Fréttablaðið - 07.03.2017, Page 20

Fréttablaðið - 07.03.2017, Page 20
www.visir.is/bilar Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius finnurth@365.is Auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is, Sími 512 5457 Bílar Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Sjálfsagt muna fáir eftir Tatra-fólks- bílum en þeir voru framleiddir í Tékklandi og voru sannkallaðir lúxusbílar. Tatra-fyrirtækið er enn til og framleiðir nú aðallega stóra trukka sem stundum sjást í keppni í Dakar-þolakstrinum. Tatra fram- leiddi fólksbíl síðast árið 1999. Nú eru yfirmenn Tatra að bræða það með sér að hefja aftur framleiðslu Tatra-fólksbíla og það yrði þá gert með því að viðhalda ytra útliti frægra Tatra-fólksbíla fortíðarinnar, bíla eins og Tatra T600, Tatra 613 og 603. Líklegast er að T600 bíllinn verði fyrir valinu, en útlit hans endurspeglar ekki kommúnista- tímann með eins afgerandi hætti og aðrar gerðir Tatra-fólksbíla. Hann yrði þó með allri nútíma tækni og lúxusinnréttingu. Tatra þriðja elsta bílamerki heims Tatra er þriðja elsta bílamerki heims á eftir Mercedes Benz og Peugeot og fyrirtækið smíðaði á árum áður afar merkilega bíla og eitt fárra með vélina aftur í. Fyrsti bíll Tatra kom fram á sjónarsviðið árið 1897. Sagt er að Ferdinand Porsche sem hannaði Bjölluna og Porsche 911 hafi haft Tatra-bíla sem fyrirmynd og þess vegna séu vélar í báðum bílgerðunum fyrir aftan afturöxulinn, eins og í bílum Tatra á árunum milli stríða. Vélarnar í bílum Tatra voru auk þess Boxer-vélar, líkt og Ferdinand Porsche notaði í Porsche 911. Hitler valdi Tatra Árið 1936 kom Tatra fram með glæsikerruna T87, bíl sem Hitler valdi umfram bíla frá Porsche, með orðum Hitlers: „Þetta er bíll fyrir mína vegi.“ Eftir það gekk Ferdinand Porsche heilmikið í smiðju Tatra við þróun bíla sinna, þar á meðal Bjöllunnar, en einnig Porsche-bíla. Tatra kærði Porsche fyrir hönnunarstuld og það var ekki fyrr en árið 1961 sem Porsche greiddi Tatra þrjár milljónir þýskra marka í sekt fyrir allan stuldinn. Það má því ljóst vera að í smiðju Tatra var og líklega er enn heilmikil þekking á smíði gæðabíla. TaTra afTur í fólksbílaframleiðslu Tatra T87 var bíllinn sem Hitler valdi umfram Porsche. Mikið umtal undanfarið um fyrir- sætur sem gengið hafa í gegnum fegrunaraðgerðir í Photoshop myndvinnsluforritinu hefur varpað kastljósinu á annan atvinnugeira. Þar á bæ eru fyrirsæturnar ekki á launaskrá en eigendur þeirra eiga mikið undir því að vel heppnist með myndatökur af þeim. Myndir af bílum í óraunverulegu umhverfi eða aðstæðum tröllríða nú bíla- geiranum sem aldrei fyrr. Íslenskir neytendur fara ekki varhluta af þessu og á stuttri yfirferð yfir heimasíður íslensku umboðanna mátti fljótt finna myndir sem voru misvel unnar. Myndirnar eiga það venjulega sam- merkt að undirstrika eiginleika eins og afl, aksturseiginleika, drifgetu eða þess háttar og stundum eru þær svo illa unnar að það er nánast hallæris- legt, en á öðrum þarf að skoða þær vel til að sjá hvort átt hafi verið við þær. Við bárum þessar myndir undir nokkra ljósmyndara sem voru sam- mála um að allar myndirnar væru „fótósjoppaðar“. lifum í heimi falsana Að sögn Þorvalds Arnar Kristjáns- sonar ljósmyndara er mikil mynd- vinnsla einkennandi fyrir bílaiðn- aðinn. „Bílaauglýsingar eru að verða eins og villta vestrið þegar kemur að Photoshop-myndvinnslu. Oft er hún misheppnuð en stundum líka mjög vel heppnuð og skemmtilega úthugsuð eins til dæmis Faraday FF91 bíllinn, sem á dögunum var kynntur með myndum frá Íslandi. Þar var myndvinnslan svo góð að ég áttaði mig ekki strax á að hann væri settur inn í umhverfið,“ sagði Þor- valdur sem um árabil myndaði bíla fyrir öll helstu dagblöð landsins. Að sögn Þorvaldar eru brenglaðir litir í auglýsingum, sterkir kontrastar og aðrar æfingar misheppnaðar myndir sem endast illa. „Svo getur dæmið snúist við og vel heppnuð ljósmyndaferð með bíl og umhverfi hans heppnast svo vel, að það er alveg eins og hann hafi verið settur eftir á inn í myndina,“ sagði Þor- valdur sposkur. Þrívíddarlíkön bíla eru einnig orðin mjög fullkomin svo að auðvelt er fyrir vanan mynd- hönnuð að skeyta bíl og umhverfi saman á mjög raunverulegan hátt, jafnvel í myndböndum eins og nú er einnig farið að sjást. Tryggvi Þor- móðsson er ljósmyndari af gamla skólanum og lærði sérstaklega iðn- aðarljósmyndun þar sem mynda þarf við erfið skilyrði. Tryggvi segir að við lifum í heimi falsana þegar kemur að ljósmyndum. „Það er verið að skeyta stúdíómyndum inn í landslag þar sem lýsing er í kross og með mismunandi diffuserum.“ Það er í raun og veru ekkert sem kemur í staðinn fyrir alvöru myndatöku þegar bílar eiga í hlut. Höf.: Njáll Gunnlaugsson Photoshop tröllríður öllum bílageiranum Bílaauglýsingar eru að verða eins og villta vestrið þegar kemur að myndvinnslu í Photoshop-myndvinnsluforritinu. Ofurrafbíl plantað utan vegar á Íslandi. sTuTTgarT bannar dísilbíla án euro 6  Borgaryfirvöld í þýsku borginni Stuttgart ætlar að banna umferð dísilbíla, sem ekki uppfylla Euro 6 mengunarstaðalinn á næsta ári, á þeim dögum sem mengun mælist mikil. Í byrjun árs 2016 uppfylltu aðeins 10 prósent dísilbíla í um- ferð í Þýskalandi Euro 6 staðalinn. Því gæti þetta átt við megnið af dísilbílum borgarinnar. Það er kaldhæðnislegt að í Stuttgart og nágrenni borgarinnar eru bæði Mercedes Benz og Porsche með höfuðstöðvar sínar, en þar á bæ eru smíðaðir dísilbílar af krafti, þó þeim fari örugglega fækkandi á næstu misserum. Mjög algengt er í þýskum borgum að mengun fari reglulega yfir heilsuviðmiðunar- mörk og á það við um 90 þýskar borgir. Ástandið í Stuttgart er oft mjög slæmt þar sem borgin stend- ur í dal. Þýskaland hefur fengið viðvaranir frá Evrópusambandinu þar sem yfir þessi mörk hafi verið farið 35 daga á ári. Enn fremur hafi borgaryfirvöld fengið kærur á sig frá umhverfisyfirvöldum í Þýska- landi fyrir að bregðast ekki við því þegar mengunin fer yfir þessi mörk. World Health Organization lét hafa eftir sér á síðasta ári að mengun í borgum og dreifbýli hafi valdið dauða um þriggja milljóna manna árið 2012. Ekki fer það ástand batnandi nema með aðgerðum líkt og borgaryfirvöld í Stuttgart eru nú að grípa til. Mengun yfir Stuttgart. Þessi Rexton á greinilega að vera að sýna getu sína á vaðinu en óraun- veruleg myndvinnsla gerir myndina ótrúverðuga. Talsverð synd þar sem bíllinn hefði auðveldlega getað framkvæmt þetta í raunveruleikanum. Fyrir einhvern sem reynsluekur árlega bílum í tugatali virkar mynd eins og þessi mjög óraunveruleg. Bíllinn á greinilega að vera að spóla á öllum hjólum á malbikinu og það er eins og enginn ökumaður sé undir stýri. Á þessari mynd af Skoda Yeti er mikið búið að eiga við liti og lýsingu, svo mikið að erfitt getur verið að átta sig á hvort bíllinn hafi verið sett- ur inn í myndina eða ekki. Nýi ofurrafbíllinn Faraday FF91 var kynntur á dögunum og bakgrunnurinn er kunnuglegur þótt bíllinn hafi aldrei komið hingað. Þorvaldur Örn ljósmyndari segir myndina gott dæmi um vel heppnaða myndvinnslu. 7 . m a r s 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D a G U r2 Bílar 0 7 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 6 4 -1 4 F C 1 C 6 4 -1 3 C 0 1 C 6 4 -1 2 8 4 1 C 6 4 -1 1 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 6 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.