Fréttablaðið - 28.02.2017, Síða 42

Fréttablaðið - 28.02.2017, Síða 42
Katla er mörgum af góðu kunn fyrir leik sinn í Föngum og Hjarta- steini. Hún fór í síðustu prufurnar fyrir Fanga daginn eftir ferming- una og hreppti í kjölfarið hlutverk Rebekku. Fermingardagurinn var eftir- minnilegur en Kötlu fannst sér- staklega gaman í fermingarveisl- unni. „Það var svo skemmtilegt að hitta allt frændfólkið og hafa gaman saman. Veislan var haldin í sal Logos en amma mín vinnur þar og gat fengið salinn lánaðan. Hluti veitinganna var aðkeyptur en sumt útbjuggum við sjálf,“ rifjar Katla upp. Boðið var upp á dýrindis Mexíkósúpu, brauð úr Passion bakaríi, heimagert pestó, úrval af ostum og ljúffengar makrónur og marenstertu. „Við vorum líka með jarðarber, melónur, ananas og vín- ber til að dýfa í súkkulaðibrunn eins og sést vel á fermingarkjóln- um mínum. Hann er allur í súkku- laði,“ segir Katla sem valdi veit- ingarnar sjálf. „Ég vildi hafa eitt- hvað sem mér sjálfri finnst gott, því þetta var minn dagur.“ Katla hafði hugsað sér að vera í jakkafötum á fermingardaginn en Þótt ég sé ekki mjög trúuð er ég samt viss um að einhver vakir yfir okkur. Mér finnst ferming vera hluti af því að fullorðnast. Katla Njálsdóttir Katla var alltaf ákveðin í að fermast. Katla með derhúfuna og Yrsa, litla systir. Katla og foreldrarnir Þóra Pétursdóttir og Njáll Þórðarson og systirin Yrsa. Skemmtilegast að hitta frændfólkið Katla Njálsdóttir fermdist í Árbæjarkirkju þann 13. mars í fyrra. Dagurinn líður henni seint úr minni en hún var alltaf ákveðin í að fermast. Katla tók þátt í undirbúningi veislunnar, valdi hvaða litir voru notaðir til að skreyta salinn og boðið var upp á uppáhaldsmatinn hennar. Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@365.is skipti um skoðun og valdi sér fal- legan kjól úr versluninni Coral og bar við hann fallegan kross sem langamma hennar gaf henni fyrir ferminguna. Kötlu þykir sérlega vænt um krossinn en langamma hennar lést nú í febrúar. Katla ákvað síðan að vera í strigaskóm við fermingarkjólinn og setti síðan upp derhúfu í veislunni, og var fjöl- skyldan sammála um að það væri alveg í hennar anda. Salurinn var fallega skreyttur, að smekk Kötlu. „Ég valdi litina; kopar, svart og hvítt. Ég skreytti borðin með koparlitum steinum sem við keyptum í Garðheimum, lakkrísbitum, piparsúkkulaðikúl- um, hvítum túlípönum og blöðrum. Nammið kláraðist mjög fljótt,“ upp- lýsir Katla sem fannst nokkuð sér- stakt að vera í sviðsljósinu í heil- an dag. „Það var mjög fyndið að hafa athyglina á sér allan daginn. Ég reyndi bara að bera mig vel,“ segir hún. Í veislunni voru nokkur skemmtiatriði. „Ég hélt spurninga- keppni um sjálfa mig þar sem m.a. var spurt hvenær ég eigi afmæli og í hvaða skóla ég gangi. Vinur okkar fjölskyldunnar var búinn að djóka í mér að hann ætlaði að dansa ball- ett úr Svanavatninu í veislunni. Hann var viss um að ég myndi alls ekki vilja það því það yrði svo vand- ræðalegt en ég minnti hann reglu- lega á það. Svo hann fór í svana- búning og dansaði með sínum stíl í veislunni, en hann tekur sjálfan sig ekki mjög hátíðlega. Það sló alveg í gegn.“ Frá því í 4. bekk var Katla ákveðin í að fermast. „Mig langaði alltaf að fermast og var með það á „bucket-listanum“ mínum. Ég man eftir að hafa farið í nokkrar ferm- ingar þegar ég var yngri og fannst það mjög gaman Svo fór ég nokkr- um sinnum í Vindáshlíð og þótt ég sé ekki mjög trúuð er ég samt viss um að einhver vakir yfir okkur. Mér finnst ferming vera hluti af því að fullorðnast.“ Foreldrar Kötlu, Þóra Péturs- dóttir og Njáll Þórðarson, gáfu henni tveggja vikna enskunám- skeið í Englandi í fermingargjöf. Hún ætlar að nýta sér það núna í júní og er mjög spennt að fara. Daginn eftir ferminguna var frí í skólanum og sá dagur varð Kötlu sérstaklega minnisstæður. „Þann dag fór ég í seinustu pruf- urnar fyrir Fanga og fékk hlutverk- ið í kjölfarið á því. Tökur fóru svo fram um sumarið. Árið áður lék ég í Hjartasteini. Ég missti af nokkr- um tímum í fermingarfræðslu því ég var í tökum en vann það upp og presturinn sagði það allt í góðu,“ segir Katla sem verður fimmtán ára í haust. Hún hefur ekki ákveð- ið í hvaða framhaldsskóla hún fer en langar mest á leiklistarbraut. „Ég ætla að taka eitt skref í einu.“ Fermingargjöf sem gefur Fermingarskeyti eða gjafabréf frá Hjálparstarfi kirkjunnar er gjöf sem heldur áfram að gefa. Fermingarbarnið fær skeytið eða bréfið í hendurnar en andvirðið rennur til jafnaldra fermingarbarnsins sem býr við fátækt. Sendu skeyti, það kostar 1.990 kr. Eða gefðu fermingargjafabréf að upphæð 5.000 kr. Þú færð skeytin og gjafabréfin á www.gjofsemgefur.is eða pantar þau á skrifstofunni okkar, 528 4400. Þú prentar út, sækir til okkar – eða við sendum fyrir þig. Einfalt og gleðilegt. Óskalistinn minn: Rúm Myndavél Svefnpoki iPod Vefmyndavél Handklæði Teppi Orðabók Hálsmen Svo væri gaman að fá pening og „Gjöf sem gefur“. Mig langar til að einhver sem er ekki eins heppinn og ég fái að njóta með mér. www.gjofsemgefur.is Við systkinin erum munaðarlaus. 1.990 kr. fermingarskeyti á Íslandi dugar fyrir 3 hænum. Þær gefa okkur fullt af eggjum. Eða við gætum fengið sparhlóðir. Þá færi ekki allur dagurinn í að leita að eldsneyti og við hefðum meiri tíma til að læra. 5.000 kr. gjafabréf á Íslandi myndi gefa okkur geit. Namm! Mjólk og kjöt, ekki lengur bara maísgrautur! Eða kannski reiðhjól. Þá kæmist ég á markað með uppskeruna okkar og við fengjum pening fyrir ýmsu sem okkur vantar. Óskalistinn minn: PI PA R\ TB W A • S ÍA • 1 30 69 1 FerMINgar Kynningarblað 28. febrúar 201720 2 8 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :3 7 F B 0 8 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 5 6 -1 F 7 8 1 C 5 6 -1 E 3 C 1 C 5 6 -1 D 0 0 1 C 5 6 -1 B C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 8 8 s _ 2 7 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.