Fréttatíminn - 02.12.2016, Side 56
Vel fór á með Rihönnu og Harry
prins þegar þau hittust í heima-
landi Röhönnu, Bar-
bados, í vik-
unni. Prinsinn
ferðast nú um
karabíska haf-
ið og sótti
meðal annars tónleika á eyjunni
sem haldnir voru í tilefni af 50
ára sjálfstæði hennar en fram
til ársins 1966 var Barbados
bresk nýlenda. Harry var
augljóslega afar upp með sér
að hitta hina hæfileikaríku
Röhönnu. Harry, sem ferð-
ast fyrir hönd ömmu
sinnar, hélt ræðu á sérstakri hátíð
sem var tileinkuð sjálfstæðinu og
bar þar fyrir kveðju frá drottn-
ingunni og Philip prins. „Þjóð-
ir okkar eiga sameiginlega sögu,
sameiginleg gildi og á milli okkar
er gagnkvæm væntumþykja sem
heldur áfram að tengja okkur,“
sagði prinsinn meðal annars í
orðsendingu frá ömmu sinni.
Áhuginn á bresku konungs-
fjölskyldunni hefur sjaldan verið
meiri. Aukinn áhuga má rekja til
þáttanna The Crown á Netflix sem
rekja sögu Elísabetar drottningar
frá því að hún þurfti skyndilega
að taka við krúnunni eftir fráfall
föður síns. Þættirnir þykja afar vel
gerðir og aldrei hefur verið ráðist
í eins dýra þáttagerð hjá Netflix.
Þættirnir þykja ennfremur varpa
ljósi á vanda Elísabetar í upphafi
drottningarára sinna og talað
hefur verið um að hún hafi aldrei
verið sýnd í eins mennsku ljósi.
Samband hennar við móður sína,
eiginmanninn Philip og systurina
Margréti er sýnt í nýju samhengi
en þrátt fyrir að gefið hafi verið út
að þættirnir hafi verið gerðir með
upplýstu samþykki krúnunnar er
víst kurr innan Buckinghamhallar
vegna sumra atriðanna sem þykja
full afhjúpandi.
alla föstudaga
Jólin í gamla daga
Hvernig var jólaundirbúningur í gamla daga? Komist að því á sunnudaginn
milli klukkan 13 og 17 í Árbæjarsafni.
Rihanna heillar Harry
Prinsinn ferðast fyrir hönd drottningar.
Nýtur sín í
Washington
Anna Lára Orlowska, sem
hreppti titilinn Ungfrú Ísland
2016, er nú stödd í Washington í
Bandaríkjunum þar sem hún tekur
þátt í Miss World, en lokakvöldið
er þann 18. desember næstkom-
andi. Hún deilir herbergi með
Ungfrú Belgíu og virðast þær vera
orðnar mestu mátar og borða
saman súkkulaði uppi í rúmi. Anna
Lára er dugleg að spjalla við fylgj-
endur sína á snapchat og deila
því sem á daga hennar drífur í
Ameríku. Þrátt fyrir að stúlkurnar
þurfi að taka þátt ýmis konar æf-
ingum fyrir keppnina fá þær líka
góðan tíma til að skoða sig um og
hvílast, en á döfinni er ferðalag til
New York þar sem þær fara meðal
annars á sýningu á Broadway.
Á Barbados Prinsinn, sem er
sá 5. í röðinni í erfðaröðinni
að krúnunni, var heillaður
af tónlistarkonunni
hæfileikaríku.
kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bol
la
k
aff
itá
R
f
rá
bý
li
í b
ol
la
ka
ff
itá
r
f
rá
býli
í boll
a
hátíðí bæ
Ég fyrirverð
mig ekki
fyrir fagnaðar-
erindið. Það
er kraftur
Guðs sem
frelsar hvern
þann mann
sem trúir...
www.versdagsins.is
Þarftu skjóta afgreiðslu á ein-
blöðungum, bæklingum, vegg-
spjöldum, skýrslum, eða nafn-
spjöldum? Þá gæti stafræna
leiðin hentað þér. Sendu okkur
línu og fáðu verðtilboð.
STAFRÆNT