Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.03.2017, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 07.03.2017, Qupperneq 26
BAJA STZ JEPPADEKK Icetrack ehf. · Sími 773 4334 · mtdekk@mtdekk.is www.mtdekk.is Hljóðlátt heilsársdekk, með ótrúlega endingu Sérhannað mynstur tryggir betra grip við allar aðstæður Vörunr. Stærð Listaverð Afsl. Afsl. verð 1461 MT 31X10.50R15LT STZ 38.990 50% 19.495 1484 MT 245/75R16 STZ 40.890 50% 20.445 1485 MT 245/70R17 STZ 42.690 30% 29.883 50731 MT 265/70R17 (32”) STZ 40.390 30% 28.273 50740 MT LT275/70R17 (32”) STZ 47.590 50% 23.795 50760 MT LT285/70R17 (33”) STZ 51.990 30% 36.393 50780 MT LT315/70R17 (35”) STZ 54.490 30% 38.143 50831 MT LT265/60R18 STZ 43.190 30% 30.233 50840 MT LT275/70R18 STZ 54.490 30% 38.143 50251 MT 275/60R20 (33”) STZ 48.290 50% 24.145 LAGERSALA BL er umboðsaðili Land Rover en systurfyrir-tæki þess er Jaguar. Bílar Jaguar eru sveip-aðir ljóma enda hefur Jaguar í gegnum tíðina framleitt marga af fallegustu og athyglisverðustu sportbílum heims. Nú er svo komið hjá hinu vaxandi fyrirtæki Jaguar að þar á bæ eru framleiddir bílar sem almenn- ingur hefur efni á en enn þá er um mikla gæðabíla að ræða. Jaguar átti söluár í fyrra sem var með miklum ólíkindum því vöxturinn nam 77% og fór úr 84.000 bílum í 149.000. BL hefur nú slegið í klárinn og hafið innflutning fyrir alvöru á Jaguar- bílum og komu nokkrir slíkir til landsins um daginn. Bílablaða- mönnum var boðið að aka þeim í heilan dag um suðvesturhornið. Það er hægt að bjóða í verri veislu en það, enda nutu þátttakendur dagsins til fullnustu. Fimm Jaguar-bílar til taks Til taks voru Jaguar XE, Jaguar XF og þrjár útfærslur jeppans Jaguar F-Pace. Skiptust þátttakendur á að aka þessum bílum og voru eins og kóngar í eigin ríki. Allir bílarnir voru með dísilvélum. Fyrstan skal nefna Jaguar XE með 2,0 lítra og 180 hestafla vél. Þessi minnsti bíll Jaguar fæst frá 4.990.000 krónum og er hann því afar samkeppnis- fær við helstu keppinauta sína, BMW 3, Audi A4 og Mercedes Benz C-Class. Flestir munu þó vissulega kaupa þennan bíl betur útbúinn en í grunnútfærslunni og margir með sjálfskiptingunni og jafnvel fjór- hjóladrifinn. Jaguar XE reyndist ferlega skemmtilegur í akstri, bæði snarpur og lipur, enda er hann ekki nema 7,8 sekúndur í hundraðið. Í langkeyrslunni var hann eins og hugur manns og svo er hann mikill sparigrís og uppgefin eyðsla frá 3,8 lítrum og mengunartalan einnig lág, eða frá 99 g/CO2. Eiga þessar tölur við E-Performance útgáfu bílsins. XE er að miklu leyti smíð- aður úr áli og það skýrir að hluta til góða aksturseiginleika hans og lága eyðslu. Þá skaðar ekki ógnar- lítil 0,26 Cd loftmótsstaða hans. Stærri bróðir fólksbílanna Stærri bróðir XE er XF en bíllinn sem var reyndur var með sömu 2,0 lítra dísilvélinni, 180 hestöfl. Hann er öllu stærri bíll og á helst sam- keppnisbíla í lúxusflokki eins og BMW 5, Audi A6 og Mercedes Benz E-Class. XF er nú af annarri kyn- slóð og hann hefur lést um hvorki meira né minna en 190 kíló og er 110 kílóum léttari en BMW 520d og 80 kílóum léttari en Audi A6 2,0 TDI. Það er eins með þennan bíl og XE, hann er smíðaður að miklu leyti úr áli. Akstur hans er keimlíkur XE, afar léttleikandi og fimlegur en það er einhvern veginn meiri tign yfir honum og það finnst fyrir því að hann er stærri og virðulegri bíll. Jaguar XF er líka sparibaukur með þessa annars öflugu dísilvél, en uppgefin eyðsla er 4,0 lítrar, meng- unin 109 g/km og loftmótsstaðan er líka 0,26 Cd. Jaguar XF má fá með stærri vélum sem eru allt að 380 hestöfl og þá er bíllinn rétt rúmar 5 sekúndur í hundraðið. Jaguar XE má líka fá í mikilli kraftaútgáfu, 340 hestöfl og er hann enn sneggri en kraftaútgáfa XF. Jaguar XF kostar frá 5.790.000 kr. Stórkettirnir eru mættir Jaguar-bílarnir XE, XF og jeppinn F-Pace voru prófaðir í löngum reynsluakstri hérlendis um daginn, en BL hefur hafið innflutning á þessum goðsagnakenndu bílum frá Jaguar. Síðasta ár var hreint út sagt ótrúlegt fyrir Jaguar því vöxturinn nam 77 prósentum í seldum bílum. Frábær F-Pace jeppi Mesta upplifunin var fólgin í að prófa hinn nýja jeppa Jaguar, F-Pace. Þar fer alveg frábær bíll með stærri 3,0 lítra dísilvél með öskrandi 300 hestöfl til taks og tröllslegt 700 Nm tog. Undirritaður minnist þess ekki að hafa reynt bíl með 3,0 lítra dísil- vél með öðru eins afli og þessi sturt- ar út. Þarna fer ógnarskemmtilegur og öflugur bíll sem jafnvel enn meiri unaður er að aka en fólksbílunum, enda nokkru dýrari. Hann er litlar 6,2 sekúndur í hundraðið, hámarks- hraðinn 241 km og eyðslan er upp- gefin 6,0 lítrar. Jaguar hefur tekist, eins og með fólksbílana að gera þennan stóra bíl furðu léttan, eða 1.665 kg með mikilli álnotkun og það er honum til tekna í akstri, sem er einkar sportlegur. F-Pace er t.d. 160 kg léttari en sú kynslóð Audi Q5 sem er nú að renna sitt skeið á enda. Helstu samkeppnisbílar F-Pace eru BMW X4, Audi Q6 sem von er á á næsta ári og Porsche Macan. F-Pace er með 650 lítra flutningsrými, því stærsta í sínum flokki. Jaguar F-Type kostar frá 7.790.000 en þá með 2,0 lítra dísilvélinni. Jaguar-bílarnir XE, XF og jeppinn F-Pace voru prófaðir í löngum reynsluakstri hérlendis um daginn. Undirritaður minnist þess ekki að hafa reynt bíl með 3,0 lítra dísilvél með öðru eins afli og þessi sturtar út. Þarna fer ógnarskemmti- legur og öflugur bíll sem jafnvel enn meiri unaður er að aka en fólksbíl- unum. 7 . m a r s 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D a G U r8 Bílar 0 7 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 6 3 -F 2 6 C 1 C 6 3 -F 1 3 0 1 C 6 3 -E F F 4 1 C 6 3 -E E B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 6 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.