Fréttablaðið - 13.02.2017, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 13.02.2017, Blaðsíða 32
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir afi og langafi, Kjartan Bjarnason fyrrum bæjarverkstjóri Garðabæjar, lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Grund 7. febrúar sl. Útförin fer fram frá Digraneskirkju í Kópavogi fimmtudaginn 16. febrúar kl. 13. Ragna Pálsdóttir Kolbrún Kjartansdóttir Ásþór Ragnarsson Páll Bjarni Kjartansson Þuríður Pálsdóttir Hrafnhildur Kjartansdóttir Jón Þorvaldur Bjarnason Hrefna Nellý Ragnarsdóttir Jón Sigurbjörnsson Kristín Stefánsdóttir Jón Sverrir Erlingsson barnabörn og langafabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, María I. Jóhannsdóttir (Lóló) Hraunbæ 103, Reykjavík, lést 28. janúar. Hún verður jarðsungin frá Háteigskirkju þriðjudaginn 14. febrúar kl. 13. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. Guðrún María Jóhannsdóttir Kristín Ingibjörg Jóhannsd. Jón Rafn Sigurðsson Jens Pétur Jóhannsson Matthildur Róbertsdóttir Hólmgeir Þór Jóhannsson Helga Georgsdóttir og fjölskyldur. Útför Páls Flygenring verkfræðings og fv. ráðuneytisstjóra, Þorragötu 5, 101 Reykjavík, fer fram í Neskirkju þriðjudaginn 14. febrúar 2017 kl. 13.00. Þóra Jónsdóttir Björn Flygenring Kirstín Þ. Flygenring Sigurður R. Helgason Elín Flygenring Finnbogi Jakobsson Okkar elskaði Helgi Jóhannsson sem lést mánudaginn 6. febrúar verður jarðsunginn í Grafarvogskirkju miðvikudaginn 15. febrúar klukkan þrjú. Hjördís Bjarnason Gunnar Fjalar Helgason Kristrún Kristjánsdóttir Óttar Örn Helgason Þorgerður Arna Einarsdóttir Hallur Már Helgason og barnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Hjálmar Guðmundsson áður Melteigi, Keflavík, er látinn. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Albert B. Hjálmarsson Brynja Kjartansdóttir Lísbet Hjálmarsdóttir Gunnar I. Kristinsson Guðmundur Hjálmarsson Sveindís Skúladóttir barnabörn og barnbarnabörn. Ástkær sambýliskona mín, móðir, tengdamóðir, amma og systir, Ingeborg Linda Mogensen Garðastræti 2, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans 7. febrúar síðastliðinn. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 16. febrúar kl. 13.00. Örn Á. Sigurðsson Pan Thorarensen Rúna Thorarensen Guðrún Lárusdóttir Helgi Egilsson barnabörn og systkini hinnar látnu. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru Jóhönnu Helgu Guðmundsdóttur frá Innstu-Tungu, Tálknafirði. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á deild 13G Landspítala. Ykkar alúð var einstök. Ársæll Egilsson Kristín G. Ársælsdóttir Njáll Torfason Hrefna Ársælsdóttir Steindór Andersen Níels A. Ársælsson Sigurlaug Guðmundsdóttir Tryggvi Ársælsson Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir Hlynur Ársælsson Hallveig Guðný Guðnadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Rakel Garðarsdóttir, baráttumanneskja fyrir bættum heimi, verður gestur Bóka­ safns Seltjarnarness í dag þar sem hún bendir á leiðir fyrir fjölskyldufólk til að virkja dýrmætan tíma á sama tíma og stuðlað er að minni matarsóun og um leið hagsýnum rekstri innan veggja heim­ ilisins. Hefst fyrirlestur hennar klukk­ an  17.30 og er ókeypis inn. Umfjöllun Rakelar er liður í fyrirlestraröð Bóka­ safnsins undir heitinu Eldhúsdagar, þar sem sjónum er beint að hagnýtum og hollum ráðum fyrir alla. „Fyrirlesturinn verður tengdur matar­ sóun. Þegar ég kem svona fram þá er bókin Vakandi veröld uppsprettan að fyrirlestrinum,“ segir Rakel en hún vann hana ásamt Margréti Marteinsdóttur. „Þó umhverfisáhrifin, sem eru skelfileg, séu í fyrirrúmi er ég líka að hugsa um hluti sem snúa að vinnunni. Eftir því sem maður verður eldri þá heyrir maður á fólki að það er alltaf að vinna og sumir eru jafnvel ekki einu sinni í vinnu sem þeim líkar vel við. Og stór hluti af þeim launum fer bara í ruslið, því við notum svo mikið af peningum okkar í mat sem endar í ruslinu. Í staðinn fyrir að henda öllum matnum þá er hægt að spara og nýta peningana til að fara til Spánar eða eitthvað álíka. Þetta helst í hendur. Meiri tími með fjölskyldunni og meiri peningur. Sem er svo dýrmætt. Þess vegna er fáránlegt að sóa þessum dýrmæta tíma, freka ætti að nýta hann í eitthvað upp­ byggilegra en að henda mat í ruslið.“ Rakel hefur verið ötul baráttukona gegn matarsóun hér á landi í langan tíma og er nánast andlit þeirrar baráttu. Hún segir að Íslendinga skorti þor til að taka næsta skref. „Okkur gengur ekkert sérlega vel. Við erum enn að henda fullt af mat þó það séu margir að vakna en okkur vantar aðgerðir. Neytendur eru margir hverjir að vakna og verslanir eru enn að henda gríðarlegu magni. Borgaryfirvöld eru til dæmis ekki enn komin með tunnu undir lífrænan úrgang. Það er allt á stefnuskrá en eftir hverju er verið að bíða? Við þurf­ um að hætta að tala um hlutina og fara í aðgerðir. Á meðan tikkar tíminn.“ Hún bendir á að skólar séu duglegir að kenna börnum um skaðsemi matar­ sóunar og það smitist inn á heimilið. En betur má ef duga skal. „Það er mikilvægt að þetta sé í skólunum. Þar er kennt um skaðsemi plasts og frauðplasts til dæmis sem er ekki hægt að endurvinna. Það er til dæmis góð spurning. Af hverju er engin verslun eða búð að segja, komið að versla hjá mér – við erum ekki að nota frauðplast. Það eru nefnilega ótal tækifæri beint fyrir framan okkur.“ benediktboas@365.is Þurfum að hætta að tala um hlutina og fara í aðgerðir Fyrirlestur Rakelar Garðarsdóttur um matarsóun og leiðir til að virkja tíma og spara peninga fer fram í dag í Bókasafni Seltjarnarness. Rakel vill minna mas og meiri aðgerðir.   Rakel Garðarsdóttir. FRéttablaðið/Valli 1 3 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M Á N U D a G U r16 t í M a M ó t ∙ f r É t t a b L a ð i ð tímamót 1 3 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :1 7 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K _ N Ý.p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 3 7 -F A 2 8 1 C 3 7 -F 8 E C 1 C 3 7 -F 7 B 0 1 C 3 7 -F 6 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 1 2 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.