Fréttablaðið - 07.03.2017, Side 18
„Þetta er tiltölulega nýtt bílasport.
Fyrstu buggy-bílarnir komu fram
á sjónarsviðið fyrir rúmum ára-
tug. Ég hef verið á sleðum, mótor-
hjólum, jeppum og fjórhjólum en
buggy-bíllinn er græja sem sam-
einar þetta allt og hægt er að nota
bílinn jafnt sumar sem vetur.
Í þessu sporti er maður engum
háður, er undir berum himni með
allan sinn farangur. Þetta gefur
manni frelsi til að fara þvert yfir
landið með tjald og vistir,“ segir
Grettir, sem er í sístækkandi hópi
áhugafólks um buggy-bíla.
„Við förum í alvöru vetrar-
ferðir á bílnum rétt eins og gert
er á stórum jeppum. Við græj-
um bílana líkt og jeppa og setjum
stór dekk undir þá, en það er sérís-
lenskt fyrir brigði. Hvergi í heim-
inum eru þessir bílar græjaðir
eins og hér á landi,“ segir hann.
Þar sem bílarnir eru alveg
opnir er hvergi skjól fyrir veðri og
vindum en Grettir segir það hluta
af ævintýrinu. „Þetta er eins og
að vera á sleða. Maður er úti og
kuldinn er hluti af þessu, að vera
úti í náttúrunni, alveg óvarinn en
vel klæddur. Við förum reglulega
í þriggja til fjögurra daga ferð-
ir upp á hálendið og á jöklana og
gistum í skálum. Við förum þó oft-
ast um Fjallabak sem er einn af
mínum uppáhaldsstöðum en við
eigum skála þar. Það er ólýsan-
legt að vera þar í fallegu veðri og
fátt skemmtilegra en að keyra þar
í góðu færi.“
Grettir segir félagsskapinn í
kringum buggy-bílana góðan og að
flestir í þessu sporti þekkist vel.
„Hópurinn stækkar sífellt og æ
fleiri koma inn í þetta. Oft er það
fólk sem hefur verið í bílasporti
og þekkir vel til svona aksturs.“
Á sumrin er farið í lengri ferð-
ir og þá er gist í tjöldum á tjald-
stæðum. Grettir segir kostinn við
buggy-bílana vera þann að geta
tekið allt með sér því það sé nóg
pláss fyrir farangur og eldsneyti
og engin þörf á trússbílum fyrir
lengri ferðir. „Það skemmtileg-
asta við þetta er fjölhæfnin og
að geta ferðast um á þessu tæki
allt árið um kring. Það er hægt að
nota bílinn að vetri þótt það sé lít-
ill snjór,“ segir Grettir og bendir á
að þetta henti vel sem fjölskyldu-
sport. „Bílarnir eru öruggir, þeir
eru með veltigrind og ökumaður
og farþegar með hjálma,“ segir
hann en um helgina er stefnt á
ferð inn í Landmannalaugar. Ef
veður leyfir.
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
Grettir Rúnarsson er mikill áhugamaður um buggy-bíla.
Á leið yfir Markarfljót.
Grettir fer í buggy-bílaferðir um vetur jafnt sem sumar.
Félagsskapurinn í kringum buggy-bílana fer sístækkandi.
Fátt Fallegra en Fjallabak
Grettir Rúnarsson notar hvert tækifæri til að ferðast um landið á svokölluðum buggy-bíl. Hann segir bílinn sameina
áhuga sinn á útivist og mótorsporti og fer reglulega í þriggja til fjögurra daga ferðir upp á hálendi og jökla yfir veturinn.
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Sérblað Fréttablaðsins kemur út 21. mars
Áhugasamir geta haft samband við auglýsingadeild sérblaða
Sími 512 5402
serblod@365.is
7 . m a r s 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D a G U r4 F ó l k ∙ k y n n I n G a r b l a Ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G a r b l a Ð ∙ h e I l s a
0
7
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
4
-1
9
E
C
1
C
6
4
-1
8
B
0
1
C
6
4
-1
7
7
4
1
C
6
4
-1
6
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
6
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K