni. En
þau gera til dæmis allar sínar sós-
ur frá grunni og vita nákvæmlega
hvað er í matnum sem þau bera
fram. Það finnast engin rotvarn-
arefni í eldhúsinu hjá þeim. Þá er
lögð mikil áhersla á ferskan fisk,
enda sjórinn allt um kring.
„Fólk hefur almennt ekki tök á
því að eyða miklum tíma í eldhús-
inu en vill samt borða heilnæman
mat. Maður vill að manni líði vel
eftir matinn, ekki bara borða til
að vera saddur. Og maturinn þarf
bæði að vera bragðgóður og nær-
ingarríkur. Margir halda oft að
maturinn sé óspennandi af því
þetta er hollustustaður, en svo eru
allir mjög ánægðir með matinn.“
Áskorun að gera góða rétti
Eftir að Berglind og Sigurður
höfðu gefið út tvær bækur með
heilsuréttum fjölskyldunnar þá
langaði þau að opna veitingastað
byggðan á sömu hugmyndafræði
og úr varð veitingastaðurinn
GOTT á æskuslóðunum í Vest-
mannaeyjum.
„Þetta var sameining okkar
hjóna. Ég var komin út í þessa
hollusturétti og hann er mjög fær
kokkur, hann vildi því hafa bragð-
ið meira spennandi en það sem
var í gangi í þessum heilsubransa.
Honum fannst allt mjög dauft og
óspennandi. Það var því áskorun
að finna bragðgóða rétti,“ segir
Berglind um hvernig hugmyndin
þróaðist.
Öll fjölskyldan hjálpast að
Gott er sannkallaður fjölskyldu-
staður, en þau hjónin eiga fjögur
börn sem öll hjálpa til með sínum
hætti. „Svo endar pabbi stundum
í uppvaskinu og tengdpabbi að
mála fyrir utan á meðan ömmurn-
ar passa börnin. Þannig þetta er
fjölskyldufyrirtæki alla leið.“ Enda
var það hugmyndin með að opna
staðinn í Eyjum. „Við vorum að
flytja aftur heim til að sameina
fjölskylduna og vera meira saman.
Þegar við bjuggum á höfuðborgar-
svæðinu þá fannst okkur við eyða
dýrmætum tíma í bílum á milli
staða. Við eigum bæði foreldra
í Eyjum og nú erum við búin að
tengjast þeim betur og börnin geta
labbað á milli, fengið sér pönnsur
og komið niður í vinnu og hjálpað
til. Þetta er alveg æðislegt.“
Geta hætt að
skrifa uppskriftir
á servéttur
Berglind og Sigurður, eigendur veitingastaðarins GOTT, hafa sent
frá sér samnefnda matreiðslubók sem inniheldur uppskriftir að
réttum staðarins. Berglind segir þau ekkert feimin við að ljóstra upp
uppskriftunum, enda engin leyndarmál í gangi hjá þeim.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Við erum rosa ánægð með bókina, hún sýnir stemninguna á staðnum í Eyjum. Það er búið að vera
alveg brjálað að gera og margir
hafa viljað kaupa af okkur bækur.
Nú er gaman að geta boðið upp á
GOTT bók sem snýst um staðinn,“
segir Berglind Sigmarsdóttir sem
rekur veitingastaðinn GOTT í Vest-
Innihald
800 g þorskhnakki
150 g hreint smjör, við stofuhita
40 g þurrkaðir villisveppir (gjarn-
an blandaðar tegundir)
1 sítróna, safinn
4-5 dl brauðrasp
4 bökunarkartöflur
100 g hreint smjör
100 ml rjómi
1 msk sjávarsalt
Kartöflumauk:
1 Skrælið kartöflur og skerið í
grófa bita
2 Sjóðið í um 25 mínútur eða þar
til kartöflurnar eru orðnar vel
mjúkar og hellið vatni af.
3 Maukið kartöflurnar með því
að stappa þær vel. Blandið
smjörinu saman við og síðan
rjómanum og saltinu.
Villisveppaskel
1 Þeytið smjörið upp í hrærivél
í 10 mínútur eða þar til það er
orðið loftkennt.
2 Setjið þurrkuðu villisveppina í
matvinnsluvél og búið til duft
úr þeim.
3 Setjið villisveppaduftið saman
við smjörið ásamt sítrónusafa.
4 Bætið brauðraspinu út í og setj-
ið um 100 g af maukinu ofan á
smjörpappír og annan smjör-
pappír yfir og fletjið út þunnt
lag. Kælið.
5 Þegar smjörplatan er orðin
hörð, takið þá út og skerið í
hæfilega stærð sem passar
ofan á fiskinn.
Þorskhnakki
með villi sveppa
skel og sæt
kartöflu mauki
Þorshnakkinn eldaður
1 Hitið ofninn í 170 gráður.
2 Setjið smá ólífuolíu yfir fiskinn
og kryddið með salti og pipar.
3 Setjið sveppaskelina ofan á
fiskinn.
4 Bakið fiskinn í ofni í 12-15 mín-
útur, fer eftir þykktinni á fiskn-
um.
5 Berið fram með kartöflumauk-
inu.
Samhent hjón Berglind og Sigurður leggja áherslu á bragðgóða og næringarríka rétti.
Fæst í apótekum og heilsubúðum
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Virkar lausnir frá OptiBac
„One Week Flat“
Minnkar þembu og vindgang
…heilsa 8 | amk… FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2016