Fréttablaðið - 07.03.2017, Síða 22
Þeir Hallgrímur Einarsson, Guðjón
Reykdal Óskarsson og Hjálmar Þor-
valdsson fengu á dögunum afhenta
þrjá sérhannaða Mercedes-Benz
V-Class bíla sem þeir munu keyra
sjálfir en þremenningarnir eru allir
bundnir hjólastól. Að verkefninu
koma Sjúkratryggingar Íslands,
Öryggismiðstöðin og Bílaum-
boðið Askja. V-Class bílarnir eru
mjög mikið breyttir eftir þörfum
viðkomandi ökumanna sem eru í
hjólastólum sínum þegar þeir aka
bílunum. Búið er að setja lyftu utan
á bílana sem sér um að lyfta öku-
mönnum upp í þá. Hægt er að færa
hið hefðbundna ökumannssæti og
renna því til hliðar. Búið er að setja
tvo stýripinna sinn hvorum megin
við stýrið en ökumennirnir nota
stýripinnana til að stýra bílnum.
Þar er m.a. að finna bensíngjöf og
bremsur. Öryggismiðstöðin sá um
að gera allar breytingar á bílunum
og koma hjálpartækjum fyrir í þeim
fyrir ökumennina.
Langt ferli að breyta bílunum
Jón Eiríksson, verkefnastjóri hjá
Öryggismiðstöðinni, sá um breyt-
ingar á V-Class bílunum. ,,Það er
langt ferli að breyta einum svona
bíl. Fyrir það fyrsta þarf einstakling-
ur sem hyggur á svona breytingu að
undirgangast ökumat hjá Grensás-
deild LSH og þegar því er lokið þarf
að huga að stjórnbúnaði sem hentar.
Við höfum að leiðarljósi að aðlaga
bílana eins og hentar hverjum og
einum. Öryggismiðstöðin býður
upp á mikið úrval af íhlutum til
breytinga á bílum fyrir hreyfihaml-
aða auk þess að bjóða búnað fyrir
ferðaþjónustuaðila sem bjóða upp á
sérhæfða ferðaþjónustu,“ segir Jón.
Sjúkratryggingar Íslands borga öll
hjálpartækin sem sett eru í bílana
og breytingarnar við það. Þremenn-
ingarnir fá bílastyrk frá Trygginga-
stofnun Íslands. Þetta er mikið ferli
sem viðkomandi fer í gegnum áður
en hann fær slíkan bíl. Hann þarf að
fara í gegnum mat á því hvort hann
geti yfirleitt keyrt bíl og að sjálfsögðu
að taka bílpróf eins og allir aðrir öku-
menn. Það eru margir sem koma að
þessu verkefni eins og áður segir en
stærstan heiður eiga Sjúkratrygg-
ingar Íslands, Öryggismiðstöðin og
Bílaumboðið Askja.
Breyttir V-Class bílar fyrir
hreyfihamlaða ökumenn
Sérhannaðir bílar þar sem ökumenn aka bílunum í hjólastólum. Lyfta utan á sem lyftir ökumönnunum inn.
Golfklúbbur Reykjavíkur í sam-
vinnu við Mercedes-Benz og Bíla-
umboðið Öskju kynnir nýjung í
mótahaldi fyrir félagsmenn sína
sumarið 2017. Nýtt mót Merc-
edes-Benz bikarinn hefur verið
sett á laggirnar hjá GR en um er að
ræða innanfélagsmót. Sigurvegari
Mercedes-Benz bikarsins hlýtur
í verðlaun árgjald í GR fyrir árið
2018 og afnot af Mercedes-Benz
bifreið í heila viku. Verðlaun fyrir
annað sætið verður flugmiði til
Evrópu auk afnota af Mercedes-
Benz bifreið í heila viku. Í lok sum-
ars verður svo öllum keppendum
mótsins boðið til lokahófs í boði
Mercedes-Benz á Korpúlfsstöðum.
Um er að ræða glæsilegt lokahóf þar
sem meðal annars verður dregið úr
gjafabréfum til Evrópu. Fyrirkomu-
lag mótsins er þannig að keppni
hefst með 18 holu forkeppni sem
stendur í heila viku, bæði fyrir karla
og konur. Aldurstakmark er 19 ára
og eldri. Forkeppnin verður leikin
á Korpúlfsstaðavelli. Hver kepp-
andi má leika allt að sjö hringi
í forkeppninni í þeirri viku sem
forkeppnin stendur. Forkeppnin
er punktakeppni Stabelford með
fullri forgjöf. Þeir kylfingar sem
komast upp úr forkeppni fara áfram
í útsláttarkeppni sem leikin verður
bæði á Grafarholtsvelli og Korpúlfs-
staðavelli.
Mercedes-Benz bikarinn hjá GR
Frá vinstri eru Ásgrímur Helgi Einarsson, sölustjóri Mercedes-Benz, Arna Rut
Hjartardóttir markaðsfulltrúi, Ómar Örn Friðriksson framkvæmdastjóri GR og
Atli Þór Þorvaldsson mótsstjóri.
Guðjón, Hjálmar og Hallgrímur fyrir framan nýju V-Class bílana sína. Að baki þeim eru fjölskyldumeðlimir og starfsfólk
Öryggismiðstöðvarinnar, Bílaumboðsins Öskju og Sjúkratrygginga Íslands sem öll komu að verkefninu.
V-Class bílarnir eru hinir glæsilegustu
og sérhannaðir fyrir þremenningana.
Margir nýir bílar verða sýndir á
komandi bílasýningu í Genf og
einn þeirra er þessi upphækkaði
Citroën C3 og hefur Citroën gefið
honum nafnið C-Aircross Con-
cept. Þessi bíll smellur akkúrat í
flokk þeirra bíla sem hvað vin-
sælastir eru í heiminum í dag, þ.e.
smár jepplingur. Þessi tilraunabíll
er með vængjahurðum og engum
hliðarspeglum, heldur mynda-
vélum inni í bílnum í þeirra stað.
Hann er heldur ekki með neina
B-pósta og á það að tryggja auð-
veldara aðgengi fyrir aftursætis-
farþega. Innanrýmið er fullt af
bleiklituðum innsetningum, líkt
og á ytra byrði bílsins og þakið er
úr gleri. Mjög er vandað til innrétt-
ingarinnar og meðal annars eru
sæti bílsins stöguð og í mælaborð-
inu eru nánast engir takkar og því
flestu stjórnað á aðgerðaskjá. Bíll-
inn stendur á 18 tommu felgum, en
hann er aðeins framhjóladrifinn
svo hann mun ekki mikið glíma
við torfærurnar og er eiginlega
svokallaður borgar jepplingur.
Hönnun bílsins tók mið af góðu
loftflæði og á hann að vera með
mjög litla loftmótstöðu.
Citroën
með jeppling
byggðan á C3
Audi RS Q5
sýndur í Genf
Audi á í vopnabúri sínu Q5 jepp-
linginn í kraftaútgáfunni SQ5. Nú
skal gera enn betur og tefla fram
mun aflmeiri útgáfu jepplingsins,
Audi RS Q5. Þessi kraftaköggull
verður sýndur á bílasýningunni í
Genf sem hefst í næsta mánuði.
Hann mun líklega fá sömu 450
hestafla vélina sem finna má í Audi
RS4 og RS5 fólksbílunum. Sú vél er
frá Porsche og er 2,9 lítra V6 með
tveimur forþjöppum og togar 600
Nm. Þessi vél er sem sagt með
minna sprengirými en aflminni
Audi SQ5 bíllinn sem er 3,0 lítra og
354 hestafla og með 500 Nm togi.
Þarna munar hartnær 100 hest-
öflum og hafi sumum þótt Audi
SQ5 bíllinn röskur, er komið hálf-
gert villidýr í formi þessa nýja Audi
RS Q5 bíls. Hann verður sjöundi
RS-bíll Audi, en fyrir eru RS3, RS
Q3, TT RS, RS6, RS7 og R8 sport-
bíllinn. Búist er við því að nýr Audi
RS Q5 verði þó nokkuð sneggri í
hundraðið en 5 sekúndur en SQ5
er 5,4 sek. Þá er búist við því að
bíllinn kosti meira en 80.000 evrur í
Þýskalandi, eða 9,8 milljónir króna.
Audi SQ5 kostar 65.790 evrur. Það
undarlega er að Audi SQ5 kostar
53.300 dollara í Bandaríkjunum
og er því um tveimur milljónum
krónum ódýrari vestanhafs en í
smíðalandinu Þýskalandi. Skrítin
veröld það!
7 . m a r s 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D a G U r4 Bílar
0
7
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
4
-0
1
3
C
1
C
6
4
-0
0
0
0
1
C
6
3
-F
E
C
4
1
C
6
3
-F
D
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
6
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K