Fréttablaðið - 07.03.2017, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 07.03.2017, Blaðsíða 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Jóns Sigurðar Eyjólfssonar Bakþankar Ég veit að það er að bera í blindfullan lækinn en ég ætla aðeins að tala um áfengis­ lögin. En fyrst langar mig að segja litla sögu: Einu sinni vann ég á sambýli þar sem afar góð kona bjó en hún átti erfitt með mál. Eitt sinn tók hún sig þó til, læddist inn á starfsmannaskrifstofu og pantaði sumarhús í Svíþjóð. Í fyrstu urðum við starfsmenn skelkaðir, þegar upp komst, og fórum að hugsa eins og hugmyndasnauðir valdsmenn gera oft: Við verðum að læsa skrif­ stofunni, eða loka símann inni í skáp og þar fram eftir götunum. Það var ekki fyrr en seinna að við höfðum vit á því að gleðjast yfir því að konan hefði verið fær um að koma svona fram með festu og frumkvæði og án þess að láta fötlun sína trufla sig. Undanfarin ár hef ég unnið í skólum. Þar vill stundum brenna við að yfirvöldum detti ekkert frekar í hug en refsingar og þving­ anir þegar óþekkt gerir vart við sig. Reynslan kennir mér þó að þegar maður er orðinn svona forpokaður, og farinn að hugsa í múralausnum eins og Bandaríkja­ forseti, þá króar maður sjálfan sig út í horn þaðan sem engar skapandi lausnir sjást. Þar finnst mér við einmitt vera í áfengismálum, og ef ég skil málið rétt, rífumst við nú um það hvort eigi að okra á okkur úti í mat­ vörubúð eða úti í vínbúð. Lík­ legast erum við orðin svo trumpuð af leiðinlegu fullu fólki (sem er afsprengi múramenningar), þess að láta okra á okkur og plata af okkur auðlindir, að okkur dettur ekkert betra í hug. Á meðan fær enginn léttvín fyrir skynsamlegt verð á stað þar sem enginn alki á erindi. Trumpað! Að trumpast í áfengismálum 24. febrúar til 12. mars laugardalsvelli öll kvöld opið frá: kl. 10 – 21 OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN Í ENGIHJALLA, VESTURBERGI OG ARNARBAKKA 0 7 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 6 3 -E 3 9 C 1 C 6 3 -E 2 6 0 1 C 6 3 -E 1 2 4 1 C 6 3 -D F E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 6 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.