Fréttablaðið - 07.03.2017, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 07.03.2017, Blaðsíða 41
Leikhús úti að aka HHHHH Ray Cooney Borgarleikhúsið Leikarar: Hilmir Snær Guðnason, Halldóra Geirharðsdóttir, Ilmur Kristjánsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Elma Stefanía Ágústsdóttir, Halldór Gylfason og Bergur Þór Ingólfsson Leikstjórn: Magnús Geir Þórðarson Leikmynd og búningar: Snorri Freyr Hilmarsson Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmunds- son Tónlist: Amabadama Hljóð: Ólafur Örn Thoroddsen Leikgervi: Margrét Benediktsdóttir Íslenskun og staðfærsla: Gísli Rúnar Jónsson Nú þegar líður á seinni hluta leikársins er kominn tími fyrir hinn árlega gleði­ leik Borgarleikhússins sem er að þessu sinni Úti að aka eftir Ray Cooney, frum­ sýnt nú á laugardag. Höfundurinn er Íslendingum vel kunnur en fjöldi verka hans s.s. Nei, ráðherra! og Beint í æð! hafa verið sýnd hér á landi oftar en ekki í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar sem mundar nú aftur pennann og Magnús Geir Þórðarson, fyrrverandi borgarleik­ hússtjóri, er einnig mættur á gamlar leikstjóraslóðir. Hinn tvíkvænti Jón Jónsson, leikinn af Hilmi Snæ Guðnasyni, kemst að því að börnin hans tvö hafa kynnst á inter­ netinu og ætla að hittast. Upphefst, að eðli farsans, mikill æðibunugangur með allnokkrum æðisköstum til að fela sannleikann fyrir fjölskyldunum tveimur. Ekki verður tekið af Hilmi Snæ að hann gefur sig allan í leikinn. Líkamsbeiting hans er bráðfyndin og það gustar nánast af honum, svo mikill er æsingurinn. En frammistaða hans ber einn galla sem truflar sýninguna en hann verður að skrifa að mestu á leikstjórann. Magnús Geir Þórðarson er við stjórn­ völinn og hefur hann mikla reynslu af leikstjórn slíkra verka. Góður farsi byggist ekki síður á tempói og tíma­ setningum en góðum leik. Listin liggur í því að byggja upp hraðann þar til allt nær suðupunkti. Vandamálið er að hraðinn er keyrður af stað allt of snemma, nánast frá byrjun, og geðs­ hræring Jóns verður mjög fljótlega þreytandi. Annað er faglega gert en þegar mikilvægasta tannhjólið fer of geyst er erfitt að rétta sýninguna af. En Halldór Gylfason sýnir hvernig þessar reglur eiga að virka og stelur senunni. Hann dansar línuna þunnu á milli geðshræringar og lágstemmdra lyga. Leyndarmálið er nefnilega að lygin er stundum fyndnari sögð í lágum rómi og taugaveiklun frekar en með æsingi. Tímasetningar hans eru vægast sagt góðar og drepfyndnar. Þess væri þó óskandi að einhver kvenpersónanna hefði meira að gera og væri sterkara afl innan framvindunnar en raun ber vitni. Halldóra Geirharðs­ dóttir og Ilmur Kristjánsdóttir, sem snýr aftur á leiksviðið eftir hlé, eru báðar mjög hæfar leikkonur og kunna listina að gera eitthvað úr nánast engu. Ungmennin tvö sem allt havaríið snýst um leika Hilmar Guðjónsson og Elma Stefanía Ágústsdóttir af miklum móð en eru bæði svolítið einsleit þrátt fyrir ágæta spretti. Haft er eftir höfundi í leikskrá að ein af meginreglum farsa sé að persónur verði að vera raun­ sæjar og henni er framfylgt að mestu, fyrir utan eina persónu. Hinn ónefndi pabbi Steingríms, leikinn af Bergi Þór Ingólfssyni, virðist alveg á skjön. Bergur Þór kann augljóslega sitt fag en fim frammistaða hans er mikið takmörkuð af illa skrifaðri persónu. Að vanda heppnast þýðing Gísla Rúnars Jónssonar með ágætum en staðfærsluna hefði mátt skoða betur. Til dæmis virðast ferðalögin á milli Hafnarfjarðar og Mosfellsbæjar gerast á ljóshraða. Einnig er einn símabrandar­ inn þegar Jón hermir eftir starfsmanni á kínverskum veitingastað leifturskot í fortíðina sem var bæði óviðeigandi, Spólað af stað í rétta átt Halldóra Geirharðsdóttir, Hilmir Snær Guðnason og Halldór Gylfason á blússandi ferð og flugi í farsanum Úti að aka í Borgarleikhúsinu. Mynd/GrÍMur BjarnaSon NICOTINELL LYFJATYGGIGÚMMÍ Nicotinell Classic/Mint/Fruit/Lakrids/IceMint/Spearmint lyfjatyggigúmmí, Nicotinell Mint munnsogstöflur, Nicotinell forðaplástur. Inniheldur nikótín. Til meðferðar á tóbaksfíkn. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. ® Ertu að hætta að reykja? Veistu hvaða bragðtegund hentar þér? Nicotinell-6-bragdtegundir-A4 copy.pdf 1 19/12/16 10:26 óþarft og ófyndið. Tímaskekkja rétt eins og úreltir hommabrandarar en höfundur hlýtur að eiga þar töluverða sök. Snorri Freyr Hilmarsson sér um bæði leikmynd og búninga en pastellitirnir eru svo afgerandi að hönnunin hverfur nánast. Aftur á móti er sú ákvörðun að nota sömu stofuna fyrir bæði heimilin áhugaverð og gengur nokkuð vel upp. Einnig fer lítið fyrir lýsingu Björns Berg­ steins Guðmundssonar og sömuleiðis tónlist Amabadama. Aftur á móti er hljóðvinnsla Ólafs Arna Thorod sen bæði nákvæm og sérlega vel unnin enda ekkert grín að koma öllum þess­ um símhringingum til skila. Úti að aka mun slípast til þegar leik­ arahópurinn hefur keyrt sýninguna oftar í gegn með fullan sal af fólki. Eins og sýningin stendur núna vantar aðeins of mikið upp á til að gallarnir gleymist. En bráðfyndin er hún, á köflum. Sigríður jónsdóttir NiðuRstaða: Kátínuvélin höktir aðeins of oft en Halldór Gylfason stelur senunni. M e N N i N g ∙ F R É t t a B L a ð i ð 21Þ R i ð J u D a g u R 7 . M a R s 2 0 1 7 0 7 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 6 4 -0 B 1 C 1 C 6 4 -0 9 E 0 1 C 6 4 -0 8 A 4 1 C 6 4 -0 7 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 6 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.