Fréttablaðið - 07.03.2017, Side 32

Fréttablaðið - 07.03.2017, Side 32
Við erum alin upp við þá trú að mjólk sé holl og góð, sérstaklega fyrir beinin. Nú hafa vísinda- menn við Karolínsku stofnunina og háskólann í Uppsölum í Svíþjóð fundið samhengi milli mikillar mjólkur drykkju eldra fólks og auk- innar hættu á ótímabærum dauða. Ef fólk borðar mikið af græn- meti og ávöxtum daglega minnk- ar áhættan til muna. Rannsóknin birtist nýlega í tímaritinu Americ- an Journal of Epidemiology. Árið 2014 birtu sömu vísinda- menn niðurstöður könnunar sem sýndu að mikil mjólkurdrykkja yki hættu á ótímabærum dauða. Hins vegar fundu vísindamenn engin merki á milli mikillar mjólkur- drykkju og færri beinbrota. Rann- sóknin vakti mikla athygli. Alls hafa 140 þúsund eldri konur og menn verið rannsökuð og fylgst með í 29 ár í sambandi við þessa rannsókn. Sérstök rannsókn var gerð á konum sem drukku mikla mjólk og borðuðu mikið af ávöxt- um og grænmeti og svo konum sem drukku að minnsta kosti þrjú glös af mjólk á dag en borðuðu ekkert grænmeti eða ávexti. Dánartíðnin var mun meiri hjá seinni hópnum. Konur sem drukku mikla mjólk og borðuðu ávexti og grænmeti voru samt með hærri dánartíðni en þær sem drukku mjög litla eða enga mjólk. Mjólkurglaðir karlar höfðu sömuleiðis hærri dánartíðni en þeir sem drukku ekki mjólk. Konur virðast samt vera viðkvæm- ari fyrir mikilli mjólkurdrykkju. Vísindamenn segja að fullorð- ið fólk ætti ekki að drekka mikla mjólk. Sérstaklega eru konur við- kvæmar. Svo virðist sem mjólk- in geti aukið bólgur í líkamanum, segir Karl Michaëlsson, prófess- or við rannsóknarsetur í Upp- sala. Líklegt þykir að laktósar í mjólkinni eða mjólkursykurinn valdi bólgum. Grænmeti og ávext- ir geta varið líkamann gegn þess- um áhrifum. Annar prófessor, Christian A. Drevon, sem starfar við háskól- ann í Ósló segir að þessi niður- staða komi sér ekki á óvart. Mikil fita er í mjólk sem eykur kólest- eról sem síðan eykur hættu á hjartadrepi. Fólk á að forðast feit- ar mjólkurvörur til að koma í veg fyrir hjarta- og æðasjúkdóma, segir hann. Bent er á að öllum svona rannsóknum beri að taka með fyrirvara. Hins vegar ætti eldra fólk að velja frekar léttar mjólkur afurðir en fitumiklar. Um 97 þúsund sænskar konur og 45 þúsund karlar voru spurð um matar- og drykkjarvenjur í rannsókninni. Það var forskning. no sem birti fréttina. Rannsóknin heitir: Milk, Fruit and Vegetable, and Total Anti- oxidant Intakes in Relation to Mortality Rates: Cohort Studies in Women and Men. Mjólk á að drekka í hófi Samkvæmt nýrri rannsókn getur fólk stytt líf sitt með miklu mjólkurþambi. Borði fólk mikið af grænmeti og ávöxtum minnkar það áhættuna. Eldra fólk ætti ekki að drekka mörg glös af mjólk á dag. Það er betra að velja fituskertar mjólkurvörur. Nordicphotos/gEtty Elín Albertsdóttir elin@365.is P R E N T U N .IS Anna G. Steinsen heilsumarkþjálfi, þjálfari, fyrirlesari og jógakennari Ég hef notað Optibac probiotics extra strength og finn heilmikinn mun á mér þegar ég tek inn þessa góðgerla daglega. Ef ég borða mjólkurvörur eða glútein þá finn ég fyrir óþægindum í ristlinum, ef ég tek Optibac probiotics daglega þá líður mér miklu betur og er ekki eins þaninn. Lykilatriði að taka inn góða gerla og Optibac hentar mér frábærlega, ég mæli eindregið með Optibac probiotics vörunum. Aukin vellíðan og minni óþægindi. www.facebook.com/optibacicelandFæst í apótekum og heilsubúðum 7 . m a r s 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D a G U r6 F ó l k ∙ k y n n I n G a r b l a Ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G a r b l a Ð ∙ h e I l s a 0 7 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 6 4 -1 4 F C 1 C 6 4 -1 3 C 0 1 C 6 4 -1 2 8 4 1 C 6 4 -1 1 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 6 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.