Fréttablaðið - 13.02.2017, Blaðsíða 10
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Geðheilbrigðisþjónusta fyrir ungt fólk, einkum nem-endur í framhaldsskólum, hefur verið til umræðu að undanförnu og það er vel. Þetta er brýnt málefni
sem hefur verið baráttumál Samfylkingarinnar. Stigin voru
mikilvæg fyrstu skref í eflingu geðheilbrigðisþjónustu á
heilsugæslustöðvum með lítilsháttar fjárveitingu til ráðn-
ingar sálfræðinga á fjárlagaárinu 2016 sem dugar hvergi.
Samfylkingin lagði fram tillögu um sálfræðiþjónustu í
framhaldsskólum á vorþingi í fyrra en þá var fyrsti flutn-
ingsmaður Sigríður Ingibjörg Ingadóttir þingmaður. Þetta
var eitt þeirra forgangsmála sem þingmenn Samfylkingar-
innar lögðu fram að nýju nú á haustþingi.
Brottfall framhaldsskólanema er alvarlegur vandi á
Íslandi en aðeins 44% nemenda ljúka námi á tilsettum
tíma. Ungt fólk hverfur frá námi og mun langtímaáhrifa
þess gæta víða í samfélaginu og eru þau þegar farin að
sjást. Þetta má að hluta rekja til slæmrar geðheilsu ung-
menna hér á landi en sjálfsvíg eru til að mynda helsta
dánarorsök ungra karlmanna á Íslandi. Þessum vanda
þarf að mæta, t.d. með auknu aðgengi að geðheilbrigðis-
þjónustu.
Vegna þessa hefur álag aukist mikið á kennara, skóla-
hjúkrunarfræðinga og námsráðgjafa, sem hvorki hafa
menntun né forsendur til þess að takast á við vandann.
Einstaka skólar hafa í neyð sinni brugðist við og falið t.d.
námsráðgjöfum aukin hlutverk á þessu sviði. Það er hins
vegar ófullnægjandi, bregðumst við kallinu og aukum
aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu innan veggja skólanna.
Markmið tillögu okkar í Samfylkingunni er að í
byrjun skólaárs 2017-2018 verði tryggt að í öllum fram-
haldsskólum landsins hafi nemendur aðgang að sálfræði-
þjónustu sér að kostnaðarlausu.
Við gerum ráð fyrir að ráðherra útfæri nánar með hvaða
hætti þjónustan verði veitt en að miða beri við að einn sál-
fræðingur í fullu starfi geti sinnt um 700 nemend um. Ber
að miða þjónustuþörf fámennari jafnt sem fjölmennari
skóla við það hlutfall.
Það væri Alþingi til mikils sóma að ljúka þessu máli í
góðri sátt.
Geðheilbrigðisþjónusta
í framhaldsskólum
Bregðumst
við kallinu
og aukum
aðgengi að
geðheil-
brigðisþjón-
ustu innan
veggja
skólanna.
Guðjón S.
Brjánsson
alþingismaður
Réttindum
sem við
munum
vonandi dag
einn líta á
sem jafn
sjálfsögð og
þau að þurfa
ekki að búa
við ofríki og
ofbeldi frá
degi til dags.
Bjarnargreiðinn
Æsispennandi þing Knattspyrnu-
sambands Íslands fór fram um
helgina. Þar hafði Guðni Bergsson
betur á móti Birni Einarssyni í
kjörinu um formann sambands-
ins. Fyrir þingið hafði molaskrif-
ari heyrt í mönnum sem þóttust
sjá sigur Björns í kortunum.
Þeir hinir sömu segja stuðnings-
yfirlýsingu Þóris Hákonarsonar,
fyrrverandi framkvæmdastjóra
KSÍ, við Björn Einarsson skýra
tap hins síðarnefnda. Þórir hafi
haldið þannig á málum í starfi
sínu hjá KSÍ að stuðningsyfir-
lýsing hans yrði bjarnargreiði
við hvern þann sem hana fengi.
Hvort þessi skýring er rétt skal
ósagt látið. Í öllu falli er ljóst að
stuðningsyfirlýsingin varð ekki til
að hjálpa Birni að ná kjöri.
Andúð á bílum
Hjálmar Sveinsson, formaður
umhverfis- og skipulagsráðs
Reykjavíkurborgar, hefur vakið
athygli í baráttu sinni gegn einka-
bílnum. Nú síðast með fréttum
af því að hann vilji skattleggja
notkun nagladekkja. Honum
barst nýlega liðsauki úr óvæntri
átt. Hugmyndir Jóns Gunnars-
sonar samgönguráðherra um veg-
tolla á suðvesturhorni virka sem
viðbót við opinbera álagningu á
bílaeigendur. Ráðherra væri nær
að nýta þá milljarða sem koma
nú þegar í ríkiskassann í formi
bensíngjalda, bifreiðagjalda og
annarra opinberra gjalda á bíleig-
endur í uppbyggingu veganna.
jonhakon@frettabladid.is
Það er erfitt að fylgjast með fréttum af þeirri meðferð sem vistfólk, bæði börn og full-orðnir, mátti sæta á Kópavogshæli eins og hefur verið að koma í ljós að undanförnu. Í kjölfar þess að vistheimilanefnd skilaði dómsmálaráðherra skýrslu sem fjallar um
vistun barna á Kópavogshæli árin 1952-1993 hefur
hvert málið á fætur öðru komið upp á yfirborðið þar
sem fólk vitnar um ofbeldi og óásættanlegan aðbúnað
einstaklinga sem höfðu það eitt sér til saka unnið að
vera hjálpar þurfi. Að þarfnast þess að samfélagið
væri reiðubúið til þess að veita því mannsæmandi líf,
tækifæri og umhyggju. En óháð efnahag, heilsufari eða
öðrum óviðráðanlegum aðstæðum.
Samfélagið brást þessu fólki. Braut á rétti þess og stóð
velferð þess fyrir þrifum – ekki aðeins vegna vanþekk-
ingar heldur ekki síður vegna fjárhagslegra sjónarmiða.
Það reyndist ódýrara fyrir samfélagið til skemmri tíma
litið að fara illa með fólk en að veita því það sem það
þurfti á að halda. Það er nöturleg tilhugsun og erfið að
við sem samfélag þurfum öll að axla einhverja ábyrgð í
þessu ljóta máli.
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur nú
gengið á undan með góðu fordæmi og beðið hlutaðeig-
andi aðila sem og aðstandendur þeirra afsökunar á því
hvernig málum var háttað. Og ekki síður að nú verði
unnið að því að bæta þá sáru reynslu sem fólk varð
fyrir með þeim hætti sem frekast er unnt. Bjarni bendir
einnig réttilega á að ýmsan lærdóm megi draga af rann-
sókn nefndarinnar og mikilvægi þess að ráðherrar fari
yfir tillögur, settar fram í skýrslunni, og meti til hvaða
ráðstafana verði gripið í því skyni að standa vörð um
mannréttindi fatlaðs fólks í íslensku samfélagi.
Það er fagnaðarefni að ríkisstjórnin ætli sér að sinna
málefnum fatlaðra og mikilvægi þess að standa vörð
um mannréttindi þeirra. En það er að sama skapi
óumræðilega mikilvægt að slíkt sé ekki einungis gert í
ljósi fortíðar heldur að við höfum hugrekki til þess að
horfast í augu við stöðu þessara mála í samtímanum
og hvernig frammistaða okkar í þessu málefni verður
metin eftir einhver ár eða áratugi.
Eitt brýnasta verkefni ríkisstjórnarinnar í málefnum
fatlaðra er því að horfast í augu við samtímann og huga
að því sem betur mætti fara. Að leita til hagsmunaaðila
og afla sér upplýsinga um það hvernig íslenskt sam-
félag er að standa sig í þessum efnum í raun og veru og
horfast í augu við staðreyndir þar að lútandi. Takist
ríkisstjórninni það yrði það án efa til framfara fyrir
fjölda einstaklinga sem búa við skerðingu á ýmsum
réttindum og einstaklingsfrelsi. Réttindum sem við
munum vonandi dag einn líta á sem jafn sjálfsögð og
þau að þurfa ekki að búa við ofríki og ofbeldi frá degi til
dags. Eða eins og Mark Twain sagði svo ágætlega: „Við
verðum að einbeita okkur að framtíðinni því að þar
verðum við það sem eftir er ævinnar.“
Að bregðast og
bregðast við
1 3 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M Á N U D a G U r10 s k o ð U N ∙ f r É T T a b L a ð i ð
SKOÐUN
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR SKODA
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði
sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Skoda.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina
má flest allt um ástand bílsins og gæði.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is
1
3
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:1
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
7
-F
5
3
8
1
C
3
7
-F
3
F
C
1
C
3
7
-F
2
C
0
1
C
3
7
-F
1
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
1
2
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K