Fréttablaðið - 07.03.2017, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 07.03.2017, Blaðsíða 30
Tesla er vel á veg komið að reisa risarafhlöðuverksmiðju sína í Nevada í Bandaríkjunum og þar verða einnig smíðaðir Tesla Model 3 bílar. Tesla ætlar ekki að láta þar við sitja því á prjón­ unum er að reisa aðrar fjórar risa­ verksmiðjur, en Elon Musk telur reyndar eina þeirra vera verk­ smiðju SolarCity í Buffalo, en hún rann inn í Tesla á síðasta ári. Musk horfir til Bretlands hvað eina af þessum viðbótarverk­ smiðjum varðar en til stendur að upplýsa um þrjár nýjar verk­ smiðjur og staðsetningu þeirra áður en árið er liðið. Í enda þessa árs munu 6.500 manns vinna í verksmiðjunni í Nevada og 10.000 árið 2020. Tesla mun hefja þar framleiðslu Model 3 bílsins í júlí á þessu ári og fram­ leiðsla verður komin að hámarks­ afköstum strax í september. Tesla stefnir á að framleiða 50.000 bíla af Model S og X á fyrri hluta þessa árs og yrði það 71% aukning frá fyrra ári. Framleiðsluaukning Tesla á fjórða ársfjórðungi síðasta árs nam þó aðeins 27% en uppbygg­ ingin er hröð og vonandi stendur Elon Musk við orð sín nú. Tesla ætlar að reisa 4 aðrar risaverksmiðjur  Tesla er vel á veg komið að reisa risarafhlöðuverksmiðju sína í Nevada í Bandaríkjunum. Seinna á þessi ári hefur Mercedes Benz fjöldaframleiðslu á sínum fyrsta pallbíl. Þessi bíll er ætlaður á markað í Evrópu og í S­Ameríku, en aldrei stóð til að selja hann í Bandaríkjunum. Það gæti þó verið að breytast í ljósi þess að fleiri og fleiri Banda­ ríkjamenn kjósa sér minni pallbíla þó að þeir stóru séu reyndar mun söluhærri enn. Það á við bíla eins og söluhæstu einstöku bílgerð í Bandaríkjunum til margra ára­ tuga, Ford F­150. Sem dæmi um þessa þróun þá er General Mot­ ors víst að fara að markaðssetja nýjan smærri pallbíl á næstunni, aðallega ætlaðan fyrir Bandaríkja­ markað. Þessi nýi pallbíll Benz er byggð­ ur á sama undirvagni og Nissan Navara og Renault Alaskan pall­ bílarnir, en Daimler og Renault­ Nissan eiga í talsverðu samstarfi við smíði bíla. Hann verður smíð­ aður af Nissan á Spáni og hefst framleiðslan í ár, en svo einnig í verksmiðju Renault í Argentínu árið 2018. Ef af markaðssetningu Mercedes Benz á pallbílnum verður í Bandaríkjunum er lík­ legast að hann verði framleiddur þar í landi. Benz-pallbíllinn líka til Bandaríkjanna  Fjöldaframleiddur Benz-pallbí ll. Nýr forsetabíll trumps Næstum tilbúiNN  Forsetabíll Obama var nefndur „The Beast“ og því er kannski við hæfi að hér sé á ferðinni „The Beast 2.0“. Nýr forsetabíll Trumps er svo til tilbúinn og smíðaður af General Motors og er lengdur Chevrolet Suburban. Í grunn- gerðinni er þessi bíll stærsti jeppinn sem fæst í Bandaríkjunum, en það er ekki nóg og því er hann lengdur. Hann er auk þess gríðarlega vel brynvarinn og á að þola skot úr sterkustu rifflum og handsprengjur. Þó að á myndinni af bílnum mætti telja að þar fari fólksbíll þá er það ekki svo, þetta er sannarlega jeppi og hátt er undir hann. Mikil leynd hvílir yfir smíði hans, enda alls ekki ráðlegt að láta uppi hvernig hann er búinn. Auk allrar brynvarnarinnar þá er bíllinn hátækni- væddur og á einnig að þola efna- vopnaárásir. Einnig er sagt að í bílnum séu tveir pottar af blóði í blóðflokki Trumps. Þegar Trump mun ferðast í þessum bíl verður annar nákvæm- lega eins með í för svo ekki sé vitað í hvorum bílnum forsetinn er og aðrir bílar í bílalestinni þegar Trump ferðast í „The Beast“ eru einnig brynvarðir. 522 4600 www.krokur.net Krókur er fyrirtæki sem að hefur sérhæft sig í flutningum og björgun ökutækja. Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða þjónusta í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum viðskiptavina. Krókur býður m.a. uppá: • Starfsmenn sem eru þjálfaðir og reyndir í bíla- og tækjaflutningum Taktu Krók á leiðarenda Suðurhraun 3, 210 Garðabær á þinni leið 7 . m a r s 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D a G U r12 Bílar 0 7 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 6 4 -1 9 E C 1 C 6 4 -1 8 B 0 1 C 6 4 -1 7 7 4 1 C 6 4 -1 6 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 6 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.