Fréttablaðið - 28.02.2017, Síða 80
TónlisT
Kammertónleikar
HHHH Kvintettar eftir Mozart í Kammer-
músíkklúbbnum
norðurljós í Hörpu
laugardaginn 25. febrúar
Flytjendur: Auryn-kvartettinn og
Ásdís Valdimarsdóttir
Karlmenn á efri árum eru gjarnan
í erfiðleikum með blöðruháls-
kirtilinn. Þeir þurfa þá oftar að fara
á klósettið en aðrir. Mikil búbót var
því fyrir Kammermúsíkklúbbinn
að flytja í Hörpu úr Bústaðakirkju,
þar sem hann hafði verið lengi. Í
kirkjunni er bara eitt klósett fyrir
almenning og gestir klúbbsins, sem
flestir eru komnir við aldur, voru
yfirleitt í mestu vandræðum í hléinu.
Sem betur fer er nóg af klósettum í
Hörpu!
Klúbburinn er sextugur um þessar
mundir og var afmælinu fagnað um
helgina. Mikið hefur gerst síðan
hann varð til. Ásamt Tónlistarfélag-
inu sáluga var hann í lengri tíma eini
vettvangurinn fyrir kammertónlist
á Íslandi. Nú er öldin önnur, ýmsir
kammerhópar eru hér starfandi og
spila þeir víða um völl.
Tónleikar Kammermúsíkklúbbs-
ins eru haldnir í Norðurljósum og
eru venjulega fjölsóttir. Sú var raunin
á laugardaginn, en sami tónlistar-
hópur kom líka fram daginn eftir. Á
efnisskránni voru strengjakvintettar
eftir Mozart; fyrri daginn nr. 1, 5 og
3, en nr. 4, 6 og 2 á sunnudeginum.
Flytjendur voru hinn heimsþekkti
Auryn-kvartett ásamt Ásdísi Valdi-
marsdóttur víóluleikara.
Kvintettarnir tveir fyrir hlé voru
í dúr-tóntegund, en mollinn réð
ríkjum í kvintettinum eftir hlé. Fyrir
þá sem ekki vita er dúrinn bjartur og
glaðlegur, en mollinn dapurlegur og
myrkur. Stundum er sagt að Mozart
sé betri í moll en í dúr, þótt vissulega
séu til undantekningar. Undirritaður
er á þessari skoðun; tónskáldið nær
einhverri dýpt sem oft er fjarverandi
í dúrnum. Hvað er fegurra en 40. sin-
fónían í g-moll, píanókonsertarnir
nr. 20 og 24 í d- og c-moll, píanó-
sónatan í a-moll eða fiðlusónatan í
e-moll?
Það var alltént skemmtilegra á
tónleikunum eftir hlé. Flutningurinn
þar á undan var samt framúrskar-
andi, túlkunin var kraftmikil en stíl-
hrein. Tæknilega séð örlaði aðeins
á óhreinum tónum í fyrri kvintett-
inum, en þeir hurfu þegar hljóðfæra-
leikararnir voru komnir almennilega
í gang. Kannski var leikurinn eilítið
gleðisnauður, spilararnir voru eins
og þaulreyndir bankamenn á við-
skiptafundi, frekar en innblásnir
listamenn.
Hinsvegar var flutningurinn á
síðasta kvintettinum í g-moll eftir
hlé þrunginn skáldavímu, tónlistin
var háleit og unaðsleg. Fimmmenn-
ingarnir spiluðu eins og einn maður,
samspilið var fágað og smáatriðin í
tónmálinu nostursamlega útfærð.
Hröð tónahlaup voru útfærð á óað-
finnanlegan hátt, hrynjandin var
hárnákvæm og snörp, allar hend-
ingar fagurlega mótaðar. Það var
dásamleg upplifun.
Jónas Sen
niðursTaða: Kvintettinn var nokkra
stund að komast í gang, en svo héldu
þeim engin bönd.
Dökkur Mozart er betri
Kv i k my n d a h á t í ð i n Stockfish stendur nú sem hæst í Bíó Paradís og að þessu sinni er lögð áhersla á umhverfismálin.
Á meðal mynda sem takast á við
umhverfismál með einum eða öðrum
hætti er heimildarmyndin Línudans
eftir Ólaf Rögnvaldsson. Myndin lýsir
tæplega fimm ára baráttu bænda,
landeigenda og náttúruverndar-
samtaka gegn lagningu Blöndulínu
3, sem Landsnet hyggst leggja frá
Blönduvirkjun til Akureyrar, um
Vatnsskarð, Skagafjörð, Öxnadals-
heiði og Hörgárdal.
Ólafur segir að áhugi hans á efninu
hafi fyrst vaknað fyrir hálfgerða til-
viljun. „Ég kynntist fólki úr Skaga-
firðinum árið 2011 en um vorið
2012 komu þessir sveitungar saman
í fyrsta skipti til þess að setjast yfir
þessi mál og funda í gömlu fjárhúsi í
Skagafirði. Það var rétt eftir að frum-
matsskýrslan kom út og ég sá fljót-
lega að mig langaði til þess að gera
mynd um þessa baráttu frá upphafi
til enda. Ég vissi að þetta væri öflugur
hópur fólks sem hefði þekkingu á
mörgum sviðum og að auki bæði bar-
áttuglatt fólk og skemmtilegt. Ég vissi
líka að þetta yrði engin venjuleg
barátta því mér fannst ég
hafa nasasjón af því frá
upphafi. Þannig að
ég mætti hjá þeim
á þennan fyrsta
fund og fylgdi
þessu eftir í ein
tvö ár áður en
ég fór að leita að
fjármögnun eða
einhverju slíku.
Þetta snerist líka
ekki síður um áhuga
minn á því að menn
passi upp á íslenska nátt-
úru. Eins hef ég gaman af því að gera
myndir um baráttu fólks þannig að
þarna gat ég sameinað þessi áhuga-
mál mín.“
Ólafur segir að heimildarmyndir
geti verið ákaflega gott og mikilvægt
verkfæri í baráttu fyrir góðum mál-
efnum á borð við þessi. „Það er mikil-
vægt að skrásetja þessi mál og þessi
mynd spannar vel á fimmta ár og það
hefur mjög mikið gerst á þeim tíma.
Upphaflega sagði Landsnet að það
væri fullkomlega óraunhæft að gera
þetta með þeim hætti sem farið var
fram á, vegna þess að það kosti fimm
til sex sinnum meira að setja þetta
í jörð. En baráttan gengur ekki út á
það að koma í veg fyrir línu-
lögnina, því það átta sig
allir á því að það þarf að
styrkja netið, heldur
með hvaða hætti
það er gert og hvaða
áhrif það hefur á
umhverfið.
E n þ a ð s e m
almenningur áttar
sig ekki á er þessi stærðargráða.
Þegar menn tala um að það vanti
rafmagn í mjólkurbúið á Akureyri
eða eitthvað slíkt þá þarf ekki 220
kV háspennulínu til þess. Það er
eins og að Vegagerðin segði að vegna
þess að umferðin hafi aukist þá þurfi
að breikka vegina um þrjár akreinar í
hvora átt. Þá skilja það allir að það er
bull. En þegar talað er um línurnar þá
er treyst á þekkingarleysi vegna þess
að fólk skilur ekki þessar stærðir.
Landsnet treystir á vanþekkingu
almennings og skammtar fólki upp-
lýsingar úr hnefa og það mjög tak-
markað og sér í hag.“
Þrátt fyrir að málinu sé í raun ekki
lokið ákvað Ólafur að ljúka gerð
myndarinnar enda er ekki nýrra
frétta að vænta á næstunni. „Þeir
voru gerðir afturrækir með þessa línu
fyrir ári síðan af því að þeir fóru ekki
að lögum. Það hefur ekkert heyrst
frá þeim síðan, þannig að staðan er
í raun og veru þannig nú að línan er í
salti og það veit enginn hvað verður.
Þetta er að mörgu leyti sambærilegt
mál við það sem var í gangi á Suður-
nesjum þar sem þeir voru gerðir
afturreka líka eftir baráttu fólksins
þar og ég kem líka inn á það mál í
minni mynd.”
Línudans verður frumsýnd á Stock-
fish í dag kl. 18 og þar gefst gott tæki-
færi fyrir þá sem vilja kynnast þessu
áhugaverða máli betur.
magnus@frettabladid.is
Treyst á vanþekkingu
Í dag verður frumsýnd á Stockfish heimildarmyndin Línudans
eftir Ólaf Rögnvaldsson sem hefur sérstakan áhuga á að mynda
baráttu fólks og vill að við hugum betur að umhverfinu.
Úr heimildarmyndinni Línudans sem verður frumsýnd á Stockfish í dag.
Ólafur Rögnvaldsson,
leikstjóri
Trausti fasteignasala, trausti@trausti.is,
s.546-5050, Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Flétturimi 8, 112 Reykjavík
Skúlagata 40b
Birkihlíð 1, Kjós.
Opið hús í dag, þriðjudaginn 28. febrúar kl. 17:30-18:00
Einstaklega rúmgóð og björt alls 107,8m2. 3ja herb. íbúð á 1. hæð með útgengt
út á pall frá stofu. Nýlega endurnýjað baðherbergi. Í sameign er vagna- og
hjólageymsla. Sameignin er mjög snyrtileg og húsinu hefur verið vel við haldið.
12m2. geymsla í kjallara fylgir eigninni. Verð: 38,9 millj.
Opið hús í dag, þriðjudaginn 28. febrúar kl. 17:30-18:00
Falleg og björt 2ja herb. íbúð fyrir 60 ára og eldri. Íbúðin er 84,5 fm. með útgengt
út á 36 m einkaverönd.Veislusalur, sauna og heitur pottur í sameign og aðgang-
ur að mötuneyti á Vitatorgi. Stæði er í bílageymslu. Gott aðgengi að húsinu með
tilliti til umferðar og bílastæða fyrir gesti. Verð: 37,9 millj.
Einstök íbúðarhúsalóð í landi Þúfukots í Kjósahreppi. Jörðin er ágætlega stað-
sett í u.þ.b. tuttugu mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Svæðið hefur verið
ræktað töluvert. Jörðin býður upp á mikla möguleika, er í senn náttúruperla
með frábæru útsýni í næsta nágrenni við Reykjavík.
Verð: Tilboð
OPIÐ HÚS
OPIÐ HÚS
Kristján Baldursson
hdl. löggiltur fasteigna-,
fyrirtækja- og skipasali,
löggiltur leigumiðlari.
S: 867-3040
Guðbjörg
Matthíasdóttir.
hdl. Sölufulltrúi. Er í námi
til löggildingar fasteigna-
fyrirtækja- og skipasölu.
S: 899-3984
Bryndís Bára
Eyjólfsdóttir
Sölufulltrúi. Er í
námi til löggildingar
fasteigna-fyrirtækja og
skipasölu.
S: 616-8985
Guðbjörg G
Sveinbjörnsdóttir
Sölustjóri. Viðskiptafr.
lögg. fasteigna-, fyrirtækja-
og skipasali, leigumiðlari.
S: 899-5949
2 8 . F e b r ú a r 2 0 1 7 Þ r i ð J u D a G u r28 M e n n i n G ∙ F r É T T a b l a ð i ð
menning
2
8
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
5
5
-E
E
1
8
1
C
5
5
-E
C
D
C
1
C
5
5
-E
B
A
0
1
C
5
5
-E
A
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
8
8
s
_
2
7
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K