Fréttablaðið - 07.03.2017, Page 4

Fréttablaðið - 07.03.2017, Page 4
✿ Fangelsið á Hólmsheiði 1. Deild Thomasar Møller Olsen 2. Líkamsrækt, verslun, bókasafn, vinna og skólastofa. 3. Útisvæði karlaálmu 4. Útisvæði kvennaálmu 5. Gæsluvarðhaldsálma 6. Útisvæði Thomasar 7. Aðalvarðstöð Karl aálm aKven naál ma 5 1 2 3 4 6 7 www.lyfja.is Dekurtjútt Kíktu á frábær tilboð á dekurvörum í næstu verslun Lyfju eða verslaðu í netverslun á lyfja.is og fáðu vöruna senda heim. Tilboðs- dagar 6.–19. mars Kíktu á frábær tilboð á dekurvörum í næstu verslun Lyfju eða verslaðu í netverslun á lyfja.is og fáðu vöruna senda heim. Dekurtjútt Netverslun – lyfja.is Benecos Flottar, lífrænar snyrtivörur á frábæru verði, kíktu á úrvalið.Afsláttur af allri línunni. Dr. Organic Náttúrulegar húðvörur, lífræn innihaldsefni og án allra aukaefna.Afsláttur af allri línunni. Tilboðs- dagar 6.–19. mars Sothys Ert þú að nota rétt krem fyrir þína húð? Spa- og snyrtivörurnar frá Sothys eru notaðar af sérfræðingum um allan heim. Á dekur dögum Lyfju verða sérfræðingar frá Sothys með húðgreiningu í völdum verslunum. Afsláttur af allri línunni. 20% 25% 30% Þú finnur tilboðsvörurnar í bæklingi Lyfju sem hefur verið dreift inn á heimili Fasteignir Kirkjuráð hefur hafnað öllum kauptilboðum í Laugaveg 31. „Kirkjuráð ákveður að hafna þeim á þeirri forsendu að þau upp- fylli ekki þær væntingar sem lagt var upp með varðandi söluna,“ segir í tillögu frá forseta kirkjuráðs, Agnesi Sigurðardóttur biskup. Klofningur varð í atkvæðagreiðslu um málið í kirkjuráði síðastliðinn föstudag. Þrír af fimm ráðsmönnum greiddu tillögu biskups atkvæði, einn sat hjá og einn var á móti. „Ég harma þá afstöðu meirihluta kirkjuráðs að greiða atkvæði með tillögu forseta kirkjuráðs og hafna þar með fyrirliggjandi og mjög ásættanlegu kauptilboði,“ bókaði Stefán Magnússon, annar af tveimur fulltrúum leikmanna í ráðinu. Einni viku fyrir fundinn á föstu- dag hafði sérstaklega verið til umræðu á fundi  kirkjuráðs  kaup- tilboð frá félaginu M3 Capital ehf. Þá var einnig lögð fram greining fasteignasölunnar Eignamiðlunar á húsaleiguforsendum og ávöxtunar- kröfu kauptilboðsins. Sömuleiðis lágu þá fyrir minnispunktar Odds Einarssonar, framkvæmdastjóra kirkjuráðs, varðandi tilboðið. Þess má geta að þegar kirkjuráð samþykkti 17. janúar síðastliðinn með fjórum atkvæðum að setja Laugaveg 31 á sölu sat Agnes biskup ein hjá í atkvæðagreiðslunni. – gar Klofið kirkjuráð hafnar öllum tilboðum í Kirkjuhúsið á Laugavegi samFélag Á fimm dögum hafa tvær líkamsárásir verið kærðar til lög- reglunnar eftir að ráðist hefur verið að ungmennum í Mjódd. Á sunnudag réðust tveir menn á 15 ára gamlan dreng og veittu honum meðal annars augnáverka. Mennirnir létu sig hverfa af vett- vangi en lögreglan veit hverjir ger- endur eru. Á miðvikudag var ráðist að 13 ára gömlum dreng við biðstöð Strætó. Hefur málið verið kært til lögreglu. Jóhannes S. Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó, segir að öryggisvörður sé í Mjódd og almennt séu ekki mikil læti í bið- salnum. „Atvikið er algjör undantekning og hringdi fólkið í miðasölu á lög- reglu. Við erum með öryggismynda- vélar og teljum það nægjanlegt þarna,“ segir hann. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglu eru málin bæði í rannsókn sem miðar vel. – bb Ráðist á drengi við Mjóddina Agnes Sigurðar- dóttir biskup á skrifstofu sinni í Kirkjuhúsinu á Laugavegi 31. FréttAbLAðið/GVA lögreglumál Manninum, sem grunaður er um að hafa banað Birnu Brjánsdóttur, er haldið einum á deild í fangelsinu á Hólmsheiði. Ein- angrunarvist mannsins er lokið en hann hefur þó hingað til ekki haft tök á að eiga í beinum samskiptum við fólk, annað en fangaverði. Thomas Møller Olsen hefur setið í gæsluvarðhaldi í rúmlega sex vikur en einangrun hans lauk fyrir viku. Síðan þá hefur hann dvalið í fangels- inu á Hólmsheiði og sinnir hvorki vinnu né skóla. Hann fær útivist í klukkustund á dag en á meðan jafn kalt er í veðri og djúpur snjór er þá nýta fáir fangar sér útivistina svo nokkru nemi. „Við erum að skoða hvernig hans ferill er raunverulega í fangelsinu. Hann er bara nýkominn,“ segir Guðmundur Gíslason, forstöðu- maður fangelsisins, um ástæður þess að Thomas sinnir hvorki skóla né vinnu.  Fangelsinu á Hólmsheiði er skipt upp í átta deildir, sex þeirra rúma átta fanga en tvær þeirra eru gerðar fyrir fjóra fanga. Thomas hefur þar með ekki hitt aðra fanga í þá viku sem hann hefur verið í fangelsinu en samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er ekki útilokað að þegar um hægist í máli hans og dómur er jafnvel fallinn þá geti það farið svo að hann komi til dæmis til með að hitta kvenfanga fangelsisins í versl- uninni eða vinnustofum og skóla. „Fangelsið er ekki uppbyggt þannig að fangar fari sjálfir út af deildum og í sameiginleg rými. Við getum valið að ef fangar eru á mismunandi deildum þá geti þeir verið saman í námi hluta dags. En þeir fara ekkert sjálfir í það heldur er þeim fylgt út af deildinni og það hefur alltaf einhver umsjón með því,“ segir Guðmundur. Fangelsið er byggt í kross og í Skipverji fjarri öðrum föngum Thomas Møller Olsen er einn á gangi í fangelsinu á Hólmsheiði á meðan starfsmenn fangelsisins reyna að átta sig á honum. Hann sinnir hvorki vinnu né skóla. Alls 26 fangar dvelja nú í fangelsinu á Hólmsheiði. ráðist var á þrettán ára gamlan dreng á stoppistöð. FréttAbLAðið/ViLheLm miðjunni er aðalvarðstofan þar sem fangaverðir hafa sínar aðalbæki- stöðvar, geta fylgst með eftirlits- myndavélum og svo framvegis. Á því svæði er einnig verslun, skólastofa, vinnuaðstaða, bókasafn og líkams- ræktarsalur. Thomas hefur aðgang að líkamsræktarsalnum en þarf að panta aðstöðuna svo það hitti ekki á tíma annarra. Í fangelsinu er einnig jógasalur en bæði karlar og konur fá einn jógatíma á viku þar sem kynin eru aðskilin. Thomas þarf að sjá um sín eigin innkaup í verslun fangelsisins og sér um eigin matseld, eins og aðrir fangar þurfa að gera. „Það má ekki reykja inni í fangels- inu en við hverja deild eru svokall- aðar reyksvalir. Þangað geta fangar komist til að reykja án þess að þurfi að hleypa þeim sérstaklega út.“ Gæsluvarðhaldsfangar sem ekki sæta einangrun hafa sömu réttindi og aðrir fangar. Þeir geta því keypt sér símkort og hringt hvert á land sem er, ef þá lystir. Þá hefur Thomas sama heimsóknarrétt og aðrir, eða tveggja tíma heimsókn einu sinni í viku. „Menn verða að leggja fram lista með fyrirvara þar sem þeir óska eftir ákveðnum einstaklingum í heimsókn. Þetta er aðallega stílað á að fólk fái heimsókn frá fjölskyldu en ekki einhverjum félögum,“ segir Guðmundur. snaeros@frettabladid.is Það má ekki reykja inni í fangelsinu en við hverja deild eru svokall- aðar reyksvalir. Þangað geta fangar komist til að reykja án þess að þurfi að hleypa þeim sérstaklega út. Guðmundur Gíslason, forstöðu- maður fangelsisins á Hólmsheiði 2 líkamsárásir sem áttu sér stað í Mjódd hafa verið kærðar til lögreglunnar á fimm dögum Einn kirkjuráðsmaður kvaðst harma að „mjög ásættanlegu“ tilboði væri hafnað að tillögu biskups. 7 . m a r s 2 0 1 7 Þ r i Ð J u D a g u r4 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a Ð i Ð 0 7 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 6 3 -F C 4 C 1 C 6 3 -F B 1 0 1 C 6 3 -F 9 D 4 1 C 6 3 -F 8 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 6 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.