Fréttablaðið - 07.03.2017, Qupperneq 41
Leikhús
úti að aka
HHHHH
Ray Cooney
Borgarleikhúsið
Leikarar: Hilmir Snær Guðnason,
Halldóra Geirharðsdóttir, Ilmur
Kristjánsdóttir, Hilmar Guðjónsson,
Elma Stefanía Ágústsdóttir, Halldór
Gylfason og Bergur Þór Ingólfsson
Leikstjórn: Magnús Geir Þórðarson
Leikmynd og búningar: Snorri Freyr
Hilmarsson
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmunds-
son
Tónlist: Amabadama
Hljóð: Ólafur Örn Thoroddsen
Leikgervi: Margrét Benediktsdóttir
Íslenskun og staðfærsla: Gísli Rúnar
Jónsson
Nú þegar líður á seinni hluta leikársins
er kominn tími fyrir hinn árlega gleði
leik Borgarleikhússins sem er að þessu
sinni Úti að aka eftir Ray Cooney, frum
sýnt nú á laugardag. Höfundurinn er
Íslendingum vel kunnur en fjöldi verka
hans s.s. Nei, ráðherra! og Beint í æð!
hafa verið sýnd hér á landi oftar en ekki
í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar sem
mundar nú aftur pennann og Magnús
Geir Þórðarson, fyrrverandi borgarleik
hússtjóri, er einnig mættur á gamlar
leikstjóraslóðir.
Hinn tvíkvænti Jón Jónsson, leikinn
af Hilmi Snæ Guðnasyni, kemst að því
að börnin hans tvö hafa kynnst á inter
netinu og ætla að hittast. Upphefst, að
eðli farsans, mikill æðibunugangur
með allnokkrum æðisköstum til að
fela sannleikann fyrir fjölskyldunum
tveimur. Ekki verður tekið af Hilmi
Snæ að hann gefur sig allan í leikinn.
Líkamsbeiting hans er bráðfyndin og
það gustar nánast af honum, svo mikill
er æsingurinn. En frammistaða hans
ber einn galla sem truflar sýninguna
en hann verður að skrifa að mestu á
leikstjórann.
Magnús Geir Þórðarson er við stjórn
völinn og hefur hann mikla reynslu
af leikstjórn slíkra verka. Góður farsi
byggist ekki síður á tempói og tíma
setningum en góðum leik. Listin liggur
í því að byggja upp hraðann þar til
allt nær suðupunkti. Vandamálið er
að hraðinn er keyrður af stað allt of
snemma, nánast frá byrjun, og geðs
hræring Jóns verður mjög fljótlega
þreytandi. Annað er faglega gert en
þegar mikilvægasta tannhjólið fer of
geyst er erfitt að rétta sýninguna af.
En Halldór Gylfason sýnir hvernig
þessar reglur eiga að virka og stelur
senunni. Hann dansar línuna þunnu
á milli geðshræringar og lágstemmdra
lyga. Leyndarmálið er nefnilega að
lygin er stundum fyndnari sögð í lágum
rómi og taugaveiklun frekar en með
æsingi. Tímasetningar hans eru vægast
sagt góðar og drepfyndnar.
Þess væri þó óskandi að einhver
kvenpersónanna hefði meira að gera og
væri sterkara afl innan framvindunnar
en raun ber vitni. Halldóra Geirharðs
dóttir og Ilmur Kristjánsdóttir, sem
snýr aftur á leiksviðið eftir hlé, eru
báðar mjög hæfar leikkonur og kunna
listina að gera eitthvað úr nánast engu.
Ungmennin tvö sem allt havaríið snýst
um leika Hilmar Guðjónsson og Elma
Stefanía Ágústsdóttir af miklum móð
en eru bæði svolítið einsleit þrátt fyrir
ágæta spretti. Haft er eftir höfundi í
leikskrá að ein af meginreglum farsa
sé að persónur verði að vera raun
sæjar og henni er framfylgt að mestu,
fyrir utan eina persónu. Hinn ónefndi
pabbi Steingríms, leikinn af Bergi Þór
Ingólfssyni, virðist alveg á skjön. Bergur
Þór kann augljóslega sitt fag en fim
frammistaða hans er mikið takmörkuð
af illa skrifaðri persónu.
Að vanda heppnast þýðing Gísla
Rúnars Jónssonar með ágætum en
staðfærsluna hefði mátt skoða betur.
Til dæmis virðast ferðalögin á milli
Hafnarfjarðar og Mosfellsbæjar gerast á
ljóshraða. Einnig er einn símabrandar
inn þegar Jón hermir eftir starfsmanni
á kínverskum veitingastað leifturskot
í fortíðina sem var bæði óviðeigandi,
Spólað af stað í rétta átt
Halldóra Geirharðsdóttir, Hilmir Snær Guðnason og Halldór Gylfason á blússandi
ferð og flugi í farsanum Úti að aka í Borgarleikhúsinu. Mynd/GrÍMur BjarnaSon
NICOTINELL
LYFJATYGGIGÚMMÍ
Nicotinell Classic/Mint/Fruit/Lakrids/IceMint/Spearmint lyfjatyggigúmmí, Nicotinell Mint munnsogstöflur, Nicotinell forðaplástur. Inniheldur nikótín. Til meðferðar á tóbaksfíkn. Lesið vandlega upplýsingar
á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
®
Ertu að hætta að reykja?
Veistu hvaða bragðtegund hentar þér?
Nicotinell-6-bragdtegundir-A4 copy.pdf 1 19/12/16 10:26
óþarft og ófyndið. Tímaskekkja rétt
eins og úreltir hommabrandarar en
höfundur hlýtur að eiga þar töluverða
sök.
Snorri Freyr Hilmarsson sér um bæði
leikmynd og búninga en pastellitirnir
eru svo afgerandi að hönnunin hverfur
nánast. Aftur á móti er sú ákvörðun að
nota sömu stofuna fyrir bæði heimilin
áhugaverð og gengur nokkuð vel upp.
Einnig fer lítið fyrir lýsingu Björns Berg
steins Guðmundssonar og sömuleiðis
tónlist Amabadama. Aftur á móti er
hljóðvinnsla Ólafs Arna Thorod sen
bæði nákvæm og sérlega vel unnin
enda ekkert grín að koma öllum þess
um símhringingum til skila.
Úti að aka mun slípast til þegar leik
arahópurinn hefur keyrt sýninguna
oftar í gegn með fullan sal af fólki. Eins
og sýningin stendur núna vantar aðeins
of mikið upp á til að gallarnir gleymist.
En bráðfyndin er hún, á köflum.
Sigríður jónsdóttir
NiðuRstaða: Kátínuvélin höktir
aðeins of oft en Halldór Gylfason
stelur senunni.
M e N N i N g ∙ F R É t t a B L a ð i ð 21Þ R i ð J u D a g u R 7 . M a R s 2 0 1 7
0
7
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
4
-0
B
1
C
1
C
6
4
-0
9
E
0
1
C
6
4
-0
8
A
4
1
C
6
4
-0
7
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
6
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K