Fréttablaðið - 13.02.2017, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 13.02.2017, Blaðsíða 4
Fjármál „Við þurfum 300-400 milljónir á ári til að fara í þessar tvær framkvæmdir sem eftir eru. Það er ekki mikið miðað við stöðu sjóðsins,“ segir Páll Björgvin Guð- mundsson, bæjarstjóri  Fjarða- byggðar, en á bæjarráðsfundi sveit- arfélagsins var lögð fram bókun um að ekki  sé nægt fjármagn á fjárlögum til þess að halda áfram byggingu ofanflóðamannvirkja  í Neskaupstað. Í bókuninni segir að bæjar- ráð telji það mjög mikilvægt að þessum framkvæmdum verði haldið áfram með tilliti til öryggis íbúa. Mörg rök séu fyrir því, meðal annars að nægt fé er í sjóðnum eða um 15 milljarðar króna. Hafsteinn Pálsson, starfs- maður sjóðsins og umhverfis- ráðuneytisins, staðfesti stærðar- gráðuna. Sjóðurinn er geymdur á reikningi og í hann fer meira en tekið er út. Hann er fjármagnaður með því að árlegt gjald er lagt á allar brunatryggðar húseignir og er upphæðin 0,3 prómill  af vátryggingarverðmæti. Hafsteinn bendir á að fjárheim- ildir sjóðsins  séu ákveðnar  af Alþingi. Ekki megi nýta fjármuni sjóðsins nema sem nemur þeirri upphæð sem Alþingi ákveður. Á bæjarráðsfundinum voru lögð fram afrit af bréfum Páls til þingmanna Norðausturkjör- dæmis, fjárlaganefndar Alþingis, fjármálaráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra, en hann hefur  einnig fundað með ráð- herrum vegna málsins. „Svörin sem við höfum verið að fá eru að þetta sé þensluhvetjandi og hluti af útgjaldaramma ríkisins.  Það sem við höfum verið að benda á er tvennt. Annars vegar að þetta sé bundið í lög og snúist um öryggi fólks og hins vegar að við höfum verið í framkvæmdum. Það er mikilvægt að það sé samfella í svona verkum. Að það sé ekki verið að byrja upp á nýtt. Það eru verktakar hér að vinna í þessu og þeir gætu séð hag sinn í að bjóða í verkið sem væri hagur fyrir sveitar- félagið og sjóðinn. Þetta eru ekki  peningar sem eru  að fara í heilbrigðismál eða vegakerfið eða neitt slíkt.  Þetta snýst um að nýta peningana sem eru ætlaðir beint í svona verkefni, tekna  úr sérstökum sjóði,“ segir Páll. Hann bendir á að verkin tvö séu tilbúin undir hönnun og búið sé að framkvæma umhverfismat. „Við fylgjum þessu máli eftir og vonandi eigum við góð samskipti áfram við stjórnvöld því það er mikilvægt að klára málið.“ benediktboas@365.is Fá ekki 300 milljónir úr 15 milljarða króna ofanflóðasjóði Ekki er til nægt fjármagn á fjárlögum til þess að halda áfram byggingu Ofanflóðamannvirkja á árinu 2017 í Nes- kaupstað. Tvö verk eru eftir og er kostnaðurinn um 300 milljónir á ári en í ofanflóðasjóði eru um 15 milljarðar króna og safnast fjármunir þar upp á meðan lögbundin verkefni er varða öryggi og eignir fólks eru látin bíða. Ákveðið var á sínum tíma að varnargarðar ofan byggðar í Neskaupstað skyldu reistir í samfellu. MyNd/KristíN Þetta eru ekki peningar sem eru að fara í heilbrigðismál eða vegakerfið eða neitt slíkt. Þetta snýst um að nýta peningana sem eru ætlaðir beint í svona verkefni, tekna úr sérstökum sjóði. Páll Björgvin Guð- mundsson, bæjar- stjóri Fjarðabyggðar SlyS Þyrla landhelgisgæslunnar var kölluð til á öðrum tímanum í gær vegna bráðaveikinda við Silfru á Þingvöllum. Erlendur ferðamaður missti með- vitund eftir snorkl í Silfru og hófust endurlífgunartilraunir á staðnum. Þær báru ekki árangur. Maðurinn var fluttur með þyrlu á Landspítalann í Fossvogi og úrskurðaður látinn. – jhh Ferðamaður lést í Silfru Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti með manninn við Landspítalann í Fossvogi. FréttabLaðið/Gar Náttúra Hrina jarðskjálfta fór af stað á Reykjaneshrygg í gærkvöldi. Fjórir skjálftar mældust rétt yfir þremur stigum. Klukkan 19.27 mældust tveir jarðskjálftar, báðir 3,1 að stærð, og klukkan 20.10 mæld- ust aðrir tveir skjálftar, báðir 3,2 að stærð. Á vef Veðurstofu Íslands kemur fram að aðrir skjálftar í hrin- unni hafi allir verið mun minni. Þá mældust tveir skjálftar yfir 3 að stærð í Bárðarbungu um helgina. Annar þeirra, 3,6 að stærð, mældist í Bárðarbungu laust fyrir klukkan tíu í gærmorgun. Hinn sem var 3,5 að stærð, mældist í Bárðarbunguöskju í Vatnajökli aðfaranótt laugardags. – ae Jörð skalf á Reykjanesi al m aN NaVar N I r Stjórnendur Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyj- um (VSV) hafa nýtt tímann á meðan sjómannaverkfallið stendur yfir til að ræða viðbúnað og öryggismál vegna Kötlugoss. Í liðinni viku var haldinn fundur stjórnenda og skipstjóra með vísinda- mönnum Jarðvísindastofnunar til að fara yfir mögulegar afleiðingar Kötlu- goss. Raunveruleg hætta er fyrir hendi að hlaupvatn frá gosi geti komið af stað flóðbylgu sem myndi ná landi í Eyjum. „Svona hlaup eru ekki algeng en við viljum undirbúa okkur í fram- kvæmd og vinnubrögðum ef þetta kemur upp,“ segir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri VSV. „Við höldum brunaæfingu árlega og þá er upplagt að gera þetta í leiðinni.“ Að fundi loknum lágu fyrir drög að viðbragðsáætlun fyrir fólk í land- vinnslu og viðbragðsáætlun gagnvart skipum. „Allir skipstjórarnir voru á fundinum og þekkja sitt hlutverk,“ segir Sigurgeir. Mannvirki VSV eru við hafnarsvæðið sem færi að stærstum hluta á kaf í slíkum hamförum. „Þar eru allar okkar byggingar og allt okkar fólk. Þetta snýst um öryggi þess, að koma því upp í bæ og úr hættu.“ Frekari áætlanir eru í vinnslu fyrir bæinn hjá almannavörnum. „Þetta var fyrsta yfirferð. Við munum kíkja á þetta aftur þegar jarðvísindamenn og almannavarnir hafa lagt upp sín plön. Þá munum við samræma okkur,“ segir Sigurgeir Orri. – jóe Vinnslustöðin undirbýr viðbrögð við flóði af völdum Kötlugoss Möguleiki er á því að hlaupvatn úr Kötlu geti myndað flóðbylgju sem skylli á Vest- mannaeyjum. Vinnslustöðin hélt viðbragðsfund með stjórnendum og skipstjórum af því tilefni. MyNd/ísLEiFUr arNar ViGNissON sigurgeir brynjar Kristgeirsson 1 3 . F e b r ú a r 2 0 1 7 m á N U D a G U r4 F r é t t I r ∙ F r é t t a b l a ð I ð 1 3 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :1 7 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 3 7 -F A 2 8 1 C 3 7 -F 8 E C 1 C 3 7 -F 7 B 0 1 C 3 7 -F 6 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 1 2 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.